Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 26

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 26
218 KOTLUGOSIÐ 1918 [EIMREIÐIN frekari skýringa. Þó slcal það tekið fram, að eg hefi enn ekki heyrt neitt um öskufall á ysta svæðinu (VI.), en líklegt er, að svona stórt öskugos hafi borist alla vega langt út fyrir ísland, sem oft fyr, en askan af því svæði er tiltölulega mjög lítil á móti hinum ósköpunum, eða að eins V30 hluti allrar öskunnar, af 2/3 aHs Aatar- málsins. Jafnvel þó að útreikningur öskumagnsins hafi á þenna hátt verið ákveðinn í tölum, má búast við að almenn- ingur geri sér litla hugmynd um þær talnastærðir, sem fengist hafa á þenna hátt. 700 miljónir teningsmetra eða tonna eru engar hversdagstölur og því erfitt að gera sér rétta grein fyrir þeim. Skiljanlegri yrðu þær, ef eitthvað, sem maður þekkir og hefir fyrir augum, er til saman- burðar. Ef allri öskunni væri t. d. hlaðið upp á einum ferkiló- metra á jafnslétlu, yrði hún 700 metra hár stöpull. Drag- ist hún jafnt upp i ferstrendan topp (píramída) frá sama grunnfleti, yrði hún þrisvar sinnum hærri eða 2100 m. Sá toppstrendingur yrði rúmlega 7 sinnum hærri en Heimaklettur í Vestmannaeyjum, nærri 5 sinnum hærri en Látrabjarg, meir en 2falt hærri en Esjan og hér um bil jafnhár Öræfajökli. Sjá sk57ringarmyndina. — Væri öskunni dreift jafnt yfir alt Seltjarnarnes, utan frá Gróttu og inn í Elliðaár- og Fossvoga, um 20 km.2, yrði sú á- breiða um 35 metrar á þykt og næði þá t. d. 7 metra upp fyrir hanann á húsi Natan & Olsens hér í Reykjavík- En að eins 7 millimetrar á þykt yrði askan, ef hún hefði dreifst jafnt um land alt. Fannig má gera sér þessar háu tölur skiljanlegri, ef miðað er við eitthvað, sem allir þekkja, svo hugurinn geti hamið þær, en ætíð verður slíkur samanburður eitt- hvað hjáróma efninu, en er að eins ætlaður til skýringar og leiðbeiningar, líkt og vegvísar í þoku. Getur því orðið bæði til. uppbyggingar og ánægju, enda má einlægt breyta til með skýringarnar; þar verða engin takmörk sett. Ef fjölkyngismenn þessara tíma væru ekki ver að sér en Sæmundur fróði eða Eiríkur á Vogsósum, gæti máske komið

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.