Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Page 21

Eimreiðin - 01.05.1906, Page 21
IOI að hann var í þann veginn að kvongast, tók lítið tiliit til þess, ætlaði að vaxa ögn og fríkka meðan hann ætti þá konu, fá hann svo. f’egar ég var 9—io ára, dó maður þessi. Það fékk mér svo mikillar sorgar, að ég hætti um stund að reyna að halda mér til, til að geta gifzt. Saga þessi er ein af því marga ótrúlega sanna. Hana segi ég til sönnunar því, að kynsleg tilhneiging barna gjörir löngu fyr vart við sig, en al- ment er álitið. Gæti tilfært margt fleira því máli til sönnunar. Rúmfatnaður okkar var þessi: Tvær undirsængur voru til. Hey í hinum fletunum. Onnur sængin var með eltiskinnsveri, hin með húð- þykku, fiðurheldu, vaðmálsveri. Innanver koddanna úr eltiskinni eða sængur-vaðmáli, ytra-ver ýmist prjónað eða úr vaðmáli. Vaðmálsrekkju- voðir og brekán yfir öllum rúmunum, engin yfirsæng. Fiður var í flest- um koddunum, fífa í sumum. Litlum fiðurkodda man ég eftir með hvítu prjónaveri, sem aldrei gat slitnað, en altaf blaknaði og harðnaði ár frá ári. Á honum svaf ég alla mína bernsku. Reiðtýgi foreldra minna voru: hnakkur, ósköp Iítill, með flosaðri sessu, yfirdekki og yfirdekks-gjörð utan um alt saman. Þófi móður minnar var, held ég, melþófi. — í’eir vandaðri voru úr ull, þófablöðin. — Ofan á þófanum hafði hún kodda, brekán þar ofan á — áklæði átti hún ekki, —- ofan á brekánið var svo þófólin látin — breið ól með hringjum og útbúnaði fyrir ístöð og gjörð — og gyrt á; síðan var hinn brekáns- endinn lagður Iaus yfir alt samau. ístöðin voru svo lítil, að fóturinn komst ekki í þau, nema tærnar, og svo stutt var ístaðsólin, að konan sat í hnipri uppi á þessu reiðveri, karlvega auðvitað, með hnén upp við brjóst. Aldrei kom móðir mín í reiðföt um æfina. Söðul eignaðist ég 15—16 vetra, var hann keyptur gamall handa mér. Hann var »drifinn«: al- klæddur látúni, mótuðu með dýramyndum og rósaflúri. Svo djúpur og víður var hann, að ég var eins og ber í ámu í honum, sökk ofan í hann upp undir hendur. Ákaflega hróðug var ég þó yfir því, að ríða í söðli; það vissi ég að var verulega fínt, samanborið við þófana; en ekki lík- aði mér þó þessi gullsöðull til lengdar, svo mikið sem hann þó gljáði, þegar sól skein á hlaupandi hreindýr undan áfjáðum veiðimönnum eftir endilangri sveifinni og alt um kring. Eg flekaði systur mína til að kaupa hann af mér; henni þótti hann gersemi, enda lofuðu hann allir. Verzlun hafði faðir minn við sama kaupmann öll mín bernsku- og æskuár; átti æfinlega inni hjá honum fáeina dali; hafði kaupmaður hann því í hávegum. Þá virðingu fanst bóndanum mjög til um. Einu sinni á ári var í kaupstað farið, enda var langt að fara, íjtigra daga ferð fram og aftur með lest. Ull og unglambaskinn var eina innleggið. Út á það var tekið alt, sem heimilið fékk af útlendum varningi. Auk kornmatar var það um mörg ár fast og stöðugt það, sem nú skal greina: 3 © af kaffi, 10 © af kandíssykri, fjögra potta kútur af brennivíni, tveggja potta tunna af kirsiberjabrennivíni eða messuvíni — hana fékk móðlr mín —, 1 © af gráfíkjum — þær fengum við krakkar, þegar komið var úr kaupstaðnum, kandísmola og svo sem spónblað úr tunnunni hvert okkar. Vasahnífur handa einhverjum krakkanum, sem sérstaklega hafði til hans unnið, 2—3 lóð af indígólit, til fjögra punda af hellulit, almnanak og ein grápappírsörk — hún átti að vera undir sendibréf, ef á þyrfti að halda — og svo blái kollhettuklúturinn hennar móður minnar. Hann var

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.