Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 11

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 11
EIMREIÐIN! 203 Kitlur. Saga eftir Svipdag. Það var kallað svo, að eg væri kaupamaður í Tungu, en sjálfum fanst mér að eg væri þar í heimboði. Sonur bóndans var bekkjarbróðir minn og virktavinur. Hann setti mig niður hjá föður sínum, svo sem í sinn stað, því hann ætlaði að ferðast um sumarið. Eg réðst í hey- skapinn meir af forvitni en kunnáttu, og samdi svo um, að eg væri sjálfráður um vinnuna en bóndi um kaup- gjaldið. F*etta var sólríkt sumar, en eg var átján ára, og sól- skinið tók mig þeim tökum, að mér varð nautn að vinna og keppast við. Eg teygaði andvarann eins og höfugt vín, og eg tók fastara á orfinu en þörf gerðist. Héraðið og fólkið var mér ókunnugt. Dalurinn var víð- ur og fagur. Beggja vegna há, snarbrött fjöll, en fyrir dal- botninum lágar heiðar. Þar tóku við endalaus öræfin. Þaðan kom hann eins og hyldjúpt, hægfara fljót, þessi sólhreini blær, sem gerði mig drukkinn. Hugurinn leitaði á vindinn, langt fram um öræfin og auðnirnar. Eg fann grösuga hvamma, álfakirkjur og undarlega staði, þar sem enginn menskur maður hefir stigið fæti sínum. Og yfir þessum hugarlöndum var nýtt og annarlegt yndi, eins og þegar eg var barn milli vita, og var að hugsa um hvernig væri hinumegin við Múlahvarfið. Þetta skrítna algleymi, sem vitjaði mín aftur frá barnæsku minni, varð mér dýr- mætur fögnuður. Við vorum fimm við heyskapinn, auk bónda. Hann hafði tvær kaupakonur, vinnukonu og vinnumann. Vinnumaðurinn var ungur maður. Hann var aurasæll og rikastur allra vinnumanna í dalnum. Allir keptust um að hafa hann, því hann var aldrei óvinnandi og hverj- um manni vandvirkari. En hann fór að öllu hægt og fast.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.