Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 15
verið: Bjarni sýslumaður, Porsteinn Jónsson hreppstjóri og Por-
steinn læknir síðan 1886.
Framfarafélagið var stofnað árið 1893 til að efla fram-
farir í búnaði, túnrækt o. fl. Hefir það flest árin notið styrks úr
landssjóði, og orðið talsvert ágengt. Hefir síðan að mun aukist
áhugi á stækkun túna, uppgræðingu nýrra túna, og betri hirðingu
og ræktun hinna eldri túna, og er þar enn mikið verkefni fyrir
höndum, svo sem áður er minst á. Félagið varð til þess að út-
vega hinar fyrstu kerrur hingað. Félagið á nú 100 kr. í sjóði.
Nautgripaábyrgðarfélagið var stofnað árið 1893 til að
tryggja kúaeign manna. Félagsmenn greiða 4°/o af virðingarverði
kúnna. Félagið hefir þegar bætt margar kýr, og hefir átt fjár-
hagslega í vök að verjast, þar sem það hefir orðið að greiða
skaðabætur nær því á hverju ári. Er enginn efi á að félag þetta
er þarfleg stofnun, og er því vonandi að það eigi langt líf fyrir
höndum, og að því smásaman auðnist að geta aukið fastasjóð
sinn, sem nú er 150 kr.
Sundkensla hefir hér verið í nokkur ár; hefir hún notið
styrks úr landssjóði og sýslusjóði, en fór ekki fram síðastliðið
sumar; má það telja illa farið, ef kensla þessi verður lögð niður,
því það má oft verða til að bjarga lífinu að kunna sund; auk þess
er sundnám holl og gagnleg hreyfing; sjóböðin hreinsa hörundið
og herða líkamann, veita honum meðal annars meira mótstöðu-
afl gegn ofkælingu.1 Einn hinna elztu manna hér á landi, Páll
sagnfræðingur Melsted, baðaði sig að sögn í Bessastaðatjörn, þá
er hann var í skóla, þangað til tjörnina fór að leggja á haustin.
I félagi með honum við baðferðir þessar var Konráð Gíslason,
síðar háskólakennari, sem komst á níræðisaldur. Er eigi ólíklegt
að langlífi þeirra beggja sé að einhverju leyti að þakka herðingu
líkamans á ungum aldri við sjóböðin köldu.
Loks skai getið hér um eina framför, brunnana stein-
límdu, sem nú eru komnir á flest heimili. Er í þá safnað regn-
vatni af járn- og tréþökum, svo að nú verður sjaldan vatnsskortur
hjá fólki, en áður var hann algengur. Fyrsti steinlímdi brunnur-
inn var gerður á 8. tug aldarinnar. Hér er aðeins einn brunnur,
sem aldrei þrýtur vatn í. Hann er grafinn í sandi nálægt sjó;
vatnið í honum er því síað sjóvatn ísalt á bragð. Hér er ekk-
1 Sundkensla fór hér aftur fram sumarið 1901.