Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982 35 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Skátar lóku frumsamin œvintýri. I síðustu viku var haldin heljarmikil a&nælisveisla í Glerárskóla á Akur- eyri. Afmælisbamið var skólinn sjálfur, það er að segja elsti hluti núverandi skólabyggingar, sem er 10 ára. Afmælisbarniö hefur dafnað vel og stækkað á þessum 10 árum, en þó ekki nægilega hratt til að hafa við örri fólksfjölgun í Glerárhverfi á undan- förnumárum. Það var foreldrafélag nemenda í Glerárskóla, sem stóð fyrir veisluhöld- unum. Fór vel á því, þar sem það voru samtök foreldra, sem komu upp fyrsta skólahúsinu í Glerárhverfi á eigin kostnað, án þess að leita eftir stuðningi hreppsins. Var húsið byggt árið 1908 Sandgerðisbót, úr steini, og mun það hafa verið með fyrstu steinhúsum á Akureyri. En hér er ekki meiningin að rekja sögu skólahalds í Glerárhverfi. 10 ára afmælishátið núverandi skólahúss fór vel fram. Það var dansað, spilað bingó, sýndar kvikmyndir og leikin ævintýri, svo eitthvað sé nefnt. En látum myndirnar tala sínu máli. -GS/Akureyri. : : : Dömumar voru dugiegri i dansinum en herramir. K Fer ekki bróðum að koma að mór. í pyisubiðröðinni. DV-myndir: GS/Ak. hægri.... Þetta er toppurinn; pylsa, kók og kennarastóllinn. MEZZOFORTE FIMM ÁRA Síðastliöið fimmtudagskvöld hélt hljómsveitin Mezzoforte upp á fimm ára afmæli sitt með hljómleikum í Broadway. Var þar mikið um dýrðir og salurinn þéttsetinn, enda er þama um að ræða eina allrabestu hljóm- sveit sem Islendingar hafa átt og lék hún við hvern sinn fingur og flutti ný sem gömul lög við mikla hrifningu áheyrenda. Þorgeir Ástvaldsson byrjaði hátíðina með því að rifja upp sögu Mezzoforte og kom þar fram að fyrstu sporin í átt til þeirrar viður- kenningar sem þeir njóta í dag voru meö Ljósunum í bænum, en í fimm ár hafa þeir nú að mestu haldiö hópinn. Þeir sem upprunalega voru í Mezzoforte eru þar enn, en þeir eru Eyþór Gunnarsson, Friðrik Karls- son, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson. Fljótt bættist í hópinn Bjöm Thorarensen, en hann hefur nú hætt í hljómsveitinni og er saxófón- leikarinn Kristinn Svavarsson kominn í hans stað, en hann er enginn nýliði með strákunum í Mezzoforte, hefur verið óformlegur meðlimur hennar alllengi. Það er enginn vafi eftir að hafa heyrt þá félaga í jVlezzoforte á fimmtudagskvöldið að þeir hafa aldrei verið betri en nú og standa þeir vel undir þeim titli sem þeir fengu í vinsældavali DV fyrir 1981, en þar voru þeir kosnir bes^.a hljóm- sveitin. Nú í vikunni er væntanleg fjórða plata þeirra félaga og nefnist hún einfaldlega 4 og hafa þeir sagt að hún sé ögn léttari en fyrri plötur, án þess þó að fara út fyrir þá línu sem þeir settu sér í upphafi. Á aö setja hana á markað í Englandi og ef gæði ráða einhverju um vinsældir er ég viss um að þar bíður þeirra björt framtíð. Þessi mynd var tekin á konsert Mezzoforte á fimmtudagskvöld, taiið frá vinstri sjáum við Eyþór Gunnarsson, Hjört Hovser, sem spilaði sem gestur með þeim, Gunnlaug Ásmundsson, Kristin Svavarsson, Gunnlaug Briem og Friðrík Karlsson. Ljósm. GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.