Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 24
216
KOTLUGOSIÐ 1918
[EIMIiEIÐIÍí
Þykt öskulagsins 0,04 millimetrar. — En seinna féll hér
miklu meiri aska. Einkanlega var hér mikið öskufall þann
30. okt. Þá var landsunnan stórviðri með miklu ösku-
regni; varð þá svo dimt, að vart hjó út í Örfirisey og
illverandi úti, því augu, nef, munnur og eyru fyltust af
dusti. Mun þá hafa fallið hér talsvert meiri aska en þann
13., en vegna ofsans var ilt að safna öskunni svo hægt
væri að mæla hana. — Að morgni hins 31. okt., frá kl_
9—10, hlóð hér niður mikilli logndrífu. Af því eg sá að
töluvert mistur var í loftinu — leifar frá deginum áður —
og snjórinn, sem niður kom, var grár af ösku, setti eg
út disk og lét fenna á hann meðan élið stóð, bræddi
síðan snjóinn og lét vatnið gufa upp. Öskunni, sem eftir
varð á diskinum og huldi hann alveg, safnaði eg vand-
lega saman. Af 416 fersentimetra stórum fleti reyndist
hún 35 sentigrömm. Samsvarar það 84 grömmum á 1
fermetra eða rúmlega tvöfalt meiru en féll hér sunnudag-
inn 13. okt., því þá varð öskulagið 0,04 úr millimetra,
en eftir þessari athugun 0,084 mm., ef eðlisþyngdin er 1_
Enginn vafi er á því, að mikið meiri aska hefir fallið
hér en þetta, 1 alt.
Áœtlun um öskumagnið úr Kötlugosinu 1918. (Sjá uppdr. 2).
Hin reiknuðu svæði frá Kötlugjá og meðalíjar- lægðir þeirra frá upp- varpi Flatarmál svæðanna Aætlun um þykt ösku- lagsins Rúmtak öskulags- ins á 1 ferkm. Rúmtak öskunnar á svæðinu
kilómetrar ferkm. mm. tenm. tenm. e. tonn
Hringflötur I. á uppdr. 2,5 78,54 1000 1 000 000 78 540 000
1. kragi II. 15 1 884,90 100 100 000 188 496 000
2. kragi III. 62,5 29 452,50 10 10 000 294 525 000
3. kragi IV. 150 94 248,oo 0,5 500 47124 000
4. kragi V. 350 659 736,oo 0,1 100 65 973 600
5. kragi VI. 750 2 356 200,oo O.oi 10 23 562 000
Samtals 3 141 600,oo 698 220 000
Skýrslan um öskumagnið og uppdráttinn nr. 2 yfir stærð
svæðanna, sem reikningurinn byggist á, þurfa tæplega