Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 6
6 fIKAN er ekki sérrit heldur fjölbreytt og víðlesið heimilisblað býður ódýrasta auglýsingaverð allra íslenskra timarita. — IMú býður VIKAN nýja þjónustu fyrir auglýsendur: samn- inga um birtingu heil- eða hálfsiðu i lit eða svarthvítu, — i hverri VIKU eða annarri hverri VIKU. Hér eru rökin fyrir birtingu auglýsinga í VIKUNNI. nær til allra stétta og allra aldursstiga. A uglýsing í Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa. hefur komið út í hverri viku í meira en 40 ár og jafnan tekið breytingum í takt við tímann, bæði hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er VIKAN svona fjölbreytt og þess vegna er lesendahópurinn svona stór og fjölbreyttur. selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Þess vegna geta auglýsendur treyst því, að auglýsing í VIKUNNI skilar sér. er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óvið- komandi. Þess vegna er VIKAN svo vinsæl og víðlesin sem raun ber vitni. veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu verði og hver auglýsing nær til allra lesenda VIKUNNAR. k 'P hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar. Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNNAR eiga við hana eina og þær fást hjá AUGLÝSINGADEILD VIKUNNAR ísíma 85320 (beinn sími) eða 27022 VINNURÁ OG VINNURÁ OG VINNUR Á OG VINNURÁ OG VINNUR A OG VINNUR Á DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982 ► Neytendur Neytendur Neytendur Mikla aðgætni þarf þegarekið erí myrkrí ekki horft skýrt á nálæga staöi og um leið séð rakleitt á þá staði sem eru fjær.” Þessar setningar er aö finna í blaðinu Helse, en þar eru einnig ýmsar ráðlegginrar til ökumanna sem vert er að hafa í huga þegar ekið erímyrkri. Telji ökumaður sig ver óöruggan þegar hann ekur bifreið í myrkri á hann skilyrðislaust að fara í augn- skoðun. Þegar sjónskilyrðin eru slæm ber aö hægja verulega á ferð. Þaö er algengt aö gangandi vegfar- endur beri ekki endurskinsmerki. Fyrirvaralaust verður því ökumaöur var við hindranir og hjálpar þá ef hægt er ekið. Viö birtu frá ökuljósum annarra ökutækja og endurspeglun frá blautum og dimmum vegum versna akstursskilyrðin. En verra er það fyrir þá sem ekki hafa eðlilega sjón. Það eina sem unnt er aö gera ef nauðsynlegt er að aka við slæm skil- yrði er að aka nógu hægt. -RR „Skoðanir manna eru skiptar skerpi sjónina, jafnvel þó hún sé eðli- hvort nota beri gleraugu við akstur í íeg. En augun verða þreytt á aö myrkri, þoku og slæmu veðri. Flestir horfa í gegnum sterk gleraugu því að standa í þeirri meiningu að gleraugu með notkun gleraugna getur maður Þegar akstursskilyrði eru slcm, ber skilyrðislaust að aka hcgt. Augnskoðun ökumanns getur komið að géðu gagni, sé hann óöruggur að aka i myrkri. RADDIR NEYTENDA: Vantar leiða bókSVR — og tímatöflur í biðskýlin Verðlaunaskýlið viðHringbrautvarhið suyrtilegasta þegar myndin var tekin. En annars fá biðskýli SVR slæma útreið af völdum skemmdarvarga. „Fyrir um það bil mánuði ætlaði ég aö kaupa leiðabók hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur. Þá var mér sagt að bókin væri ekki til en væntan- leg. Af og til hef ég síðan spurt um leiöabókina og hún er enn ekki komin.” Þetta sagði ungur maður, sem er heitir Hörður er hann kom að máli við okkur. Hann sagöi leiðabók- ina nauðsynlega því að fólk þekkti Reykjavíkurborg misvel. Sérstak- lega væri bagalegt fyrir skólafólk utan af landi, sem væri nýkomið til Reykjavíkur, aö hafa ekW leiöabók SVR. Þvi væri líklega verra að leiðabók- ina vantaði á þessum árstíma en öðrum. Hörður hafði einnig orð á því að tímatöBur í biöskýlum SVR væru ólæsilegar vegna krots sums staðar eða þá að búið væri að rífa þær niður. Vildi hann gjarnan fá að vita hjá for- ráðamönnum SVR hvort bókin væri væntanleg og hvort ekki væri hægt að laga tímatöflurnar í biðskýlunum. Við höfðum samband við Harald Þórðarson deildarstjóra tæknideild- ar SVR. Hann svaraði fyrirspurnum Harðarmeö eftirfarandi orðum: „Leiöabókin er prentuð eftir þörfum. Því miður hefur bókina vantað um tíma en hún er í prentun. Vélatruflanir hafa tafið að við fengjum hana í hendur. Eg held að best sé aö leggja engum orð í munn og lofa því aö bókin verði komin innan einhvers ákveðins tima. En við vonum að úr rætist fljótlega. Vandamálið með tímatöflurnar í biðskýlunum er gamalkunnugt. Við erum með mann í fullu starfi allt árið til að hafa umsjón með viðhaldi biðskýlanna. En satt að segja virðist þetta starf vera gjörsamlega von- laust. Stundum virðist sem komið sé á hæla viögerðarmönnum og rifiö niður og eyðilagt í skýlunum.Fyrir þetta líða svoaðrir.” Leiðabók SVR kostar tvær krónur og þegar hún er fáanleg er hún seld á Lækjartorgi, Hlemmi og biöskýlinu við Grensásveg. -ÞG r Att þú barn í um- ferðinni? Á eftir bolta kemur bam var áletraö á límmiða sem JC Vík Reykjavík lét útbúa og dreifði árið 1978. Nú hefur félagið látið útbúa límmiöa í annað sinn og á honum stendur Átt þú bam í umferðhmi? Nýi miðinn er hannaður af Amdísi K. Sigurbjörnsdóttur sem er félagií JCVík. Límmiðanum hefur verið dreift á Stór-Reykjavíkursvæðinu en prentaðir vom 10 þúsund miðar. Má þegar sjá að nokkrir framtakssamir ökumenn hafa límt miða á afturrúðu bíla sinna. Ekki er vanþörf á áminningu í umferðinni, og vonandi að þetta framtak megi verða meðal annars til aö fækka slysum í svartasta skammdeginu. -ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.