Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 22

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 22
214 KOTLUGOSIÐ 1918 [EIMREIÐIN að 8 kílómetrum í raun réttri, yfir uppvarpi Kötlu. Dálagleg keila, sem er 12—14 km. á hæð með alt að 8 km. breiðum grunnfleti! Ekkert undarlegt þó þau öfl, sem hér hafa verið að starfi og sent gátu þennan óhemju mökk upp í loflið, hafi raskað jafnvæginu í kringum sig. Öskumagnið. Það er næsta örðugt að gera sér nokkra rétta hugmynd um þau ógrynni af ösku, sem ruðst hafa upp úr Kötlu(gjá) þessa 24 daga er gosið varði. Þó má af fjölda frásagna úr ýmsum héruðum landsins, draga fram mikilvægar ályktanir. Eg hefi kynt mér flestar þær skýrslur um gosið, sem út komu í fréttablöðunum um þær mundir, og auk þess haft spurnir af fólki víðsvegar af landinu. Hefði verið ástæða til að safna ýmsu af þessu saman og birta það í einni heild til fróðleiks seinni tímum. Hér er ekkert rúm til þess. En út úr þessum athugunum hefi eg samt reynt að draga ályktanir um þykt öskulagsins á ýmsum stöð- um og reikna eftir því fyrirferðina. Eg geri ráð fyrir að enginn taki þetta samt svo, að hér sé um alveg áreiðan- legar tölur að ræða, því grundvöllurinn undir reikningnum er svo óákveðinn. Til þess að fá eitthvað ábyggilegt hefði þurft á mörgum stöðum beinlínis að vigta öskuna af ákveðnu flatarmáli í hvert sinn þegar hún féll. Þarf til þess dálitla þekkingu og nokkra nákvæmni, ef á því má byggja. Eins og gefur að skilja hefir askan farið ákaflega misjafnt yfir, sumstaðar hefir fólk orðið lítið vart við öskufall þegar dregið hefir langt út á land, en aftur hefir talsvert lag lagst yfir sum fjarlæg héruð, gert snjó grásvartan. — Askan berst í loftinu með vindinum og hrekst alla vega, en yfirleitt er lögmálið fyrir öskuregninu það, að hið grófasta fellur fyrst niður, næst gýgnum, hið smágerðasta berst lengst. Langmest fellur niður í kringum eldstöðv- arnar; þar verður öskulagið þykkast og smáþynnist svo þegar lengra dregur frá. Hin smágerðasta aska getur farið ótrúlega langt, jafnvel til annara landa og heimsálfa. Sbr. Þ. Th. Eldreykjarmóðan, í afmælisriti Kaalunds.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.