Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1982, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1982, Page 5
DV. LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER1982. „I flestum tilvikum eru þessi blöð mín nú prófarkalesin,” sagði hann, en játti jafnframt að hann hefði „slakað nokkuð á” í þeim efnum í seinni tíð. ,,Enda eru þetta ekki nein bók- menntaverk sem ég er að gefa út og því er kannski ekki eins mikil ástæða til nákvæmni og í gerð annars lesefnis. Sg játa þvi óhikað að þessi blöð eru ekki nein listaverk hvað útlit og stíl snertir.” Kvenmenn eru næmari.... — Við lestur blaða á borö við Eros og Sannar sögur verður ekki hjá komist að sjá að um nokkurs konar lifs- reynslusögur er að ræða en hvort þær eru sannar — hafi gerst i raunveruleik- anum — eins og nafn annars þessa blaðs gefur í skyn, er erfitt að dæma um. Otgefandi þeirra er spurður um sannleiksgildið. „Efniö i Sönnum sögum á, að því er mér skilst, að vera sannleikanum sam- kvæmt. Þetta eiga að vera sannsögu- legar lifsreynslusögur en hvort þær eru þaö allar, er vitanlega aldrei hægt aö vita með vissu. Viö skulum bara vonaaðsvosé.” — Það er greinilegt að konur eru í miklum meirihluta þeirra sem skrifa þessar sögur. Hvers vegna heldurðu að svosé? „Þetta eru að meira eða minna leyti ástarsögur, misjafnlega djarfar, og ætli kvenmenn séu ekki næmari á þá hluti heldur en karlmennimir. Ætli þeir finni því ekki meiri þörf hjá sér að skrifa um þessa hlutienkarlar.” — Hvaðan færöu þessar sögur? „Undantekningalítið eru þær teknar upp úr bandarískum blöðum...” — ...sem þú svo borgar viðeigandi greiöslurfyrir? „Já.” — Erþaðhátt verð? „Það er misjafnt eftir sögum.” — Hverjirþýðasvoþettalesefni? „Ja, eins og er, er ég með þrjá þýðendur í takinu. Annars þýði ég þetta mest s jálfur... ” — ...ogerþaðerfittverk? , ,Nei, ekki svo mjög. ” — Er eitthvað um það að Islend- ingar sendi ykkur sögur; sannar lífs- reynslusögur sínar af ástamálum? „Það er mjög lítið um það. Þó veit ég um einn tslending sem hefur stundað það nokkuð að setja saman svona sögur. Eg hef keypt eina og eina sögu afhonum.” ímyndunaraflið ræður ferðinni — Eitt af því sem maður rekur sig á í þessum „djarfari sögum” sem þú svo nefnir, eru ýmis skringileg og ég vil segja óvenjuleg nöfn á kynfærum karla og kvenna. Flestar þessara nafn- gifta eru svo til óþekktar. Hvaöan eru þær fengnar? „Þaö verður að játast að mjög erfitt er að þýða mörg þeirra orða sem Kaninn notar yfir þessa líkamshluta. Þessar þýðingar krefjast því jafnan nokkurra nýyrða, enda er íslenskt mál ekki auðugt af oröum yfir kynfæri manna. tmyndunaraflið ræður því oftast ferðinni i þessum efnum sem öðrum...,” sagði þessi útgefandi aö lokum. -SER. BÍLALEIGA Mesta úrvalið. Besta þjónustan. Skeiían 9, 108 Reykjavik s. 91-86915 Tryggvabraut 14, 600 Akureyri s. 96-23515 Bflbeltin hafa bjargað ||U^IFERÐAR „Flestar sögurnar eru stolnar!” „Eg er mjög kunnugur þessum bisness, og ég get sagt að megnið af þeim sögum er birtast í afþreyingar- blöðum og tímaritum er gripið ófrjálsri hendi úr erlendum magasín- um.” —Þetta fullyrti einn heimild- armanna okkar sem leitað var til í sambandi við „sjoppulitteratúrinn”. Hann hefur um árabil staðið sjálfur að útgáfu vasabrotsbóka og nokkurra tímarita — og ætti því að vera flestum hnútum kunnugur á þessum vettvangi. „Það má kannski segja að Islend- ingar séu svo fámennur lesendahópur þessa efnis i samanburði við aðrar þjóðir að það taki því ekki fyrir rétt- hafa þessara sagna að krefjast af okkur greiðslna fyrir höfundarrétt- inn.” — En hversu mikill hluti af- þreyingarsagna er stolinn? „Það verður aldrei hægt að nefna neinar tölur þar að lútandi. Hinsvegar veit ég að flestir útgefendur vasabrots- bóka borga höfundarlaun af sínum bókum, sérstaklega ef um verk met- söluhöfunda er að ræða. Annað af- þreyingarefni held ég að sé ekki greitt fyrir.” —Þessi heimildarmaður okkar bætti því við að mikill samdráttur væri í sölu nefndra blaða og tímarita. Það væri Utið hægt að græða á útgáfu þess lengur. Hann vildi kenna sívaxandi videoglápi fólks um þennan samdrátt. Fólk gæfi sér ekki lengur tíma tU að Utaibók. —SER: Hitablásarar fyrir gas og oííu Skeljungsbúðin Síðumúla33 símar 81722 og 38125 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. nóv. 1982. Sjálfstæðismenn kjósum Bessí Jóhannsdóttur formann Hvatar á þing! Kosningaskrifstofa að Suðurlandsbraut 14, 2. hæð. Sími 38636. Opið frá kl. 17.00—22.00 alla daga. Kiócandi PÓður! Þítt atkvæöi skiPtir jsjosanai goour. má|j _ yERTU MEÐ! STUÐNIIMGSMENN BESSÍAR JÓHANNSDOTTUR • • ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.