Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 8

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 8
200 HADÍUM [EIMREIÐIN verið beinlínis hættuleg heilsu manna. Sjúkdómurinn or- sakast af óeðlilegri vídd og ofvexti í æðum; valbráin er afskaplega blóðrík og orsakast af því hinn blárauði litur, sem henni fylgir. Ef blóðæxlin eða blettirnir eru stórir og djúptækir, verða þeir oft ekki læknaðir með öðru en radíum- eða Röntgengeislum. Radíum hefir þau sérstöku og einkennilegu áhrif á æðarnar, að þær rýrna, þrengjast og geta jafnvel alveg lokast; smám saman eyðast fleiri og fleiri æðar, blóðinu er þar með vörnuð rás um valbrána og þannig getur hún oft og einatt læknast að fullu og ölln. Ymsir aðrir húðsjúkdómar eru læknaðir með radíum, svo sem reformar, vörtur og hárvöxtur á óeðlilegum stöð- um; »búkonuskeggið« er ætið mjög ókærkomið og mikla raun hafa ungar og ógefnar stúlkar af því örlæti náttúr- unnar. Berklaveiki i kirtlum og hörundi (lupus) getur líka læknast af radíum-geislum. Radíum er notað til lækninga með ýmsu móti; hinn hreini radíum-málmur samlagast öðrum efnum og mynd- ar radíum-sölt, sem læknarnir venjulega nota. Líka má nota gufu þá (emanation), sem radíum gefur frá sér. Radíumduftinu er komið fyrir í gull- eða platínuhylkjum, sem venjulega eru álíka víð og gildur bandprjónn; lengd- in 1—3 centimetrar. Enn fremur er radíum stráð og fest á plötur af ýmislegri stærð og lögun. Venjulega eru að- eins fáein milligröm í hverri plötu eða hylki. Áhöldum þessum er nú komið fyrir á þá staði líkamans, sem geisla skal; getur þetta verið ýmsum erfiðleikum bundið. Má gera sér í hugarlund, að vel þurfi að vera um búið, ef sjúklingum á að vera ufit að hafa radium í munni eða koki sér í heilan sólarhring, svo ekki færist úr stað. Sænskir radíumlæknar hafa fundið góðar aðferðir til að festa radíumhylkin tryggilega og sjúklingunum að þján- ingalausu í og á líkamanum. Er það gert með því að taka nákvæm gúmmimót t. d. af munnholinu eða sárum og æxlum og bræða þar í radium-áhöldin. Krefja radíum- lækningar því talsverða æfingu og tíma af hendi lækn- isins.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.