Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1983, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR 28. APRIL1983.
19
á fólki og mjög erfitt aö fá stöðu í
Englandi.
Nú oröiö er að vísu líka erfitt fyrir
útlendinga aö fá stööu í Þýskalandi. En
útlendingur i Englandi fær bara enga
stöðu. 1 Þýskalandi eru svo ótrúlega
margar hljómsveitir. 1 hverri borg er
hljómsveit, ein eða tvær og víöa
margar. Þess vegna streyma út-
lendingar þangað: Bandaríkjamenn,
Japanir — fólk úr öllum áttum
•yfirleitt.
Kennslan mark-
vissari í Berlín
I London var fólkiö samt mun
skemmtilegra, þar sem maöur bjó og
svona ..., viökunnanlegra, opnara. En
í Berlín var kennslan markvissari;
stíf, hörð. Þar var svo sannarlega
haröur skóli. Kennarinn ætlaöist til
mjög mikils af hver jum nemanda.
Þetta var talsvert öðruvísi í London.
Englendingamir em afslappaðrí,
segja svona: „Þú gerir þetta eins og
þér finnst.” Þeir em svo þægilegir og
vilja helst aldrei skamma fólk, fara að
þvímeðnærgætni.
En sá þýski ... ja, maður var
næstum því sleginn. Andlega var
maður alla vega barinn sundur og
saman. Og margir fóra grenjandi út
frá honum. Ef maður þótti ekki hafa
æft sig nóg, þá sagði hann: „Þú getur
bara farið heim til þín. Þú hefur ekkert
að gera hér núna. Farðu heim til þín,
æfðu þig og komdu svo að því geröu. —
Hann ætlaði sko ekki að eyða tima
sínum í fólk sem ekki vann baki
brotnu.
Eftir Berlín byrjaði svo vinnuleitin. 1
um það bil hálft ár var ég íhlaupa-
manneskja; spilaði með hinum og
þessum hljómsveitum, ef einhver var
veikur, og svoleiðis, bæði í Berlín,
Vestur-Þýskalandi og Austurríki.
Þetta gekk, vegna þess að músík-
heimurinn í veröldinni er frekar litill
og maöur þekkir svo marga í hljóm-
sveitum út um allt.
Hljómsveitin
greiðir atkvæði
Siöan fór ég prafuspil, eins og það er
kallað.
— Þannig er, aö það er blað sem
auglýsir lausar hljómsveitarstöður í
Þýskalandi. Maður verður þá að senda
inn upplýsingar um nám sitt og feril og
allt það. Síðan er kannski tiu til tólf
manns boðið að koma og flytja prufu-
stykki.
Maður stendur svo uppi á sviði og
spilar. 1 fyrstu umferð detta svona átta
til níu manns út. Og í annarri umferð
halda kannski þrir—fjórir áfram. Þá
eru spiluð stykki úr hljómsveitarverk-
um, sem lögð era fyrir.
Öll hljómsveitin, sem er að leita að
manneskju, hlustar á og meðlimir
hennar greiða svo atkvæöi um hvern
skuli velja. Þetta f innst mér vera mjög
gott fyrirkomulag. Þarna er ekki bara
smánefnd sem velur, heldur ræður öll
hljómsveitin.
Þegar staðan hefur verið veitt þá
skrifar maður undir samning til eins
árs, svokallaðan prufusamning. Eftir
sex mánuði af þessu ári þá er þó aftur
atkvæðagreiðsla um það hvort viðkom-
andi hafi staðiö sig nægilega vel eða
hvort hann verði rekinn að árinu liðnu.
Þetta er sko lýðræöislegt og gengur
vel.
Þannig var ég ráðin 1. óbóleikari
Rínlensku Fílharmóníunnar í Koblenz
og nú er ég komin á annað ár og get
farið að rífa kjaft ef mér sýnist. — Á
meðan prafuárið stendur yfir hefur
maðurnefnilega ekki atkvæðisrétt.”
„Hvað heflar
þúþykktút?"
Einhverjar gransemdir hafði blaða-
maður um að Sigríður fengist sjálf við
að semja en því máli var eytt í snar-
hasti: „Nei, það er nú lítið,” var allt og
sumt sem hafðist upp úr krafsinu. Og
sú var nú aldeilis logandi snögg aö
finna nýttumræðuefni:
„Minn tími fer aðallega í að æfa mig
eöa búa til blöð á óbóið. Obó er spilað
með munnstykki sem er meö tveimur
bambusblöðum, bundnum saman.
Þetta verður maður alltaf að gera;
'hefla þetta út allt saman og tálga með
hnífum og ég veit ekki hyað og hvað,
■mæla og svoleiðis. Bróðurpartur heils
dags getur hæglega farið bara í það aö
finna rétt blað.
Hver óbóleikari gerir sin eigin blöð.
Þetta fer allt eftir munnstillingu og
guð má vita hverju. — Það er líka allt-
af sagt um óbóleikara að þeir verði vit-
lausir eftir svona tíu—tuttugu ár;
verði bara brjálaðir. Það stafar af of-
framleiðslu á blöðum.
Eg get sagt þér til dæmis að þegar
tveir óbóistar hittast þá spyr annar:
„Hvað heflar þú þykkt út?” Þá segir
hinnkannski: „Fimmkommasjö.”Og
þá hlær spyrjandinn sig alveg mátt-
lausan. Þetta skilur náttúrlega ekki
nokkur maður sem ekki er innvígður.
Jæja, en í Koblenz hef ég nóg að fást
við. Það er mikið að gera í hljómsveit-
inni og svo er ég í kammermúsík. Eg
er auk þess í tveimur blásarakvintett-
um. Annar tilheyrir hljómsveitinni.
Hinn er með ungu fólki sem égkynntist
í Berlín. Þar lærðum við saman og ger-
um nú mikiö að því að fást við nútíma-
tónlist og svoleiðis.
Enn sem komið er höfum við ekkert
flutt af verkum eftir íslensk tónskáld.
En við höfum einmitt verið að
spekúlera í því undanfarið að reyna að
finna eitthvað. Eg ætlaöi að athuga
núna hvað er til sem gaman væri að
koma á framfæri erlendis.
Því miður hef ég svo nauman tíma.
Eg verð að fara aftur 6. maí. Það var
algjör tilviljun sem réði því að ég gat
skotist heim núna. Rinlenska Fíl-
harmónían er nefnilega einmitt að
flytja verk þar sem ég þarf ekki að
vera með.
Eg hefði annars gjarnan viljaö spila
hjá Tónlistarfélaginu.
Rauðmaginn
alveg æði
Annars voru mikil viðbrigði að koma
heim í þetta skiptiö. Nú er bókstaflega
komið sumar í Koblenz; allt útsprang-
ið og fínt. Hér er allt kalt og frosið. En
það er gott loftið hérna og vatnið og
mikið finnst mér alltaf hressandi að
komast heim.
Þetta er þó í fyrsta skipti sem ég hef
komið heim á þessum árstíma og fékkj
rauömaga, sem ég hef ekki komist í í
níu ár; nýjan rauðmaga! Hann var al-
veg æði. Svo hef ég fengið lifur, hrogn
og þetta allt saman. — Ég reyni alltaf
að komast heim svona einusinni á ári.
Mér finnst líka svo ánægjulegt hve
tónlistarlif héma á Islandi hefur aukist
síðan ég var heima. Það hefur komið
óskaplega mikill kippur í það síðan ég
fór út fyrir níu árum. Konsertstarf-
semi, bæði með stórum hljómsveitum
og kammermúsík, hefur aukist hreint
ótrúlega. -FG
l.maí
Opið hús
— Kaffiveitingar
Hið nýja húsnæði VR í Húsi verzlunarinnar verður tU sýnis
fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra 1. maí frá kl. 15-18.
F élagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Kaffiveitingar.
Lúðrasveit leikur frá kl. 15.
Veriðvirkí VR.
V erzlunarmannaf élag
Reykjavíkur
SKÓLI ÁSU JÓNSDÓTTUR
VÖLVUFELL111 AUGLÝSIR:
Innritun fimm og sex ára barna fyrir skólaárid 1983—1984 fer
fram í skólanum alla virka daga til 20. maí.
Lögd er áhersla á einstaklingskennslu og verkefni við hcefi hvers
og eins. Skólinn tekur við börnum úr öllum hverfum.
Allar upplýsingar í sima 72477 kl. 8—10 f.h. og 1—3 e.h.
SkóJastjóri.
Tilkynning
frá lífeyriss jóöum í vörslu
Tryggingastofnunar ríkisins.
Frá og með maímánuði 1983 verða greiðslur til lífeyrisþega í
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóði sjómanna og
Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna lagðar inn á bankareikninga
fyrsta virkan dag hvers mánaðar.
Reykjavik, 27. apríl 1983.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Lífeyrissjóður sjómanna.
Lífeyrissjóður hjúknuiarkvenna.
Fjölþætt
sálvaxtarnámskeið
Breski leiðbeinandinn
Helen Davies M.A. heldur
hér á landi
A. Helgamámskeið (30. apríl—1. maí) þar sem kenndar
verða aðferðir sem losa um vöðvaspennu, leiðrétta ranga
öndun, bæta tjáningaraðferðir og auka almenna vellíðan.
Námskeiðið byggir á aðferðum mannúðarsálarfræði.
Wilhelm Reich, C.G. Jung, Stanislav Grof og Gestalt
meðferð.
B. Fyrirlestur í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl kl. 20.30
sem ber heitið „Bodywork and the transpersonal”.
Aðgangseyrir 30 kr.
Upplýsingar og skráning á námskeiðið er í Miðgarði, Báru-
götull.S. 12980 kl. 13-18.
Ath. Takmarkaður
þátttakendafjöldi.
/VIÐG/IRÐUR
Sjálfsbjargarfélagar
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra og M.F.A. (Menningar-
og fræðslusamband alþýðu) hafa ákveðið að gangast fyrir
tveimur helgamámskeiðum fyrir fatlaða.
Fyrra námskeiðið verður haldið á Akureyri, í Bjargi,
dagana 7. og 8. maí, en síðara námskeiðið verður í Sjálfs-
bjargarhúsinu í Reykjavík dagana 14. og 15. maí.
Námskeiðin hefjast kl. 9.00 f .h.
Dagskrá þeirra verður:
LAUGARDAGUR:
1. Helsturéttindilaunafólks:
a) í veikinda- og slysa tilfellum
b) í uppsagnartilfellum
c) Tilorlofs
d) Samkvæmt vinnulöggjöfinni
e) TO atvinnuleysistrygginga
2. Hlutverk trúnaðarmanna á vinnustöðum
3. Lög um almannatryggingar
SUNNUDAGUR:
1. Lífeyrissjóðir og hlutverk þeirra
2. Lög um málefni fatlaðra
Námskeiðunum lýkur fyrir kvöldmat á sunnudagskvöld.
Æskilegt er að þátttakendur verði frá sem flestum Sjálfs-
bjargarfélögum.
Þátttaka vegna helgamámskeiðsins á Akureyri tilkynnist til
skrifstofu Sjálfsbjargar félags fatlaðra á Akureyri fyrir 4.
maí, en vegna námskeiðsins í Reykjavík til skrifstofu lands-
sambandsins fyrir 11. maí.
SJÁLFSBJÖRG, LANDSSAMBAND FATLAÐRA.