Eimreiðin - 01.09.1902, Side 63
223
sína úr hendi Johnny’s. »Kærðu þig ekki um að fylgja mér til
dyra. Sittu kyr, þar sem þú ert. Eg er að fara. Parna eru
þeir.«
Pað var barið varlega að dyrum. Dick Bullen lauk fljótt upp,
bauð húsráðanda góða nótt með því að kinka kolli og hvarf út
um dyrnar. Gamli mundi hafa fylgt honum til dyra, ef höndin
hefði ekki enn þá haldið óvitandi í ermi hans. Honum hefði veitt
létt að taka hana burt: Hún var smá, kraftalítil og horuð. En
ef til vill einmitt af því, að hún var smá, kraftalítil og horuðT
breytti hann ætlan sinni, dró stólinn nær rúminu og hvíldi höfuð
sitt á honum. Meðan hann sat þannig varnarlaus, komu áhrif
þess, er hann hafði áður drukkið, að óvörum yfir hann. Ummörk
herbergisins flögruðu og urðu óskýr fyrir augum hans. Pau skýrð-
ust aftur, urðu svo óskýr að nýju, hurfu og skildu hann eftir —
sofandi.
Á meðan hafði Dick Bullen lokað hurðinni, og stóð nú hjá
félögum,;sínum. »Ertu tilbúinn?« spurði Staples. »Tilbúinn,« sagði
Dick; »hvað er klukkan?« »Yfir tólf,« var svarið. »Getur þú
gert það. — Bað eru næstum 50 mílur1 fram og aftur.« »Eg
held það,« svaraði Dick stuttlega. »Hvar er hryssan?« »Bill og
Jack halda í hana við vaðið.« »Látið þá halda henni eitt augna-
blik enn þá,« sagði Dick.
Dick sneri við og gekk hljóðlega aftur inn í húsið. í*ar log-
aði á kerti, sem rann niður, og eldurinn var að deyja. Hann sá,
að dyrnar á litla herberginu vóru opnar. Hann gekk þangað á
tánum og gægðist inn. Gamli var fallinn aftur á bak í stólinn og
hraut, fætur hans lágu jafnhátt bognu herðunum og hatturinn var
var dreginn niður fyrir augun. I þröngu trérúmi við hlið hans lá
Johnny, vafinn innan í ábreiðu. Hún huldi hann allan nema dá-
litla brún af enninu og nokkra hárlokka, sem vóru votir af svita.
Dick Bullen steig eitt skref áfram, hikaði og leit um öxl inn í
tóma herbergið. Alt var kyrt. Hann gerði fljótlega ráð sitt,
strauk með báðum höndum mikla yfirskeggið sitt til hliðar og
laut niður að sofandi drengnum. I sama augnabliki fór hrekkj-
óttur hvirfilbylur, sem hafði verið á hleri, gegnum reykháfinn niður
í eldstóna og hleypti eldinum í bjartan loga. Pá varð svo bjart.
í herberginu, að Dick flýði sneyptur og hræddur á dyr.
Pýð.
1 í sögu þessari er auðvitað ávalt átt við enskar mílur.