Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 35

Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 35
EIMREIÐIN] BISMARCK FURSTI 227 nauðungaryíirrád yfir slafneskum pjóðum. í stað þess að halda peim, gegn viija peirra, fjötruðum við sig, hefði verið unt aö tengja þær við sig sem frjálsar sambandsþjóðir með göfugri og framsýnni stjórnmálaaðferð. Ef Bismarck hefði ekki komið til sögunnar, mundu aðrir snjallari Pjóðverjar hafa getað öðlast rúm í dagsbirtunni (»plads i solen«) og borið gæfu til að vinna fyrir hina miklu og frjáls- legu sambandspólitik Kants. Því að eitt hlýtur að vera hverjum manni ljóst, sem sjá vill sannleikann, sem sé það, að sigurför Bismarcks í Þýskalandi hefir vikið anda Kants og hinnar miklu menningaraldar frá völdum. Enginn nýr Lessing eða Herder, enginn Goethe eða Schiller, enginn Bach eða Beethoven, og meira að segja enginn Wagner hefir vaxið upp í Þýskalandi Bismarcks. Richard Wagner hafði, í öllu verulegu, mótað tónsnildaranda sinn áður en Bis- marck varð ráðherra árið 1862. Tónleikurinn »Lohengrin« var leikinn þegar árið 1850, og hér um bil um sama leyti var Wag- ner önnum kafinn að undirbúa verk sín »Niebelungenring«, »Tristan og Isolde« og jafnvel »I'arsifal«. Ekkert nýtt og fram- úrskarandi tónskáld liefir gefið anda Bismarcks-tímabilsins vængi með því að breyta því i hljómlist. Ekki hefir Þýskaland heldur á þessu timabili eignast neitt nýtt stórskáld, engan nýjan afburða heimspeking, né neinn nýjan aíburða sagnafræð- ing. Flest vísindi hafa blómgast og vísindalegum verkum hefir verið eindæma vel fyrirkomið. En nokkuð af hinum háfleyga anda frá tímum Kants og Beethovens er liorfið á braut. Sann- leikurinn er sá, að Kant og Beethoven voru báðir einna næst því að vera lýðveldissinnar, gersamlega gagnstætt kúgunaranda Bismarcks. Þeir voru báðir það, sem valdbafar nútímans og orðabelgir (»talerör«) þeirra mundu kalla hugveiklaða friðar- draumsjónamenn, »skýjaglópa«, fjarstæðuseggi. I níundu sym- fóníu sinni veitti Beethoven með ógleymanlegum tónum »Ode an die Freude« eftir Schiller, fulltingi sitt — þeirri gleði mann- anna, sem á að drotna á jörðunni, þegar »allir menn verða bræður«. Og Kant hinn mikli lét, í sinni »pólitisku erfðaskrá«, í ljósi þá djúpskygnu sannfæringu sína, að landvinningahernað- ur væri glæpsamleg heimska frá þeirri stundu, að mönnunum hefði orðið það ljóst, að í stað hans gæti komið frjálst sam- band þjóðanna, heilagur hringur til verndar sameiginlegum lög- um og rétti. Þýskaland Kants pg Beethovens hefir orðið að þoka fyrir Þýskalandi Bismarcks og Treitschkes. Eg hefði kosið, að pró- fessor Gran, í fyrirlestrum sínum um Bismarck, hefði bent á það tjón, sem þýska þjóðin, þrátt fyrir alt ytra og innra lán, hefir beðið á timum Bismarcks og eftirmanna hans. Það var *15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.