Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Qupperneq 21
DV. ÞHIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982.
Jí
íþróttir
íþróttir
Íþrótt
Íþrótt
rinn í röð
nir lagðir
iraðbyri í úrslitakeppnina
minútu f yrir lokin.
Framan af síðari hálfleiknum var
jafnt, upp í 14—14. Þó kom góður kafli
hjá Víkingum. Þeir komust þremur
mörkum yfir, 17—14. En þá lokaöi
Brynjar alveg marki sínu, Víkingar
skoruðu ekki mark í næstum tólf
mínútur en Stjarnan á sama tíma
fimm. Þó varði Kristján Sigmundsson
vítakast en Stjaman náði knettinum og
skoraði. Stjarnan komst í 19—17 og
þessi kafli færöi þeim sigur í leiknum.
Þeim tókst að halda þessum mun,
komust meira að segja þremur
mörkiun yfir, 22—19, en Víkingar
minnkuðu muninn í eitt mark, 22—21.
Mikil spenna en Stjaman átti síðasta
oröiö. Greinilegt að Gunnar Einarsson,
fyrrum landsliðsmaður í FH og
Göppingen, er að ná upp mjög
skemmtilegu liði í Garðabænum. Fólk
þar í bæ kann að meta það. F jölmennti
í Höllina í gær og stuðningur þess var
Stjörnunni mikilsverður.
Auk Brynjars og Eyjólfs komust þeir
Guðmundur Þórðarson ' og Olafur
Lárusson einnig mjög vel frá leiknum.
Liðsheildin að verða sterk. Víkingsliðið
lék oft mjög skemmtilega í sóknar-
leiknum og skoraði falleg mörk. Þor-
bergur og Viggó Sigurðsson sterkir og
skoruðugrimmt.
Mörk Víkings í leiknum skoruðu
Þorbergur 7/2, Viggó 6/1, Olafur Jóns-
son 3, Steinar Birgisson 2, Magnús
Guðmundsson 2, Oskar Þorsteinsson 1.
Mörk Stjörnunnar skoruðu Eyjólfur
~T m.. m il
■ í i j if
8/1, Guðmundur Þórðarson 6, Olafur
Lár. 5, Guðmundur Oskarsson 2, Sigur-
jón Guömundsson 1 og Magnús Teits-
son eitt.
Víkingur fékk fjögur vítaköst í
leiknum. Nýtti þrjú. Stjarnan fékk tvö
vítaköst. Þrisvar var leikmönnum
Víkings vikið af velli. Olafi tvisvar,
Magnúsi einu sinni. Tveimur úr Stjöm-
unni, Guðmundi Oskarssyni og Ola
Lár. auk þess sem Eyjólfur fékk rauða
spjaldiö nokkrum sékúndum fyrir
leikslok.
liil
Pétur Ormslev var í hjólastól tvo fyrstu dagana eftir meiðslin í Dublin.
„Ég er ávallt til-
búinn í slaginn”
— segir Pétur Ormslev, sem hefur tvisvar sinnum meiðst
al varlega í landsleik
Enginn íslenskur knattspymumaður
hefur farið eins illa út úr að leika
landsleik fyrir ísland og Pétur Orm-
slev, knattspymumaður úr Fram, sem
leikur nú með Fortuna Diisseldorf.
Pétur var borinn af leikvelli í HM-leik
gegn Rússum 3. september 1980 á
Laugardalsvellinum, meiddur á hné og
þurfti þá að gera aðgerð á hnénu,
þannig að hann var frá keppni í langan
tima. Hann meiddist svo aftur i Dublin
á dögunum þegar einn leikmaður
írlands braut gróflega á honum þannig
að sauma þurfti tólf spor í skurð við
nára.
Hafa þessi óhöpp orðið til þess aö
Pétur er orðinn ragur aö leika lands-
leiki fyrir Island? — „Nei, ekki aldeil-
is. Ég tel það mikinn heiður að fá að
klæðast islensku landsliðspeysunni og
ég er ávallt tilbúinn í slaginn meðan ég
hef krafta til,” sagöi Pétur Ormslev,
sem er nú í stuttu f ríi hér heima.
Pétur sagði að hann hefði alltaf
hlakkað til að leika fyrir hönd íslands.
— „Eftir að ég byrjaði aö leika með
Diisseldorf hef ég talið dagana fyrir
landsleiki. Þaöer alltaf gaman að hitta
strákana í landsliðinu og leika með
þeim,” sagði Pétur.
Var í hjólastól
Pétur verður hér heima þar til 1.
nóvember en þá heldur hann að nýju til
V-Þýskalands. Hann mun ganga til
læknis hér heima þar sem saumarnir
eru enn í skurðinum. — Þetta hefur
gengið vonum framar hjá mér. Eg var
fyrstu tvo dagana í hjólastól en nú get
ég gengið nær óhaltur. Ég hef von um
að geta farið að æfa að nýju um miðjan
nóvember og síðan mun það koma í
ljós hve langan tíma tekur að koma sér
aftur í æfingu, sagði Pétur.
„Mikil pressa
á okkur"
— Nú hefur ykkur ekki gengið vel
hjá Diisseldorf?
— Nei, liðinu hefur ekki gengið sem
best. Það hefur orðið til þess að leik-
menn eru taugaóstyrkir og því náum
við ekki aö sýna hvað í okkur býr.
Þegar illa gengur hjá liðum bitnar það
yfirleitt á þjálfaranum. Þjálfari okkar
er nú orðinn valtur í sessi og auðvitað
hefur þaö sitt að segja — pressan er
einnig á honum, eins og leikmönnun-
um, sagði Pétur.
Það er svekkjandi fyrir Pétur að
hafa meiðst í Dublin því að hann átti að
leika í byrjunariiði Diisseldorf nokkr-
um dögum eftir leikinn gegn trum.
Hans tækifæri var komið, en það varð
ekkert úr því.
-SOS
Fjör á vetrarmóti TBR:
„Perla
íslands”
— Viðtal við Arnór
Guðjohnsenf spánska
blaðinu „AS”
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Malaga: — Það hefur
mikið verið skrifað hér um landsleik
Spánver ja og tslendinga, sem f er fram
í Malaga á miðvikudaginn. Spánska
stórblaðið „AS” lagði land undir fót á
dögunum og heimsótti tvo islenska
landsliðsmenn í Belgíu — þá Arnór
Guðjohnsen og Lárus Guðmundsson —
og birti viðtal við þá ásamt mörgum
myndum.
Fyrirsögnin á viðtalinu og greininni
um Arnór var: — ,,La perla Islanda”,
eða Perla Islands. Spánsku blaða-
mennirnir höfðu viðtal við forráða-
menn Lokeren þar sem það kom fram
að þeir myndu ekki láta Amór fara frá
sér nema fyrir 50 milljónir peseta.
Greinin um Lárus var undir fyrir-
sögninni: — „La Flcha de Water-
schei”, eða stórskytta Waterschei.
Þetta er aðeins byrjunin á skrifum
blaðanna og má reikna með aö miklu
meira verði skrifað um landsleikinn i
dagogámorgun. -klp/-SOS
YFIR 80 LEIKIR
SíAastliðinn laugardag fór Vetrardagsmót
unglinga fram í TBR-húsinu við Gnoðarvog.
Keppt var í tvilíða- og tvenndarleik í öllum
unglingaflokkum. Keppendur voru f jölmargir
frá 7 félögum; TBR, ÍA, KR, Val, Víkingi,
Hafnarfirði og Vestmannaeyjum. Stóð mótið
yfir frá kl. 2 tU 10 um kvöldið enda spilaðir S0
leikir. Var mótið hið líflegasta á köflum og
skemmtilegt á að horfa. ÚrsUt urðu sem hér
segir:
Hnokkar tvUiðaleikur:
NjáU Eysteinsson og Garðar Adolfsson, TBR,
sigruðu Sigurð Mýrdal og Karl Viðarsson, 1A,
15/0 og 15/0.
Tátur tvUiðaleikur:
VUborg Viðarsdóttir og Berta Finnbogadóttir,
lA, sigruðu Unni HaUgrímsdóttur og Guðrúnu
Eyjólfsdóttur, lA, 4/15,15/11 og 15/0.
Hnokkar-Tátur tvenndarleikur:
NjáU Eysteinsson og Bima Petersen, TBR
sigruðu Karl Viðarsson og VUborgu Viðars-
dóttur, IA, 15/12,1/15 og 15/3.
Sveinar tvUiðaleikur:
Guðmundur Bjamason og Pétur Lentz, TBR,
sigruðu Harald Hinriksson og Bjarka
Jóhannesson, IA, 17/15 og 15/10.
Meyjar tvdiðaleikur:
Guðrún Júlíusdóttir og Helga Þórisdóttir,
TBR, sigruðu Maríu Finnbogadóttur og Ástu
Sigurðardóttur 15/12 og 15/11.
Sveinar-Meyjar tvenndarleikur:
Ámi Þ. HaUgrímsson og Ásta Sigurðardóttir,
lA sigmðu Pétur Lentz og Guðrúnu Júlíus-
dóttur,TBR, 15/5 og 15/10.
Drengir tvHiðaleikur:
Snorri Þ. Ingvarsson og Ámi Þ. HaUgríms-
son, TBR/IA, sigraðu Amar M. Olafsson og
Áraa Kristmundsson, KR, 15/5 og 15/3.
Telpur tviUðaleikur:
Birna Hallsdóttir og Jóhanna Kristjánsdóttir,
Val, sigmðu Guðrúnu B. Gunnarsdóttur og
Kristinu Magnúsdóttur, TBR15/11 og 15/11.
Drengir-Telpur tvenndarleikur:
Snorri Þ. Ingvarsson og Guðrún Gunnars-
dóttir, TBR, sigruðu Sindra Skúlason og
Jóhönnu Kristjánsdóttur, Val, 15/3 og 15/1 .
PUtar tvUiðaleUtur:
Ari Eswald og Þorsteinn P. Hængsson, TBR,
sigruðu Indriða Bjömsson og Olaf Ingólfsson,
TBR, 15/11 og 15/13.
Stúlkur tvUiðaleikur:
Þórdís Edwald og Inga Kjartansdóttir, TBR,
sigruðu Þórunni Oskarsdóttur og Elísabetu
Þórðardóttur, KR/TBR, 15/7 og 15/11.
PUtar-Stúlkur tvenndaríeikur:
Þorsteinn P. Hængsson og Inga Kjartans-
dóttir sigruðu Þórdisi Edwald og Indriða
Bjömsson, TBR, 15/3 og 18/16.
Þjálfari Fortuna
Díisseldorf rekinn
Frá Axel Axelssyni — frétta-
manni DV í V-Þýskalandi: — Jörn
Berger, þjálfari Fortuna Diissel-
dorf, var látinn taka poka sinn í
gær og er þetta í 113. skipti sem
þjálfari í „Bundesligunni” er
látinn hætta hjá félagi, áður en
samningur er útrunnin.
Blöð hér í V-Þýskalandi sögðu í
morgun að þetta hefði komiö nokk-
uð á óvart því að stjóm Dusseldorf
hefði ákveðið í sl. viku að gefa
Berger hundraö daga tækifæri til
að rifa félagið upp úr öldudalnum,
sem það hefur verið í, áður en skipt
yrðiumþjálfara.
Nú þegar er búið að ráða nýjan
þjálfara. Það er Willibert Kremer,
fyrrum þjálfari Bayem Leverkus-
en. -Axel/-SOS
STAÐANI
1. DEILD
Staðan í 1. deild eftir sigur Stjöm-
unnar í gær.
KR 8 6 0 2 195—151 12
Víkingur 8 5 1 2 159—153 11
FH 7 5 0 2 188—151 10
Stjaraan 8 5 0 3 163-160 10
Þróttur 8 4 0 4 159—159 8
Valur 7 3 0 4 132—131 6
Fram 7 1 1 5 150—175 3
ÍR 7 0 0 7 120—186 0
Næsti leikur í kvöld í Laugardalshöll
kl. 20. Þá leika ÍR og Fram.
Markahæstu leikmenn.
Eyjólfur Bragason, Stjaraan 57/19
Ander-Dahl Nilsen, KR 49/28
Kristján Arason, FH 47/21
-hsim.
Viðar mætti
fyrsturtil
Torremolinos
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Malaga: — Aðeins einn ís-
lenskur landsliðsmaður var kominn
hingað til Torremolinos í gærkvöldi en
von var á landsliðshópnum í nótt —
eftir lánga og erfiða ferð frá London.
Þaö var Viðar HaUdórsson, bakvörður
úr FH, sem fór aðra leið hingað til
Torremolinos frá London heldur en
landsUðshópurinn, sem flaug til Barce-
lona, þaðan til Sevilla, þar sem lang-
ferðabíll beið eftir hópnum. Það er um
fimm tíma akstur frá Sevilla til
Malaga.
Astæöan fyrir því að Viðar fór ekki
með iandsUðinu er að hann var með
eiginkonu sina og ungan son með sér.
Viðar vildi ekki leggja á drenginn hina
erfiðu ferð landsUðsins. Hann flaug því
frá London tU Madrid og þaðan beint
tU Malaga. LandsUðshópur Spánar var
í sömu flugvél og Viðar og f jölskylda.
Atli kom ekki
til London
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Malaga: — AtU Eðvalds-
son mætti ekki tU London í gærmorgun
tU að vera samferða landsUðinu tU
Malaga. Fararstjóra K.S.Í. vissi ekki
hveraig á þessu stóð en vonast er eftir
að AtU komi eftir öðrum leiðum tU
Malaga.
Brann bikar-
meistari
— sigraði Molde í úr-
slitaleiknum á sunnudag
Brann frá Bergen varð á sunnudag norskur
bikarmeistari í knattspyrnu. Sigraði Molde 3-
2 í úrslitaleiknum í Osló. Skoski leikmaðurinn
Neil McLeod skoraði sigurmark Brann i
leiknum. Hann er fyrirliði Brann og var eitt
sinn hjá Southampton. Brann lék í 2. deild á
síðasta leiktimabili og sigraði Noregsmeist-
ara Vikings frá Stafangri í undanúrslitum
bikarsins. Komst síðan upp í 1. deild í haust.
Molde féll niður í 2. deild.
Brann hefur fimm sinnum orðið bikar-
meistari Noregs, 1923,1925,1973, og 1976 og nú
1982. McLeod var einnig í sigurliðinu 1976.
Hefur leikið 311 leiki fyrir Björgvinjarliðið.
hsim.
HM ekki
íKólombíu
Næsta heimsmeistarakeppni í knatt-
spyrau verður ekki í Kólombíu eins og
til stóð. Talsmaður forseta landsins
lýsti því yfir í gær í Bogota. Brasilía og
Bandaríkin eru reiðubúin aö taka HM
að sér, svo og Kanada og Mexíkó.
Derby áf ram
Hartlepool sigraði Derby 4—2 í
enska deildabikaraum í gærkvöld. Það
nægði 4. deildarliðinu ekki. Derby
komst í næstu umferð á betri marka-
tölu.