Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Blaðsíða 30
30
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1982.
Andlát
Guöríöur Sæmundsdóttir, Mjóuhlíö 14,
andaðist aö heimili mínu, Hellulandi 8,
föstudaginn 3. september.
Margrét Kristjana Steinsdóttir, Lang-
holtsvegi 3, veröur jarösungin frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 8.
september kl. 13.30.
Sigurður Ámason, Hofteigi 16, áöur bú-
settur í Vestmannaeyjum, sem
andaðist 1. september, veröur jarö-
settur 8. september frá Laugames-
kirkjukl. 1.30.
Þorsteinn Þorleifsson, Álfhólsvegi 84
Kópavogi, veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 8.
september kl. 15. Jarðsett veröur í
Gufuneskirkjugaröi.
Hjörtur Gunnarsson, Aöalgötu 6 Kefla-
vík, veröur jarösunginn frá Kefla-
vikurkirkju fimmtudaginn 9.
september kl. 14.
Ari Þorsteinsson fyrrverandi leigubíls-
stjóri verður jarösunginn frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 9. september
kl. 13.30.
Tilkynningar
Kvennadeild Slysavarna-
félags íslands
heldur sinn fyrsta fund fimmtudaginn 9. sept.
kl. 20.00. í húsi S.V.F.l. við Grandagarö.
Undirbúningur hlutaveltunnar á dagskrá.
Áríöandi aö konur mæti vel.
Flómarkaður hjá
Hjálpræðishernum
7. og 8. september verður Hjálpræðisherinn
með flóamarkað i Hjálpræðishershúsinu að
Kirkjustræti 2. Mikið úrval af ódýrum
fatnaöi.
Lyklakippa og flauta
fundust
1 síðustu viku fann ung blaðburðarstúlka
lyklakippu með 8 lyklum, þar á meðal bil-
lyklum, á öldugötunni í vesturbænum. Einnig
fann hún Jamaha flautu, svarta aö lit, á
Hagamelnum. Upplýsingar í sima 18030.
I gærkvöldi
I gærkvöldi
LYKILSTYKKIN VANTAÐI
Þegar staöiö er upp að morgni og
litið yfir þaö sem séð eöa hlustaö var
á í útvarpi og sjónvarpi daginn áöur
vill myndin stundum veröa eins og
púsluspil sem lykilstykkin vantar í.
Svo var um daginn í gær hjá mér,
litlir hlutar úr myndinni sitja eftir en
lykilstykkin vantar. Annars er þaö
nú svo aö margt af því sem gaman
heföi veriö aö hlusta á í útvarpi fellur
á þá hluta dagsins sem hlustun á út-
varpsefni fer aö mestu fyrir ofan
garð ogneöan.
Eftirmiödagssyrpurnar eru meö
besta efni útvarpsins og er til vansa
aö ekki skuli vera endurflutt jafngott
efni og þær eru. Þaö getur ekki verið
mikið mál aö taka syrpuna upp á
band og láta þaö síðan rúlla í dag-
skrárlok. Þar væru slegnar tvær
flugur í einu höggi, gott efni næði til
eyma fleiri hlustenda og dagskráin
lengdist meö litlum tilkostnaði.
Eini heillegi hlutinn í púsluspili
gærkvöldsins hjá mér var júgóslavn-
eska sjónvarpsmyndin. Efni mynd-
arinnar var ekki mikiö né flókið en
myndin gaf hinsvegar góða innsýn í
sveitalíf hjá Júgóslövum og leiöir
hugann aö því hve víöa i Evrópu er
breitt bil milli fólksins til sveita og
þeirra sem búa í borgarsamfélögun-
um þar sem hraöi iðnaðarþjóðfélags-
ins er í algleymingi.
Þetta bil milli sveita- og borgarlífs
er nær horfið hér á landi en ekki þarf
að leita langt inn í Evrópu, sérstak-
lega í Austur-Evrópu, til aö þetta
verði mjög áberandi.
Um þáttinn Sögubrot hef ég áöur
sagt aö þar er sjálfsagt hinn ágætasti
þáttur á ferö en bara á vitlausum
tíma dagsins svo í staðinn fór plata á
fóninn, sem endapunktur gærkvölds-
ins.
Jóhannes Reykdal.
TOLLVERÐIR FUNDU SMYGL
í GODAFOSSIOG FJALLFOSSI
Tollveröir komu síödegis á
sunnudag aö nokkrum skipverjum af
ms. Goöafossi þar sem þeir voru aö
bera áfengi í land. Höföu þeir staflaö
nokkrum kössum í bifreiö viö skipiö.
Viö frekari leit kom í ljós aö þeir
höföu reynt aö smygla um 395
þriggja pela flöskum afvodka.
Goöafoss kom til hafnar á sunnu-
dagsmorgun og var þá aöeins
framkvæmd venjuieg tollleit í skip-
inu. En eigendur góssins, sem eru
sex skipverjar, reyndu síöan aö
koma vamingnum í land síöar um
daginn er þeir voru gripnir.
Þá fundust 50 þriggja pela flöskur
af vodka í ms. Fjallfossi síöastliðinn
föstudag. Skipiö kom til hafnar á
fimmtudag og fannst þá ekkert viö
leit í skipinu. Ástæða þótti þó til aö
leita betur og fannst þá áfengið í
vélarrúmi skipsins. Eigendur
smyglsins eru tveir skipverjar á
Fjallfossi.
Bæði Goðafoss og Fjallfoss voru aö
koma frá Bandaríkjunum.
-JGH
DbIéIbIeIbIbIeIíIbIbIeISéIíIbIeIbIbIbIbIbIéIeIbIbIeIbIbIeIbIb]
BLAÐBURÐARBÖRN óskast í eftirtalin hverfi
KRAKKAR
skrifið ykkur
á biðlista
Sólvellir •
Hagar •
Lundir II Garðabæ •
Skúlagata •
Lindargata, •
afleysingar 15.9. —9.10. •
Baldursgata •
Seljavegur
Kvisthagi
Hrísateigur
Vesturgata
Aragata
Hverfisgata (hærri tölur)
Grunnar
AFGREIÐSLAN
ÞVERHOLT111
SÍIVII27022
ÉJÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIBIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉIÉ
Háskólafyrirlestur
David Lewis, prófessor í heimspeki viö
Prineetonháskóia í Bandaríkjunum, flytur
opinberan fyrirlestur í boöi heimspekideildar
Háskóla Islands miövikudaginn 8. september
1982 kl. 17:15 í stofu 201 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „Knowing What It’s
Like”. Undir þessari fyrirsögn mun prófessor
Lewis verja efnishyggjukenningu um sam-
band sálar og líkama og fjalla um meint
andmæli gegn henni.
Prófessor Lewis er meóal þekktari yngri
heimspekinga í Bandaríkjunum. Hann hefur
skrifaö tvær bækur, Counterfactuals og
Convention, auk f jölda tímaritsgreina.
Fyrirlesturinn veröur fluttur á ensku.
Öilum er heimill aögangur.
(Fréttfrá Háskóla Islands.)
Höfðinglegar gjafir
til vangefinna
Hjónin Margrét Guöfinnsdóttir og Sigurgeir
Sigurösson fyrrum skipstjóri, Völusteins-
stræti 8 Bolungarvík, hafa nýveriö afhent
gjafir til Styrktarfélags vangefinna á Vest-
fjörðum, kr. 25 þúsund, og Styrktarfélags
vangefinna í Reykjavík, sömu upphæö, eöa
samtais 50 þúsund. Gjafir þessar eru gefnar í
tilefni áttræöisafmælis Sigurgeirs, hinn 22.
júlí sl.
Sigurgeir Sigurösson er fæddur aö Mark-
eyri í Skötufirði 22. júlí árið 1902. Hugur hans
hneigöist snemma aö sjómennsku og hóf hann
sjóróöra, fyrst í Tjaidtanga, síðar í Hnífsdal
og Bolungarvík.
Áriö 1926 kvæntist hann Margréti Guðfinns-
dóttur og fluttu þau hjón tii Bolungarvíkur
áriö 1934 og hafa búið þar síöan. Sigurgeir átti
um margra áratuga skeiö bát sjálfur. Hann
var einhver ötulasti sjósóknari á sinni tíð og
sótti alltaf fast og aflaði vel. Þó hann hafi nú
fyllt átta áratugi vinnur hann dag hvem og
lætur ekki bilbug á sér finna. Margrét og
Sigurgeir eignuðust 10 böm og eru 8 þeirra á
lífi.
Er þessum heiöurshjónum þakkaðar þessar
rausnariegu gjafir til vangefinna og þann
hlýja hug til málefnisins er aö baki býr og
þeim ámað allra heilla.
Minningarspjöld
Minningarspjöld Langholtskirkju eru
seld á eftirfarandi stöðum. Verslunin
Njálsgata 1, Bókabúðin Álfheimum 6,
Holtablómiö Langholtsvegi 126, Ragn-
heiöur, Álfheimum 12, sími 32646; Sig-
ríður, Gnoðarvogi 84, sími 34098; Sig-
ríður, Ljósheimum 18, sími 30994;
Guöríöur, Sólheimum 8, sími 33115;
Safnaöarheimili Langholtssóknar Sól-
heimum.
Minningarkort
Minningarkort Reykjavikurdeildar Rauöa
kross Islands. Athugið minningarkortin eru
póstlögð samdægurs. Hringið í síma 28222 eða
komið á öldugötu 4.
Reykjavíkurdeild R.K.1.
Minningarkort Kvenfélags
Bústaðasóknar
fást hjá Steliu Guðnadóttur, Ásgaröi 73, Verzl.
Áskjöri, Ásgaröi 22, Garðs Apóteki, Bókabúð
Grímsbæjar, Oddrúnu Pálsdóttur, Sogavegi
og í Bústaöakirkju hjá kirkjuverði.
Styrktarf élags vangef inna
fást á eftirtöidumstööum: Á skrifstofu félags-
ins, Háteigsvegi 6. Bókabúö Bragá Brynjólfs-
sonar, Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjam-
ar, Hafnarstræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers
Steins, Strandgötu 31 Hafnarfirði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins
að tekiö er á móti minningargjöfum í sima
skrifstofunnar, 15941, og minningarkortin
'síöan innheimt hjá sendanda meö giróseöli.
Nýlega héldu þessir ungu krakkar úr
Breiöholtinu hlutaveltu til styrktar
Sjálf sb jörg og söfnuðu þau alls 825 kr.
Krakkarnir heita fra v. Helga Björk
Þorgeirsdóttir, Almar Þór Þorgeirs-
son, Jón Björnsson Steingrímsson,
Karl Friðrik Jónasson, Jónas
Guöbjöm Pétursson.