Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 46

Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 46
238 EINAR JÓNSSON OG [EIMREIÐIN hann Einar að taka þátt í þessari samkepni. Er og eigi ólíklegt, að dr. H. G. Leach, ritstjóri timaritsins American- Scandinavian Review, hafi átt þátt í því, að Einar réðst i að keppa. Hann (þ. e. dr. Leach) var þá á ferð í Kaup- mannahöfn og kyntist þar Einari og verkum hans, varð stórhrifinn af þeim og hefir haft hinn mesta áhuga á því æ síðan, að gera hróður Einars sem mestan vestan hafs og austan. Víst er um það, að Einar réðst í að gera uppkast að mynd í þessu skyni. Var hann þá staddur hér heima, og sendi myndina með skipinu Hermod, er fór vestur að tilhlutun landstjórnarinnar. En svo illa tókst til, að upp- kast þetta skemdist og bjó Einar þá til aðra mynd stærri og sendi hana vestur 1916. Var hún einróma valin og Einari boðið að koma vestur og vinna þar að mynd- inni sjálfri. Brá Einar þá við og fór vestur um haf vorið 1917 og hefir starfað þar síðan, þar til nú fyrir skemstu. Myndin mun hafa verið afhjúpuð nú í síðastliðnum mánuði. Svo sem kunnugt er, var þorfinnur Karlsefni sá, er fyrstur festi bygð í Ameríku allra Norðurálfumanna. f*or- finnur var ættaður vel, því að þeir voru langafar hans báðir Þórðarnir: Þórður Gellir og Höfða-Þórður, er voru með mestu höfðingjum. Sjálfur var Porfinnur hinn hug- prúðasti farmaður og gæfumaður mikill. Ekki hélst hann þó við fyrir aðsúg skrælingja og göldrum þeirra, heldur fluttisl heim til ísiands og varð þar manna kynsælastur. Geta menn lesið um Þorfinn Karlsefni í sögu hans, sem er mjög skemtileg og vel rituð. Eftir myndinni að dæma hefir Einari tekist afburðavel með mynd Karlsefnis. Svipur hans er ekki smáfríður, en djarfmannlegur og frjálslegur. Og hann styðst við vopnið mikla og máttuga arma. Línur myndarinnar eru fastar og sérstaklega er skildinum aðdáanlega fyrir komið á herðum heljarmennisins og gefur öllu mýkt og fegurð. Listamanninum og þjóð vorri er mikill sómi að þess- ari standmynd Karlsefnis í skemtigarðinum í Phila- delphiu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.