Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 33

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 33
EIMREIÐINl BISMARCK FURSTI 225 undir stjórn slíks einvaldsherra sem Friedrich III. var. Regar hann dó, var hún dæmd til að lifa í skugganum. í Pýskalandi hefir það sennilega verið almenna skoðunin, að pað hafi verið sú heppilega rás viðburðanna, að sá af fyrnefnd- um tveim mönnum, sem var svo stórum mikilhæfari, að ekki varð deilt um, fékk leiðsöguvaldið yfir örlögum pjóðar sinnar og naut hjálpar hinnar undursamlegustu hepni. Pað er orðinn trúarlærdómur, sem 2600 »Oberlehrer« (yfirkennarar) og ótal margir aðrir kenna í Fýskalandi, að Pýskaland hafi, í öldungis óvenjulega ríkulegum mæli, notið aðstoðar forsjónarinnar á stjórnarárum Bismarcks. Því varð ekki á móti mælt, að hann hafði hamingjuna með sér í öllum sínum striðum. Leikslokin sýndu alt af, að hans stjórnmálastefna hafði rétt fyrir sér. Hann var — að pví er virtist — sá, sem lengst sá fram í tim- ann, og svo að segja með yfirnáttúrlegum viljakrafti hafði lag á að sveigja stjórnandann eftir sínu áliti. Jafnvel nú á heims- styrjaldarinnar tímum er snilli Bismarcks sungið lof og dýrð — auðvitað á kostnað eftirmanna hans — af mikilsmetnum lög- fræðingi í Vesturheimi, prófessor Munroe Smith. Hið sama hefir, hér hjá okkur, prófessor Gerhard Gran gert í mörgum fyrir- lestrum. Alt til peirrar stundar, að pessi ófriður braust út, virtist — að minsta kosti i Pýskalandi — svo, sem Bismarck hafi haft heimsviljann sér meðmæltan. Hvílíkrar hafningar hefir ekki pýska pjóðin verið sjónarvottur að á tímabilinu frá 1862 til 1890! Og frá 1890 til 1914! Auðvitað. En athugandi er, hvort sumar hliðar hins mikla táps pýsku pjóðarinnar hafa ekki orðið fyrir vaxtarkyrkingi og hvort hinn ytri mikilleiki ekki hefir verið of dýru verði keyptur. Hinn mikli efnahagsvöxtur og menningarafleiðingar hans mundu jafnvel án Bismarcks hafa getað náðst með hagnaðinum af pýska tollsambandinu og hag- nýting á járn- og kolafjársjóðum landsins, sem var að pakka fyrirmyndarfordæmi ensks vélaiðnaðar og að miklu leyti lika verslunarfrelsi Breta eftir 1850. Þar við bættist leiðarfriður á öllum höfum, sem sama eypjóð (Bretar) hélt uppi á sinn kostn- að — frelsi á hafinu á friðartímum fyrir allar friðsamar pjóðir. Það, að Pýskaland á dögum Bismarcks komst inn í vélaöld- ina og — að rniklu leyti eftir fyrirmynd Englands — tók að breyta bændalýðnum kjarngóða, sem fór fjölgandi, í iðnaðar- og námumenn, pað er sögulegt fyrirbrigði, sem aðallega á rót sina í alt öðrum skilyrðum en snilli Bismarcks. Bandaríkin í Norður-Ameríku og hin smávaxna Belgía hafa á sama timabili lifað pað, að proskast á líkan hátt. Þeim löndum, sem stór- auðug voru að kolum og járni, hlotnaðist, einkum frá mið- biki nítjándu aldarinnar, efnahagslegur vitjunartími, sem á sér 15

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.