Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 47
EIMREIÐINI
PORFINNUR KARLSEFNI
239
Islendingur fann Ameriku fyrstur. Annar íslendingur
festi þar bygð fyrstur. Og þriðji íslendingurinn, Snorri
Þorfinnsson, fæddist þar fyrstur hvítra manna.
t*ví var eigi nema rétt, að íslendingur væri látinn reisa
varða Karlsefnis, fyrsta landnámsmannsins, og gott að sá
skyldi til vera, sem svo vel var til þess fær.
M. J.
Töfratrú og galdraofsóknir.
Eftir Magnús Jónsson.
IV.
Blómaöld galdratrúarinnar.
A. Galdrar og galdrafólk.
Hinn nafnkunni galdraberserkur Benedikt Carpzow skiftir
galdramönnum í 5 aðalflokka eftir því hvers eðlis og hve
þungar sakir á þeim hvíla.
í fyrsta flokki eru þeir, sem sjónhverfingar geta gert
og gera, hylja hluti og láta aðra sjást, sem ekki eru til í
raun og veru.
í öðrum flokki eru þeir, sem segja fyrir óorðna hluti
eftir gangi stjarna og innýflum dýra.
í þriðja flokki eru þeir, er hafa um hönd óguðlegar
klausur, skaðvæn tákn, heitingar, drykki og annað æti,
sem búið er til með göldrum, úr ýmsum jurtum, og gera
með öllu þessu mönnum og fénaði tjón.
í fjórða flokki eru sjálfar galdrakonurnar, þær alkunn-
ustu. þær valda óveðri, stormum, hagléljum og þrumum.
Þær leiða dauða og tortíming yfir menn. Þær koma á mót
með djöflinum, ríða þangað á kústum, eldskörungum og
öðrum slíkum reiðskjótum, og á þeim mótum leggjast
þær með honum.