Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Qupperneq 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER1982.
Sviðsljósiö Sviðsljósið Sviðsljósið
DALLAS:
KYNLÍF, SVIK 00 PRETTIR
VERÐA ENN MEIRA ÁBERANDI
í þeim þáttum sem frumsýndir verða í vetur í Bandaríkjunum
Framleiösla Dallas-þáttanna heldur
áfram. Þeir þættir sem íslenska sjón-
varpiö flytur þessa dagana eru nokkuö
komnir til ára sinna. Þættirnir eru
unnir fram í tímann og einnig eru þeir
nokkuö gamlir þegar þeir koma hingaö
til sýninga.
Dallas-þættirnir eiga nú í haröri
samkeppni viö Dynasty-framhalds-
myndaflokkinn, sem er enn sjúklegri
og syndugri. Því hafa stjórnendur
Dallas gerst enn forhertari og grófari
en áöur.
Tímaritið National Enquirer hefur
komist yfir brot úr söguþræöi þeirra
Dallas-þátta sem tilbúnir eru en
ósýndir.
Dynasty-þættirnir eru orðnir vinsæl-
ustu framhaldsþættir í Bandaríkj-
unum og um tíma var Dallas komiö í
26. sæti þar vestra. En „Júvingamir”
eru ákveðnir í aö komast á toppinn
aftur. Til aö ná því takmarki hafa
stjórnendur þáttanna skipað svo fyrir
aö samin veröi „heitari” handrit en
áöur og eins mikiö af kynlífi og
prettuin komiö inn í þættina og mögu-
legt er. Samkvæmt heimiidum
National Enqu rer veiður reynt aö
gera konumar enn meira kynæsandi en
áöur og lögö mikil áhersla á föt og
tísku. Flegnir kjólar munu eiga enn
meir upp á pallborðið á Dallasbænum
og sundlaugaratriðum, hvar leikkon-
urnar munu klæðast bikini-baöfötum,
veröur troöiö inn hvar sem því verður
viðkomið. Og stefna stjórnendanna er
aö hafa ástarsenur eins spennandi og
J.R. platar
Sue Ellen til
að giftast sór
aftur svo að
hann fái sinn
skerf af arfi
sonarins.
Bobby og
J.R. munu
deila hart og
slást.
Pam og Sue Ellen verða sífellt i flegnari og fíegnari kjólum, það er þegar
þœr eru ekki i bikini. Kynlífssenum verður fjölgað i þáttunum i vetur vegna
mikillar samkeppni við Dynasty-þœttina.
Cliff Barnes gerði sjálfsmorðstilraun fyrir skömmu i Dallasþáttunum. Sue
Ellen og Afton nokkur þeystu að sjúkrabeði hans. Sú siðarnefnda á i fram-
haldi af þvi vingott við Cliff. Hún er leikin af Audrey Landers sem sóst á
myndinni.
æsandi og mögulegt er, án þess að
ergja eftirlitsmenn sjónvarpsstöðva.
Hér fylgja nokkur atriði úr sögu-
þræöi þáttanna, sem sýndir veröa ’82—
’83 og Miss Ellie mun leika stærra hlut-
verk en áöur. Nú er svo komið í þátt-
unum aö fjarvera Jocks er orðin
pínleg. Leikarinn er látinn og svo er
sagt í þáttunum að hann sé „týndur”.
En nú gerist þaö aö Ellie kallar fjöl-
skylduna saman og les erfðaskrá hans.
J.R. veröur enn áhrifameiri í fyrir-
tækinu en áöur en Bobby veröur líka
meira áberandi og sterkari. Bobby og
J.R. deila um framtíð fyrirtækisins og
gengur þaö svo langt aö til handalög-
mála kemur. Miss Ellie á sér aödá-
endur. Einn þeirra er olíu-furstinn
Clayton Farlow. Dale Robertson sem
leikur hann á aö leika í sex þáttum.
Höfundar Dallas hafa enn ekki ákveöið
hvaö verður um þennan karakter, en
svo mikiö er víst aö Ellie veröur ást-
fangin af honum og hugleiöir aö
giftast honum, J.R. til mikils hugar-
angurs. J.R. reiöist vegna sambands
móöur hans við Farlow og segir henni
að hún sé minningu föður hans ótrú.
Miss Ellie svarar og slær hann utan
undir. J.R. og Sue Ellen skildu í vetur
en á næstunni mun J.R. plata hana til
aö giftast aftur. Samband þeirra
veröur smátt og smátt hörmulegra en
nokkur sinni fyrr og þau halda bæöi
grimmt framhjá. Pam og Bobby skilja
líka og eignast nýja ástvini. Höfund-
amir hafa ekki ákveöið hvort þau taka
saman aftur. Charlene Tilton, sem
leikur Lucy, hefur ekki veriö meö um
skeiö vegna barnsburðar. Vera kann
að nýfætt barn hennar veröi „notaö” í
þáttunum. Sem kunnugt er var ólétta
hennar í þáttunum útskýrö meö því að
hún væri ólétt eftir að ijósmyndari
nokkur nauðgaði henni. Hún skilur viö
einhvem Mitch sem hún hefur gifst.
Cliff Barnes reyndi aö drepa sig á
síöasta vetri. Sem sagt tökur Dallas
fara aö mestu fram í svefnherbergjum
og sundlaugum, þaö er að segja þegar
ekki er veriö að taka slagsmálasenur
og svik og pretti.
ÞJOFARNIR GAFUST
UPP ER EVA FÉKK
NIÐURGANGINN
Nýlega var 3ja ára gamalli apynju
sem gengur undir nafninu Eva stolið
úr dýragarði í Chicago. Vom þjóf-
arnir tveir eituriyfjasalar sem álitu
aö Eva gæti komið þeim aö góðum
notum viö aö smygla inn eitur-
lyfjum.
Eva hefur veriö sérþjálfuö til að
skemmta börnum og getur t.d.
boröað meö skeiö og drukkið úr
bolla. Segir þjálfari hennar að hún sé
á svipuðu stigi og 4—6 ára barn.
Þjófamir ætluöu aö „endurhæfa”
Evu í íbúð sinni, en þá kom nú heldur
betur babb í bátinn. Þeir fóöruöu
Evu nefnilega á banönum, vín-
berjum, vatni og mjólk. Mjólkin olli
því aö Eva fékk hræöilegan niöur-
gang. Sáu þjófamir sér þá þann kost
vænstan aö reyna losa sig við dýriö.
Tróöu þeir Evu, sem er 15 kíló aö
þyngd, í lokaðan geymi og ætluöu aö
flytja hana þarmig til baka í dýra-
garðinn.
En lögreglan nappaöi þá viö
dymar á íbúðinni og tók þá fasta.
— Viö erum nú ekki vanir aö hafa
samúð með þeim glæpamönnum sem
viö tökum fasta, sagöi einn lögreglu-
mannanna síöar. — En þcgar viö
litum inn í herbergið þar sem dýriö
var geymt gátum viö ekki annað en
vorkennt þjófunum. Svo hryllilegt
var þar um aö litast eftir
magakveisuEvu.
»
Sjimpansinn Eva ásamt þjálfara
sinum, Pat Sass: Allir fegnir að
fá hana tilbaka i dýragarðinn.
' '