Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982. Nemendaleikhúsið fær lofsamlegan dóm hjó Ólafi Jónssyni fyrir sýningu á finnska leikritinu Prestsfólkið. Á myndinni sjást frá vinstri: Maria Sigurðardóttir, Vilborg Halldórsdóttir og Heigi Bjömsson. LETTIN AD SJÁLFUM SÉR Af einhvem ástæðu er eiginlega alltaf gaman í Nemendaleikhúsinu. Liggur viö að sé sama hverjir leika hvað eða hvemig. Þar eru líka allir leikendur nýir á hverju leikári. Og hver ný sviðsetning, leiksýning manndómsraun hinna nýju leikenda. Vísast nýtur hver og ein sýning Nemendaleikhússins þessara kringumstæðna: það starfar í andrúmslofti eftirvæntingar sem áhorfendur njóta með leikendum á sviðinu. Þar eru leikendur að neyta nýfenginna kraftanna, enn að leita fyrir sér um það sem þeir hafa fram að færa, miðla með sér í leik, en áhorfandi veit aldrei fyrir að hverju hann gengur. Á meðal annars þess vegna eru sýningar Nemendaleik- hússins miklu gjöfulli en almennt gerist á leiksýningum, alveg burtséö frá efnivið sýningar, leikhópnum hverju sinni. Það er svo annað mál hvemig þetta veganesti, umfram sjálfa þá kunnáttu, tækni og handverk leik- listar sem numið er í skóla, endist nemendunum þegar til starfa er komið. Varla er eftirvæntingin úti, leitinni að sjálfum sér lokið í og meö burtfararprófi úr skóla? En ekki hef ég merkt að sýningar Alþýðuleik- hússins, þar sem flestir leikendur eru ungir og lítt ráðnir, nytu neins hins sama gerðarþokka og svo auðnuminn er á sýningum Nemenda- leikhússins. 1 nýju sýningunni í Iðnó eru fimm af tíu leikendum ungt fólk, flestallt úr Leiklistarskólanum, tvö þeirra ný úr skóla. En þótt sýningin hlutverkum. Þessi þáttur var eftir Jónas1 Guðmundsson og lýsti tiistandinu þegar frægur sonur þorpsins lót sjá sig á heimaslóðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.