Eimreiðin - 01.10.1919, Blaðsíða 28
220
KOTLUGOSIÐ 1918
IEIMRE1ÐIN
gagns eða fróðleiks seinni tímum. Hlaupsvæðið sjálft
þurfti að rannsakast miklu betur en gert var. Mælingar
og visindalegar athuganir þurftu að fara fram hið fyrsta
að hægt var á öllu svæðinu: upptökum gossins í jöklin-
um og lögun hans, jökulröndinni og landslagi öllu í kring-
um hana, sem snýr að Mýrdalssandi, svo og öllum sand-
inum til sjávar. Og þetta þurfti því fremur, sem kortablöð
landmælingamannanna ná ekki, enn sem komið er, nema
upp í jökulröndina að sunnan, en að austanverðu við
jökulinn, svo og jökullinn sjálfur er enn ómældur. í sum-
ar hefði því verið bráðnauðsynlegt að mæla og kortleggja
allan Mýrdalsjökul og alt það svæði í kringum hann, sem
hlaupið fór um. Þess lengra sem líður frá gosinu, þvr
meir afmást öll spor og menjar hlaupáhrifanna og að þvr
skapi verður óhægra að gera sér rétta grein fyrir hlaup-
inu í heild sinni.
Eins og ég þegar hefi tekið fram, er, því miður, hér litlt*
hægt við að bæta. En af því mig hefir langað til að setja
mér þetta mikilfenglega náttúrufyrirbrigði — Kötluhlaupið
— sem greinilegast fyrir sjónir og ég veit að ýmsum
muni ekki þykja það ófróðlegt, læt ég hér með fylgja
dálítið kort yfir hlaupsvæðið til frekari skýringar. Að
sönnu vantar á það öll upptök hlaupsins af ástæðum,
sem ég tók fram, en ei að síður ætti það að geta orðið
til nokkurrar skýringar. A kortinu sést rönd Mýrdals-
jökuls, MýrdalsQölI öll, mótuð hæðalinum með 100 m.
millibili og Mýrdalssandur í sjó fram með 20. m. hæða-
línum, allar ár og helstu bæir. Enn fremur eru hlaup-
svæðin, hið vestra og eystra, sýnd með örvaroddum, eftir
því, sem skýrslurnar og kunnugir menn hafa upplýst mig
um. Má búast við hér sem fyr, að deila megi um ýmis-
legt í smáatriðum og er það bein afleiðing af því að ná-
kvæmar rannsóknir vantar.
Allur Mýrdalssandur, frá Höfðabrekkufjöllum austur að
Kúðafijóti, frá sjó og upp í jökul og austur í Hólmsár-
ósa er alt að 600 km.2 að flatarmáli, þar með talið Álfta-
verið. En vegalengd frá Kerlingardalsárósum austur í Kúða-
fljótsós er 35 km. og frá sjó upp að Hólmsá 25 km. Frá