Eimreiðin - 01.10.1919, Page 5
EIMREIÐINl
RADIUM
197
vegna hinnar sífeldu geislunar, sem út frá því stafar, og
hafa eðlisfræðingar reiknað út, að geislakraftur radiums
þverri um helming á 1800 árum.
Geislarnir eru ekki allir sama eðlis; það eru venjulegir
ljósgeislar heldur ekki, sem sýna má með því að hleypa
þeim gegnum þrístrent gler, er skilur þá sundur í ýmis-
lega lita geisla. Radíumgeislarnir eru greindir sundur
með segulmagni og með því að hleypa þeim gegnum
misjafnlega þykkar málmplölur. Með þessum aðferðum
hafa fundist þrennskonar radíumgeislar, alfa-, beta- og
gammageislar. Hinir síð-
ast töldu orsakast af
ölduhreyfing í ljósvak-
anum. Munurinn á þess-
um ýmislegu geislum er
afarmikill og fáist menn
við lækningar með ra-
díum, er áríðandi að
hafa fullan kunnugleika
á þessum ýmsu geisla-
flokkum. — Einkenni
gammageislanna er, að
svo má heita að þeir
bruni gegnum alla hluti,
sem á vegi þeirra verða;
þeir komast gegnum
málma og jafnvel þumlungs þykkar blýplötur fá ekki
með öllu stöðvað rás þeirra. Öðru máli er að gegna um
hina geislana; alfa-geislarnir komast t. d. ekki gegnum
pappír eða baðmull og er því auðvelt að »sía« þá frá
hinum geislunum; þetta nota menn sér við radíum-lækn-
ingarnar.
Eg gat þess í upphafi, að radíum gæti valdið breyt-
ingum á holdi manna og dýra og urðu menn þess fljótt
varir. Röntgengeislar og radíum hafa mjög svipuð áhrif
á hörundið. Hið fyrsta, sem vart verður, er roði og hár-
los. Mjög algengar eru skemdir á fingrum hjúkrunar-
kvenna og lækna, sem við radíum fást, ef ekki er gætt
4. mynd.
Eftir radíum-lækninguna.