Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 51

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 51
EIMREIÐIN] TOFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR 243 skyldi alt enda, og allir illir andar yrðu þá að fara í kvalastaðinn. Þess vegna var um að gera fyrir Satan að ná sem flestum sálum, svo að talan yrði sem seinast komin, því hann hefir auðvitað þekt málsháttinn, að frestur er á illu bestur! Það voru þó fleiri en Sæmundur fróði, sem höfðu lag á að hrekkja Kölska við og við og láta hann verða af kaupinu. T. d. átti hann að hafa hjálpað til að byggja dómkirkjuna í Aachen gegn því, að hann fengi þann íyrsta, sem inn í hana kæmi. En þá tóku menn úlf og köstuðu honum inn í kirkjuna.1) En slík skoðun hvarf auðvitað jafnótt og galdratrúin magnaðist, því að þetta hefði verið skoðað sem mesta léttúð. Þá gátu menn ekki losnað úr samningi með öðru móti en því, að láta djöf- ulinn fá hóp sálna í staðinn, svo að hann græddi á skiftunum. Langoftast fór samningsgerðin fram á galdrahátiðinni, sem haldin var á ári hverju. Er þar víðfrægust hátíðin á Blocksberg. Blocksbergs-ferðirnar voru einn aðalviðburð- urinn í galdalífinu, og skal því hér farið um það nokkr- um orðum. Oftast var hátíðin haldin á Valpurgisnótt, 1. maí. Fylgipúkinn sá um það, að ekki væri erfitt að komast, þó að löng leið væri. Galdrakonan (eða maðurinn) smurði sig vandlega með galdrasalvi, sem oftast var soðið úr ungbarnahjörtum og leðurblöðkublóði, og að því loknu var hún fær um að ríða gandreið um loftið á allskonar dauðum hlutum. »Upp, upp og út í buskannk hrópaði hún, og um leið fiaug hún af stað, oftast upp í gegnum strompinn. Stundum kom það líka fyrir, að púkinn sjálf- ur gerðist reiðhestur, en sjaldan var það. En ekki mátti líta um öxl eða hika sér, því að þá var bráður bani vís. Þetta flug í nornunum gátu menn því fremur hugsað sér, sem það var alkunn hugmynd framan úr heiðni. Guðirnir fóru í loftinu yfir láð og lög, Óðinn á Sleipni, Þór í reiðinni með hafra sína og Freyja með kettina. 1) Sbr. söguna uin Sæmund fróða og Kölska í Þjóðsögum Jóns Arnasonar I. bls. 487. 16

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.