Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982.
9
VIUA VÍSA
ÍSRAEL AF
ALLSHERiAR-
Þetta ætlar aö veröa einhver úrkomumesti og blautasti október sem komiö
hefur á Bretlandseyjum í áraraðir. Hafa ekki verið nema tveir þurrir dagar í
ölliun október, sem af er, og úrkoman mæld yfir 10 sentimetrar. Var þá vika
eftir til þess að bæta viö þeim þrem sentimetrum sem þarf til þess aö slá metið
frá því í október 1949.
Flætt hefur inn á heimili og opinberar byggingar. Vegir og járnbrautarlínur
hafa á stöku staö horfiö undir vatn. Lestaráætlanir hafa fariö úr skorðum og
stöku sveitavegir hafa orðið ófærir vegna aurbleytu.
Raunar hafa rigningarnar einnig gengiö yfir suðurhluta álfunnar og hafa til
dæmis orðið flóð í þorpum á Suður-Spáni þar sem sjötíu manns eru taldir af eftir
flóðin. Nokkrar vangaveltur hafa veriö sérfræðinga í milli vegna þessarar
óvenjulegu úrkomu og einn hefur komið með þá tilgátu að eldgosið úr „E1
Shichon” í Mexíkó í apríl síðasta vor, sem var mikið öskugos, hafi orkað á veður-
farið. Nefnilega hafi öll sú aska sem þá fór út í andrúmsloftið skyggt á sólina,
dregiö úr sólarhitanum og það breytt veðurfarinu.
Ekki leiðast öllum þessar eilífu rigningar. Regnhlífaframleiðendur vinna
tvöfaldar vaktir til þess að reyna að anna eftirspurninni. Senda þeir daglega frá
sér tiu þúsund regnhlífar en verslanir panta stöðugt meira.
Börnin virðast þau einu sem láta sér úrkomuna vel lynda og reyna að gera
gaman úr vætunnl — og regnhlífaframleiðendur eru auðvitað sömuleiðis í
sjöunda himni.
Mæður safnast vikulega saman á Mayotorgi í Buenos Aires til að mótmæla hvarfi sona sinna. Þær segja að í nýju
f jöldagröf inni sé aðeins lítið brot af þeim tugþúsundum sem hverfa sporlaust í Argentínu
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
400 LÍK FUNDIN í
ÓMERKTUM FJÖLDA-
GRÖFUM KIRKJUGARDS
í BUENOS AIRES
Greftrunarskýrslur kirkjugarös í
Buenos Aires hafa verið lagðar fyrir
dómara sem hafið hefur opinbera
rannsókn vegna 400 líka sem fundust í
ómerktum f jöldagröfum.
Þaö voru mannréttindasamtök í
Argentínu sem athygli vöktu á þessum
fjöldagröfum á föstudaginn. Eru þær í
Grand Bourg-kirkjugarðinu, sem er í
Sarmiento, en það er svefnbær, eða
íbúðarúthverfi Buenos Aires.
Mannréttindasamtök vilja ætla að
þarna séu sennilegast komnir fram
einhverjir þeirra þúsunda manna sem
horfið hafa í herferð er stjórnendur
hersins gerðu gegn vinstrisinna skæru-
liðum á síðari helmingi áttunda ára-
tugarins. Vísa þau í vitnisburði starfs-
manna kirkjugarðsins og fólks sem
býr í nágrenni hans, sem segir að líkin
hafi verið færð til kirkjugarðsins í
bifreiðum sem tilheyrðu öryggis-
sveitum landsins og að þau hafi verið
grafin um nætur. Þetta fólk segir að
tíðastar hafi þessar næturgreftranir
veriö á árunum 1976 til 1979, þegar
sókn hersins á hendur vinstrisinnum
stóð hvað hæst.
Eitthvað um fjögur hundruð lík
fundust grafin í pappakössum, sem
staflað hafði veriö í áttatíu og átta
grafir.
Bæjarstjóri Sarmiento skýrði um300
aðstandendum horfinna manna, sem
söfnuðust saman við skrifstofur hans
eftir fréttina af líkfundinum, frá því að
greftrunarskýrslur kirkjugarðsins
hefðu verið afhentar Hugo Gradara
dómara. Kvaðst hann þvi ekkért geta
sagt um af hverjum líkin væru sem
fundist hefðu í ómerktu gröfunum. Hét
hann fólkinu að líkin mundu ekki fjar-
lægð frá kirkjugarðinum.
Hafði þaö vakið áhyggjur fólks að
skilti haföi fyrir skömmu sést nærri
ómerktu gröfunum þar sem sagt var
að líkin yrðu innan skamms grafin upp
og færð í sameiginlega gröf annars
staöar.
Mannréttindasamtök í Argentínu
fengu því til leiðar komið á föstudaginn
að hafin skyldi opinber rannsókn til
þess að ganga úr skugga um af
sóknar á málinu.
Mannréttindasamtök í Argentínu
ætla að á milli sex og þrjátíu þúsund
manns hafi horfið í atlögu hersins gegn
vinstrisinna skæruliðum. Það síðasta
sem spurðist til margra þeirra var að
þeir hefðu verið stöðvaðir og fjar-
lægðir af vopnuðum mönnum sem
— Talingrafin að næturþeli á árunum
1976-79aföryggissveitum hersins.
—Sett i samband við hvörf6—30
þúsunda í Argentínu
á síðasta áratug
hverjum þessi lík væru og hvort þau
hefðu veriö greftruð með löglegum
hætti.
örlög þeirra þúsunda manna, og
kvenna sem hurfu á síðasta áratug
hafa verið mjög ofarlega á baugi í
argentínskri stjómmálaumræðu en
herforingjastjórnin og stjómmálaleið-
togar hafa varast að láta nokkuð eftir
sér hafa um fund þessara fjöldagrafa.
Nema Arturo Frondizi, fyrmm forseti,
sem krafist hefur opinberrar rann-
sögðust tilheyra öryggissveitum lands-
ins.
Mæðurnar á Mayo-torgi, sem þar
koma reglulega saman til þess að
andmæla hvörfum sona sinna, undir-
strikuðu í gær að líkin sem nú hefðu
fundist væm aöeins brot af heildar-
fjölda þess fólks sem horfiö hefur.
Um helgina hefur fjöldi ættmenna
horfins fólks heimsótt kirkjugarðinn til
þess að biðja fyrir hinum látnu og
leggja blóm á fjöldagrafirnar.
Tillaga frá Iran kom mjög flatt upp á
menn hjá Sameinuöu þjóöunum í gær-
kvöldi, en hún miðaði að því að vísa
fulltrúum Israels burt af allsherjar-
þinginu.
Var hún lögð fram sem breytingar-
tillaga við skýrslu kjörbréfanefndar,
sem að undanförnu hefur fjallað um
kjörbréf f ulltrúanna er taka eiga sæti á
þessu nýbyrjaða allsherjarþingi.
Að flestra áliti verður tillaga Irans
felld, en afgreiðslu hennar var þó
frestað um sólarhring. Líklegt þykir að
einhver fulltrúi Norðurlanda beri upp
frávísunartillögu, sem sennilegast
verði samþykkt af þorra ríkja meðan
hugsanlega múhammeðstrúarríki sitji
hjá.
En felld var í gærkvöldi meö meiri
mun en búist hafði verið við tillaga um
að sendinefnd Kambódíu, skipuð af
Norodom Siö hanúk prins, forseta
útlagastjórnarinnar, sem berst gegn
leppstjóm Víetnama í Phnon Pehn,
yrði látin víkja. Það voru ekki nema
29 ríki sem greiddu því atkvæöi, níutíu
atkvæði felldu hana (23 fleiri á móti
núna en í fyrra) og 26 sátu hjá. —
Prinsinn og Sonn Sann, forsætisráð-
herra hans, sátu á pöllum og fylgdust
með atkvæðagreiöslunni. Sáust þeir
brosa breitt þegar úrslitin lágu fyrir.
Stútur við stýri
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
undirritað ný lög sem eiga að hjálpa
fylkjunum til að draga úr ölvun við
akstur, en ölvaðir ökumenn eru taldir
valda 26.000 dauöaslysum á ári í
Bandaríkjunum. Á að verja 375 millj-
ónum dala til þessa málefnis. Fylkin
verða að ganga að ýmsum skilyröum
til að fá styrktarfé eins og t.d. taka
ökuleyfið af mönnum sem gripnir eru
ölvaðir við akstur og fangelsa þá sem
gerast brotlegir eða dæma þá til vinnu
í þágu fylkisins.
Þjóðvegaeftirlitið telur aö í viðbót
við dánartöluna slasist 125.000 svo al-
varlega á ári að þeir verði örkumla,
650.000 slasast alvarlega en ná sér
aftur. Drukknir ökumenn valda þannig
samtals 801.000 slysum á bandarískum
þjóðvegum á ári með mismunandi af-
leiðingum.
IJtorðá
Irlandi
Irski lýðveldisherinn (IRA) hefur
nú tilkynnt að mótmælandi sá er þær
rændu og lögðu hald á hafi verið tekinn
af lífi. Ekki lýsa þeir þó aftöku hans
sem neinni hefndaraðgerð vegna
morða á tveimur kaþólskum á N-
Irlandiígær.
1 tilkynningunni sagði IRA að aðal-
stöðvarnar hefðu skipaö að láta mót-
mælandann, Thomas Cochrane, (54
ára) lausan, en skipunin hefði komið of
seint vegna mikils álags á öryggis-
verði á S-Armagh svæðinu.
Cochrane, sem æft haföi með
varnarher Ulster, var rænt sl.
föstudag er hann var á leið til vinnu
sinnar. Mótmælendur gripu þá Joe
Donegan, annan kaþólikkann, sama
dag og hótuöu að myrða hann ef
Cochrane yrði ekki látinn laus
ámiðnættiá sunnudag.Donegan, sem
var 48 ára gamall og 7 bama faðir,
fannst svo á götu í Belfast í gær. Hafði
hann verið barinn svo mjög í höfuðið
að notast varð við gullúr á handlegg
hans til að þekkja hann.
Hinn kaþólski maðurinn, Peter
Corrigan, var skotinn í bíl í Armagh.
Corrigan vann fyrir stjómmálaflokk
IRA,SinnFein.
ÞINGI S.Þ.