Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 30

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 30
222 KOTLUGOSIÐ 1918 lEIMliEIÐINf Blautukvísl. Úr því hlaupi myndaðist Kötlutangi fram af Hjörleifshöfða. Er hann merktur á kortinu (sjá síðar). Eystra hlaupið, sem takmarkaðist að mestu af eystri bökkum Kúðafljóts og hraununum í Meðallandinu, hefir flóð 3'fir miklu stærra svæði eða 250—300 km.2 Miðsand- urinn eða svæðið frá Blautukvísl og nokkuð austur fyrir miðjan sandinn hefir víst að mestu orðið laus við hlaup- ið. Hafursey og sandöldurnar austur og suður af henni hafa hlíft þar. Kötlutangi. Land það, fram af Hjörleifshöfða, sem myndaðist við Kötluhlaupið 12. okt. 1918, hefir verið geysilega stórt. Eftir skýrslu Guðgeirs Jóhannssonar, kennara í Vík, heflr sjávarströndin vaxið fram alt að 4 km. þar sem hún gekk lengst út, vestur og suður af Hjörleifshöfða. Því miður get ég ekki gert mér fulla hugmynd um hve langt austur með landaukinn hefir náð, en eftir fréttum frá björgunar- skipinu Geir mun láta nærri að ströndin hafi gengið tölu- vert fram alt austur fyrir Hjörleifshöfða eða svipað því, er ytri deplalínan sýnir á uppdrættinum yfir hlaupsvæðið. Þetta nýja land, sem nefnt var Kötlutangi, hefir þá, rélt eftir hlaupið, ekki verið minna en 24—30 km.s Og hafi þar orðið land, sem togarar áður voru að veiðum, sbr. frá- sögn Kjartans Markússonar í Hjörleifshöfða (G. J. Kötlu- gosið 1918, bls. 27.), hefir rúmtakið ekhi getað verið minna en 200—300 milj. ten.m., sem borist hefir í sjó út. Eftir skýrslu Gísla Sveinssonar sýslumanns hefir Kötlu- tangi mikið rýrnað þegar frá leið. 4—5 mán. eftir hlaupið var hann ekki meira en 1000 faðma (tæpl. 2000 m.) fram frá hinni gömlu strandlínu og með tímanum bjaðnar hann enn meira. Sam. Eggeitsson. Myndirnar í grein þessari eru liinar fyrstu, sem ættar (d. ætset) liafa verid- hér á landi, en örkin varð að biða á annan mánað eftir þeim, og er það þvi að kenna, að þetta hefti komst ekki út i kyijun okt. eins og til stóð.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.