Eimreiðin - 01.10.1919, Side 53
EIMREIÐIN] TOFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR
245
góður eftir. Með þessu dufti deyða þeir óskírð börn, sem
þeir svo grafa upp og nota í brugg sitt. Foreldrarnir
halda svo að börnin hafi dáið eðlilegum dauðdaga. Skirð
börn geta þeir ekki notað, nema drottinn leyfi það sér-
staklega. Þetta um ungbarnadrápið er vafalaust trú, sem
sprottin er upp af hinum mikla ungbarnadauða, sem var
til skamms tíma algengur.
Galdrahyskið fær svo með kunnáttu sinni geigvænlegt
vald á jörðunni. Þeir, sem eru orðnir útlærðir og komnir
í félagsskapinn, geta t. d. galdrað allskonar hluti inn í
menn, gierbrot, nálar, bursta og annað slíkt. Þeir geta
vakið ást eða hatur eftir vild sinni. Þeir geta gert hjóna-
bönd barnlaus, og jafnvel breytt kynferði fólks, gert pilta
að stúlkum og stúlkur að karlmönnum, þegar minst varir,
og má nærri geta, hvernig slíkt getur komið sér! Húsdýr
drápu þeir í hrönnum. Létu eigur manna hverfa og skemm-
ast. Þeir létu sína eigin akra spretta ágætlega, en alla
akra í kring skrælna. Ef þeir vildu gera einhverjum skaða,
þá þurftu þeir ekki annað en ná til sín einhverjum hlut,
sem sá átti. Þá eru gjörningaveðrin alkunn, því að það var
eitt aðalstarf þeirra, að gera ill veður. Voru til þess
ýmsar aðferðir. Ein var sú, að grafa dálitla holu í jörð-
ina, liella þar í vatni. Síðan var dálítið af sóti hrært
saman við, og þuldar galdraformúlur yfir. Loks var öll-
um þessum graut þeytt upp í loftið, og þá skall veðrið
óðara á. Auðvitað hefði af þessu mátt draga þá ályktun,
að galdrahyskið hlyti að baða í rósum hér í lífi, þegar
það bjó yfir öllum þessum hulda mætti til þess að koma
vilja sínum í framkvæmd. En það var þó ekki. Að jafn-
aði var það fátækt fólk og lítils megnugt, þó að auðvitað
væri innan um ríkt fólk og af góðum ættum. Enginn var
alveg öruggur fyrir galdraákærum.
Það leiddi auðvitað af undirrót galdranna og upphafi,
að þeir hlutu ávalt að leiða til einhvers ills. í sjálfu sér
höfðu galdramennirnir sama máttinn til þess að gera gott
eins og ilt, en þar var sá hængur á, að djöfullinn gaf
ekki leyfi sitt til þess. Var mikið um það deilt af vís-