Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1983, Qupperneq 4
4 DV. MANUDAGUR 3. JANUAR1983. HÚSBRUNI VIÐ VITASTÍG ÁNÝÁRSDAG engin slys urðu á fólki Eldur kom upp í húsinu Vitastíg 11 í Reykjavík síödegis í gær eða milli klukkan þr jú og f jögur. Kona á fyrstu hæð hússins varð vör við reykjarlykt um svipað leyti og vegfarandi veitti athygli reyk sem lagði út úr húsinu. Eldurinn kom upp í kjallara hússins en barst síöan milli þilja upp á hæöirnar. Slökkviliðið kom fljótt á vettvang og gekk greiö- lega að ráða niðurlögum eldsins. Nokkrar skemmdir urðu en þó ekki verulegar. öllum íbúum hússins tókst aö bjarga út. Ovíst er um eldsupptök en að sögn rannsóknarlögreglunnar er annaö hvort um íkveikju að ræöa eða að eldurinn hefur kviknað út frá raf- magni. Rannsóknarlögreglan vill biöja vegfaranda þann sem varö eldsins var að hafa samband við sig sem fyrst. -PA. Aðaleldurínn var i kjallara hússins en barst i skömmum tima upp á hæðirnar. Rjúfa þurfti gat á þakið. Vitastigur 11 er steinhús en forskalað að hluta. D V-mynd Loftur. Róleg áramót um allt land Fjölmennt var að vanda við brennur i borginni. Þar lætur yngsta kynslóðin jafnan mest að sór kveðs og lætur loga á blysum og stjörnuljósum igrið og erg. Fullorðna fólkið fylgist samt grannt með og gætir þess að allt sé ilagi. DV-myndLoftur. —að undanskildum hörmungar atburðunum tveimur Áramótin fóru friösamlega fram um allt land og urðu hvergi nein slys eöa óhöpp. Nokkuö bar á ölvun sums staöar en þó var þaö vart meira en gengur og gerist um helgar. I öllum helstu kaupstööum landsins bar lögreglu saman um að áramótin hefðu verið með friðsamlegum hætti. Lögreglan átti þó víöa annríkt vegna veðurs, einkum var þaö hér sunnan- lands sem götur uröu illfærar. Veður var hins vegar mun betra noröanlands ogaustan. Lögreglan var þeirrar skoðunar að veðrið hefði átt sinn þátt í því hve ára- mótin hefðu verið róleg; fólk hefði greinilega haldiö sig sem mest heima við. -PÁ. Þessi ungi Islendingur lagði sitt af mörkum til að kveðja gamla árið. Alltaf erjafngaman að horfa i eldinn, sór i lagi efhann logar glatt. DV-mynd Loftur. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Ræða um þrjár guðsgjafir týndar Þá er þessi hátíð liðin og árið 1983 gengið í garð. Margar ræður höfum við heyrt, margt skaupið, og marga steikina höfum við borðað. Hátíðin var einskonar kúfur af mannfagnaði með sinni öndverðu, skuggahlið, sem færir okkur enn einu sinni heim sann- inn um, að ekki er alltaf valinn tím- inn til illra verka eða slysa. En mannfagnaðurinn er í fyrirrúmi og bregður birtu sinni yfir sviðið og það er fyrir mestu. Miðað við síðustu fréttir fyrir jólin virðist fólk enn hafa sæmileg efni til að halda upp á þau. Gjafir voru bornar í húsin, og engin krísa stóð yfir, nema ef vera skyldi fiskverðskrísan, en þessar krísur eru svo tíðar orðnar, að varla gefst ráð- herrum og þrýstihópum timi til að renna niður jólagrautnum fyrir þeim. Forsetinn flutti ræðu sína á nýárs- dag og vildi fá ár æskunnar á eftir ári trésins, eða ári gamalmenna, eða hvað þau nú hafa heitið þessi ár, sem yfir okkur hafa dunið. Forsetinn haföi nýlega sagt í útvarpsviðtali að hann filaði forsetaembættið í botn. Svarthöfði fílaði hann ekki á nýárs- dag, og sést á því hvaö Svarthöföi er menningarsnauður. Æskan er nefni- lega alveg nógu fyrirferðarmikil, þótt hún fái ekki heilt ár undir poppið. Forsætisráðherra hélt sina ræðu á gamlárskvöld og talaði skynsam- lega. Engir biöu þess að hann flytti þeim boðskap um nýjar lausnir, vegna þess að nú er stjórnarskeið á enda runniö, og ekki við því að búast að forsætisráðherra fari að lesa okkur endurreisnartillögur handa öðrum. En ræöa hans var merk um margt, og þó fyrst og fremst vegna þess, að þar fór menningarmaður af fyrstu gráðu, sem af alúð og kurteisi gat atriða, sem kannski verða okkar helsta heilsubót, þegar kreppan er skollin á. Að visu minntist forsætis- ráðherra á þorsk og loðnu. Hvort- tveggja er dvinandi. Þorskurinn minni en gert hefur verið ráð fyrir, en loðnan horfin og þjóðartekjur hafa hrapað niður úr öllu valdi. Á þeirri stundu þarf eitthvað fleira til úrlausnar en viljann. Útvarpsskaupið var eitthvert það ömurlegasta skaup, sem flutt hefur verið í gufuradíóinu siðan Svarthöfði fór að hlusta. Það var tvítekið á þeirri forsendu að það skyldi i helvítin. Hvernig stendur á þvi að snauðir menn eru látnir semja svona skaup? Eigum við ekkl betra skilið? Áftur á móti var skaupið í sjón- varpinu ágætt. En það var ekki endurtekið frekar en aðrir góðir hlutir. Þegar blöð halda árshátíðir eru gefin út gamanmál handa starfsfólkinu, sem oft og tiðum eru bráðfyndin. Blöðin fyrir jólin voru leiðinleg. í stað þess að birta alls konar spár og vitleysu ættu þau að hafa sitt áramótaskaup, birta alvöru lausan texta, af því það er sýnilega alveg banvænt fyrir þjóðina að láta gufuradióið eitt um þetta. Blöðin gætu dregið dám af privatblöðum árshátiða sinna. Margt verður rikisstjórnin sökuð um nú að ieiðarlokum, og fátt verður henni fyrirgefið. Eitt hefur hún þó sér til ágætis, og það er forsætisráð- herra, sem kann að koma fyrir sig orði. í ræðu sinni á gamlárskvöld minntist hann þjóðarbókhlöðunnar, sem byrjað var að leggja til á árinu 1974. Hann minntist hennar með hugarfari menningarmannsins, sem veit að þrátt fyrir allt skrifar þorskurinn ekki bækur. Þegar hann hafði fjallaö nokkuð um þjóðarbók- hlöðuna og þýðingu bókmennta fyrir mannlífiö, harmaði hann að innan þeirra væri um afturför að ræða. Það væri eins og þjóðin hefði týnt brag- eyranu. Það þarf kjark á okkar rim- lausu tímum tU að segja svona, með smáskáidin í öllum gáttum. En dr. Gunnar er ekki kominn af Jóni Thor- oddsen fyrir ekki neitt, manni, sem hóf skáldsöguna tU vegs á íslandi. Frá stjómmálum séð getum viö sagt sem svo, að dr. Gunnar hafi fært okkur heim sanninn um þrjár týndar guðsgjafir með ræðu sinni. Við höfum týnt þorskinum, loðnunni og brageyranu, og mátti það ekki minna vera. -Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.