Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Qupperneq 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKT0BER1982.
11
Innkaupa-
stofnanimar
verði lagðar
niður
1 nýsamþykktri stefnu Verslunar-
ráðs Islands um opinber innkaup er
lagt til að Innkaupastofnun ríkisins og
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
verði lagðar niður en opinberum stofn-
unum og fyrirtækjum verði falin inn-
kaup á eigin ábyrgð. Aukakostnaður af
viöskiptum, sem fara í gegnum inn-
kaupastofnanir, er talinn vera um 2—
4% af heildarverði, samkvæmt niður-
stöðum nefndar, sem stjórn V.l.
skipaði til að kanna opinber innkaup. I
nefndinni áttu sæti þeir Gunnar
Asgeirsson, Halldór Jónsson, Jón
Magnússon, formaður nefndarinnar,
og Ragnar Borg. Verkefni nefndar-
innar var tvíþætt: aö setja fram
tillögur að stefnumörkun Verslunar-
ráðs Islands í opinberum innkaupum,
og að kanna núverandi skipulag opin-
berra innkaupa og koma með tillögur
til breytinga, ef ástæöa þykir til.
Niðurstööur nefndarinnar voru fyrir
nokkru samþykktar í framkvæmda-
stjórn V.I. sem stefna Verslunar-
ráðsins í opinberum innkaupum.
__________________-PÁ:
Tvöföldun
vasapeninga
lífeyrisþega
„Það er varla vansalaust fyrir þjóð-
félagið að huga ekki betur en nú er gert
að kjörum þess fólks sem dvelur lang-
dvölum á stofnunum, — fólks sem í
flestum tilvikum hefur lokið langri
starfsævi án þess að öðlast neins konar
réttindi í lífeyrissjóðum.” Þetta segja
flutningsmenn lagafrumvarps um að
tvöfalda „vasapeninga” tekjulausra
elli- og örorkulífeyrisþega á stofn-
unum.
Frumvarpið flytja sex þingmenn
Alþýðuflokksins í neðri deild Alþingis.
Fyrsti flutningsmaður er Magnús H.
Magnússon.
I greinargerð segja flutningsmenn
að „vasapeningar” þess fólks sem
frumvarpið snýr að séu nú 742 krónur
á mánuði, miðað við 1. september. Þeir
segja að tvöföldum „vasapeninganna”
kost alls á ári 15.6 milljónir króna en
'fari lækkandi héöan í frá.
-HERB.
Framkvæmdir við nýja meðferðarheimilið við Grafarvog ganga veI og er fyrirhugað að hraða framkvæmdum sem mest.
HALDA VEGLEGA
AFMÆUSHÁTfÐ
— bygging nýja meðf erðarheimilisins gengur vel
SÁÁ
FIMM
ÁRA:
SÁÁ — Samtök áhugafólks um
áfengisvandamáliö ætla aö halda
upp á fimm ára afmæli sitt í lok októ-
ber, en samtökin voru formlega
stofnuð fyrsta október 1977. Sérstök
hátíðarsamkoma veröur í Háskóla-
bíói hinn 30. október og hefst hún
klukkan 14. Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra og Pétur Sigurgeirs-
son biskup munu flytja ávörp að
viðstöddum forseta Islands, Vigdísi
Finnbogadóttur. Síöan verða á dag-
skrá f jölbreytt skemmtiatriði.
SÁÁ rekur nú þrjú meðferðar-
heimili: sjúkra- og afvötnunarstöð
að Silungapolli og eftirmeðferðar-
heimili að Sogni í ölfusi og Staðar-
felli í Dölum. Að auki reka samtökin
viðamikla ráðgjafarþjónustu í Síöu-
múla 3—5, í samvinnu við Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkurborgar.
Á siðustu fimm árum hafa tæplega
sjö þúsund sjúklingar komið til með-
ferðar á meðferðarheimilum SÁÁ.
Að auki hafa á þriðja þúsund áfengis-
sjúklingar leitaö sér ráðgjafar hjá
samtökunum.
Bygging nýrrar sjúkrastöðvar
SÁÁ við Grafarvog er vel á veg
komin og reynt er að hraða verkinu.
SAÁ vill því minna félagsmenn á að
bregðast vel við útsendum gíró-
seðlpm.
-SKJ.
FLUGSTUÐILL
- NAFNBÓT
FYRIR AFREK
ÍFLUGI
— áhöf n Flugleiðavélarinnar, sem
nauðlenti í Keflavík heiðruð
Flugmálafélag íslands sæmdi í
gær áhöfn Flugleiöavélar þeirrar
sem nauðlenti I Keflavík eftir
hreyfilsprengingu yfir Isafirði 22.
mars síöastliðinn heiðursnafnbótinni
flugstuðlar. Fá þau Gunnar Arthurs-
son flugstjóri, Guðrún Gunnarsdóttir
flugfreyja og Hallgrímur Viktorsson
flugmaöur nafnbótina fyrir að hafa
bjargað vél og f arþegum.
Ásbjöm Magnússon, forseti Flug-
málafélagsins, afhenti þremmenn-
ingunum steinstólpa úr grágrýti,
sem á var letraö flugstuðill, í hófi í
gær. Steinstólpinn er hugmynd
stjómar Flugmálafélagsins.
Orðið stuðill er gamalt í málinu.
Það kemur fyrir í nokkmm forn-
ritum, meðal annars Orkneyinga-
sögu. Dr. Finnbogi Guömundsson á
heiðurinn af nafngiftinni flugstuðill.
I heiðursskjali sem áhofnin fékk
segir hann um nafngiftina:
„Hákon ungi, sonur Hákonar
gamla Noregskonungs, þýddi um
miðja 13. öld úr latínu siðfræði- og
trúarritið Barlaans sögu og Jósafats.
Þar eru m.a. þessar setningar: ,,Ef
þú setst niður, þá skalt þú öruggur
vera, en ef þú stendur upp, þá skuli
styrkir stuðlar styðja þig alla vega.”
Og síðar segir í sögunni:
,,Ég hugða, aö þú skyldir í minni
elli vera styrkur og stuðill mér og
mínu ríki.”
Hvert ríki á mikið undir því, að
sem flestir þeganar þess séu því,
hver í sinni grein, styrkir og öruggir
stuðlar.
I fluginu, ungri og vaxandi at-
vinnugrein, hefur það þegar sannast,
að Islendingar eiga þar marga
styrka stuðla, flugstuðla, er svo
mætti nefna, karla og konur, sem
Áhöfn Fokkervólarinnar með steinstóipa. Fri vinstri: Gunnar Arthursson, Guðrún Gunnarsdóttir
Haiigrimur Viktorsson.
DV-mynd: Bjarnleifur.
unniö hafa flugstörf sín af öryggi og Flugmálafélag Islands ákvað fyrir nafnbót. Er þetta í fyrsta sinn sem
festu,” segir dr. Finnbogi nokkru að sæma þá sem vinna nafnbótinerveitt.
Guðmundsson. sérstök afrek í fluginu fyrrgreindri -KMU.