Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Síða 20
■
DV. ÞRIÐJUDAGqgjg. OKTÖBEIi 1982
íþróttir íþréttir íþróttir íþróttir___________fþrótl
Þorsteinn
íeins
leiks bann
— íEvrópukeppni
Þorsteinn Þorsteinsson, landsliös-
bakvöröur úr Fram, hefur veriö
dæmdur í eins leiks keppnisbann í
Evrópukeppninni í knattspyrnu. Þor-
steinn var bókaður í báðum leikjum
Fram gegn Shamrock í UEFA-bikar-
keppninni í sumar. Hann má því ekki
leika næsta Evrópuleik Fram, hvenær
sem hann verður, og Hafþór Sveinjóns-
son má ekki heldur leika þar sem hann
á eftir að taka út einn leik í þriggja
leikja banninu, sem hann var dæmdur
í1981.
-sos.
Þróttur vann
í afmælismóti
Blaksambands
Karlalið Þróttar í blakinu hélt enn
áfram sigurgöngu sinni. Að þessu sinni
sigruðu Þróttarar í afmælismóti Blak-
sambandsins. Unnu þeir Stúdenta í úr-
slitaleik með þremur hrinum gegn
tveimur.
Mót þetta var haldið í tilefni af 10 ára
afmæli Blaksambands Islands. Tíu lið
tóku þátt í keppninni í meistaraflokki
karla, fjögur í meistaraflokki kvenna
og þrjú í 3. flokki karla. Til leiks mættu
lið víða af landinu, meðal annars úr
Neskaupstað.
IS sigraði í kvennakeppninni. Vann
Þrótt í úrslitaleik með þremur hrinum
gegn tveimur. I 3. flokki fór Þróttur
meö sigur af hólmi. Lið Fram hafnaði í
þriðja sæti í karlakeppninni, sigraði
Víking í aukaleik, 2-0. Stjórnendur
mótsins kusu Fram það lið sem mest
kom á óvart.
Skjöldur Vatnar Björnsson úr Víking
var kjörinn bc U ieikfliaður karlaliða
mótsins. Af konunum var Hulda Lax-
dal úr Þrótti kjörin best.
-KMU.
Nilsson knatt-
spymumaður
Svíþjóðar
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttamanni
DV í Svíþjóð. Torbjörn Nilsson, sem lék með
IFK Gautaborg á síðasta leiktímabili, befur
verið kjörinn knattspyrnumaður Svíþjóðar.
Hlaut hann „gullboltann” að launum. Það er
sænska stórblaðið Aftonbladed sem gengst
fyrir þessu vali ásamt sænska knattspyrnu-
sambandinu. Nilsson hlaut titilinn fyrir frá-
bæra frammistööu í UEFA-keppninni. Þar
var hann markhæstur og Gautaborg var fyrst
sænskra liða tfl að sigra í Evrópukeppni.
Nflsson leikur nú með Kaiserslautern í
Vestur-Þýzkalandi og hefur átt þar erfitt upp-
dráttar. Gefur ekki kost á sér í sænska lands-
liðið.
Fyrri leikur IFK Gautaborgar og Hammer-
by frá Stokkhólmi verður í Gautaborg á
morgun, miðvikudag. Síðarí úrslitaleikur lið-
anna verður svo í Stokkhólmi á sunnudag.
GAJ/hsim.
Fjórir nýliðar hjá Spánverjum:
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Malaga: — Miguel Munoz,
landsiiðsþjálfari Spánverja, var ekki
yfir sig hrifinn þegar hann frétti að
aðeins f jórir atvinnumenn léku með is-
lenska landsliðinu hér í Malaga. —
Áhugamenn eru alltaf hættulegri
heldur en atvinnumenn. Þeir leika með
hjartanu og berjast geysQega, sagði
Munoz hér í blaðaviðtali.
— Islendingar eru verðugir
mótherjar. Þeir hafa orðið betri og
betri nú síðustu ár. Það hafa þeir oft
sýnt. Varnarleikur þeirra er mjög
sterkur og þeir beita hættulegum
skyndisóknum,” sagði Munoz.
Spánski landsliösþjálf arinn ætlar sér
greinilega að reyna að rjúfa vamar-
múr Islands því hann hefur valið tvo
spretthörðustu útherja Spánar til að
leika í Malaga — þá Pedraza frá
Gautaborgarliðið
heldur sínu striki
— Frölunda hefur sigrað í f imm fyrstu umf erðunum
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV i Sviþjóð.
Gautaborgarliðið Frölunda heldur
áfram sigurgöngu sinni i 1. deUdinni
sænsku i handknattleiknum. Á sunnu-
dag vann það sinn fimmta sigur í f imm
leikjum, þegar það sigraði
Kroppskultur 29—21. Frölunda hefur
nú 10 stig, tveimur meira en Karls-
krona og Vstad, sem koma næst með
átta stig.
Andrés Kristjánsson skoraöi fjögur
mörk fyrir GUIF gegn Svíþjóöamieist-
urum Heim í Gautaborg á sunnudag en
það dugði skammt. Heim sigraði 29—
22. Bo Andersson skoraði fimm af
mörkum GUIF. Andrés hefur skorað
21 mark í fimm fyrstu umferðunum og
er meðal markahæstu línumanna.
Landsliðsmaðurinn Basti Rasmuss-
en átti hreint frábæran leik þegar
Ystad vann Lugi 24—17 en allt gengur
hins vegar á afturfótunum hjá liði
landsliösþjálfarans Caj Ake Anders-
son, Vikingarna í Helsingborg. Það
tapaöi sínum fimmta leik á sunnudag,
25—19, fyrir Visby/Göte. Mark-
vörslunni hjá Gotlandsliðinu var
hrósað mjög en ekki kom fram í öllum
blöðunum hver hefði staöið þar í
marki. Þorlákur Kjartansson, áöur
markvörður Hauka og Vals, er hjá
Visby/Göte.
Lundarliðiö H43 heldur áfram að
psmHggjjBSjyatjysya"■ ’
koma á óvart. Það sigraði Drott 26—25
í Lundi og Stefan Sivert átti snjallan
leik. Þessi ungi leikmaöur er nú talinn
eiga víst sæti í sænska landsliðinu eftir
stórleiki í haust. Þá sigraði Karlskrona
Warta 23-16.
Eins og áður munu f jögur efstu liðin
í 1. deUdinni leika um sænska
meistaratitilinn í vor. Stig liöanna eftir
fimm umferðir eru þannig: Frölunda
10, Karlskrona og Ystad 8, GUIF 6,
Visby og H43 5 stig. Drott og Heim,
sem léku til úrslita í vor, eru með
fjögur stig svo og Warta og Lugi.
Kroppskultur hefur 2 stig og
Vikingamaekkert. -GAJ/hsim.
Atletico Madrid, sem er nýliði, og
Marcos frá Barcelona. Með þeim í
framlínunni verður hinn marksækni
Santíllana frá Real Madrid, sem
skoraði „Hat-trick” í spánsku 1.
deUdarkeppninni á sunnudaginn.
Greinilega búinn að pússa upp skot-
skóna.
Markvörður spánska liðsins verður
Arconada frá Real Sociedad, sem er
talinn einn besti markvörður heims.
Bakverðir verða þeir Camacho frá
Real Madrid og CordUlo frá Bastia, en
þeir léku í HM. Miðverðir verða hinn
ungi Bonet frá Real Madrid, sem
leikur sinn fyrsta landsleik, og Alvarez
frá SeviUa, sem er einnig nýliði. Á
miðjunni verður GaUego frá Real
Madrid, Victor, Atletico Madrid og
Senor frá Zaragossa, sem er enn einn
nýliðinn.
Landsleikur Spánverja gegn Islandi
í Malaga verður fyrsti landsleikurinn
hjá þeim eftir HM á Spáni í sumar og
ætla þeir sér að „slétta úr hrukkun-
um” og láta Spánverja gleyma árangri
liðsins í HM. Mörk, mörk og aftur
mörk er dagskipunin hjá leikmönnum
Uðsins. -klp/-SOS
Ársþing
Arsþing Badmintonsambands ís-
lands verður haldið laugardaginn 30.
október nk. í Snorrabæ við Snorra-
braut (Austurbæjarbíói). Hefst það kl.
10. Venjuleg aðalfundarstörf.
Þorsteinn Þorsteinsson.
„Það var gaman að þessum sigri.
Liðið berst vel og vörnin fyrir framan
mig er mjög sterk. Þess vegna finn ég
mig svona vel. Það er munurinn á
okkur og mörgum öðrum liðum í 1.
deUdinni að við berjumst fyrir sigri en
þaö er eins og Víkingar séu búnir að
gleyma því,” sagði Brynjar Kvaran,
markvörður Stjörnunnar, sem átti enn
einn glæsUeikinn og var maðurinn bak
við sigur Stjörnunnar í röð, 23—21, og
liöið úr Garðabænum, sem flestir töldu
að yrði að berjast í neðri hlutanum,
stefnir nú hraðbyri í úrslitakeppnina í
vor. Brynjar var í miklum ham í
markinu, varði aUs 19 skot í leiknum,
þar af tíu í síðari hálfleik, þegar mark-
varzla Víkings var í molum. Aðeins tvö
skot varin. Spennan var geysUeg loka-
kafla leiksins. Stjarnan tveimur
mörkum fyrir, 20—18, þegar níu
mínútur voru eftir. Víkingar reyndu
aUt sem þeir gátu tU að jafna en tókst
ekki. Ekki bætti Gunnlaugur dómari
Hjálmarsson úr fyrir þeim. Dæmdi tvö
mörk af Víkingum og aukaköst á
Stjörnuna í staðinn. Þar var hann of
fljótur á sér.
Leikurinn var skemmtUegur og oft
vel leikinn. Stjarnan gaf aldrei eftir,
barðist betur en mótherjamir og hafði
því sigur þar sem Brynjar var hetjan
og Eyjólfur Bragason mjög hættulegur
í sókninni. Þrátt fyrir tapið lék
Víkingsliðið oft skemmtUega. Einn af
betri leikjum þess í mótinu, þó svo
vörnin opnaðist stundum Ula og mark-
Eyjólfur Bragason, risinn í liði Stjörnunnar, sendir knöttinn framhjá risanum í Vfkingsliðinn, Magnúsi Guðmundssyni,
og í mark. EyjóUur er markahæsti leikmaður tslandsmótsins með 57 mörk í átta leikjum.
DV-mynd Friðþjófur.
varzlan væri lítU.
Leikurinn var mjög jafn framan af
þó svo Stjarnan skoraði tvö fyrstu
mörk leiksins. Víkingar jöfnuðu og
komust síðan tveimur mörkum yfir,
6—4. Juku þann mun í þrjú mörk, 8—5,
en þaö hefur verið segin saga í mótinu
aö þegar Víkingur kemst yfir er slakað
á. Stjaman jafnaði í 8—8 og síðan var
jafnt á öUum tölum upp í 12—12, sem
var staðan í hálfleik, Brynjar varði þá
m.a. víti frá Þorbergi Aðalsteinssyni
Fimmti Stjömusigui
— íslandsmeistarar
— Stjaman sigraði Víking, 23:21, í 1. deild í Laugardalshöll og stefnir I