Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Qupperneq 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ1983.
Ibúðasölumálið í Kaupmannahöfn:
„Mjög alvar-
leg ásökun”
— segir Peter Rasmussen sem stefnir
Önnu Krist jánsdóttur fyrir rógburð
„Anna segir umboö mitt fasaö. Þaö
er mjög alvarleg ásökun á hendur lög-
gi tum skjalaþýðanda, ekki sist þegar
við bætist aö ég hef í höndum staðfest-
ingu frá 20. maí 1983, undirritaða af
önnu sjálfri hjá lögfræðingi kaupenda
íbúðarinnar, um að umboðiö sé í fullu
gildi. Ella heföi ég steinhætt öllu
saman og Anna heföi getað átt sina
skuldasúpu sjálf.”
Þetta sagði Peter Rasmussen, sem
sakaður hefur verið um misferli í sam-
bandi viö sölu á íbúð sem Anna
Kristjánsdóttir átti í Kaupmannahöfn,
svo og á innbúi og munum úr sömu
íbúö. DV átti viðtal við hann um þessi
mál í Kaupmannahöfn fyrir
skemmstu, þar sem fram kom meðal
annars að Peter hafði haft umboð til að
annast fjárreiður og bankamál Önnu
Kristjánsdóttur, seljanda íbúðarinnar
sem deilan snýst um, í tvö ár, sem ekki
hefði verið hægt nema með allsherjar-
umboði.
„Það sem Anna áttar sig alls ekki
á,” sagði Peter Rasmussen ennfrem-
ur, „er að fasteignasala, lánaviðskipti
og fasteignaverð er með talsvert
öðrum hætti í Danmörku en á Islandi.
Fasteignamat hér til dæmis hefur
lækkaö jafnt og þétt frá 1979 og
útilokaö að kalla að selja hér íbúð með
hagnaði, sem keypt er eftir þann tíma.
Það er frjálslega meö farið að ég eða
fasteignasali önnu höfum heimtað
„geðheilbrigðisvottorð” af íslenskum
hjónum sem höfðu hug á að kaupa
þessa íbúð. Aftur á móti sagðist fast-
eignasalinn ekki vilja hætta viðskipta-
leyfi sínu með því að gegnumgangast
sölu af þessu tagi, nema þau hefðu lög-
fræðing sem staðfesti kaupin og
ábyrgðist greiðsluna. Annars hefðu
þau sem hlunnfarnir kaupendur getaö
neitað að standa við gerða hluti og
jafnvel farið illa með fasteignasalann
og seljandann.
Mér vitanlega hafði ekki verið skipt
um skrá í íbúöinni þegar þau komu að
skoða hana. Hins vegar geta aðilar
sem áttu aö sjá um flutning á hús-
gögnunum vel hafa brotið lykil í
skránni eða annaö slikt, og ég gat ekki
ráölagt þessu fólki annaö en verða sér
úti um lásasmiö til hjálpar. Sjálfur
hafði ég aldrei lykla að íbúðinni. Það
hafði aftur á móti fasteignasali
hennar.
Peter fíasmussen: „Mjög alvar/eg ásökun á hendur /öggi/tum skjaiaþýö-
anda."
Veöskuldir eru þannig upp settar hér
aö sé ekki staðið í skilum eins og vera
ber er öll skuldin gjaldfallin og ekki
hikaö við að ganga eftir þvi. Anna
greiddi ekki afborgun sem hún átti aö
greiða í desember og stóð þá uppi með
skuld upp á dkr. 27.915,88 í afborganir
og vexti. I lok nóvember var henni sent
söludæmi sem hljóðaði upp á um sjö
þúsund króna tap og hún var ásátt með
það. Hins vegar opnaðist möguleiki
með breyttu lánafyrirkomulagi sem
tók gildi 1. mars til að taka nýtt veðlán
og greiða með því upp gömlu lánin.
Þetta gerði ég fyrir önnu hönd og tókst
með því jafnframt að spara þessi 27
þúsund þannig aö Anna slapp skuld-
laus frá sölunni, meira að segja þannig
aö þaö kostaöi hana ekki eyri aö eiga
íbúðina frá 1. júlí 1982 til söludags. Eg
skýrði henni frá þessum sölumögu-
leika fyrst í mars, en því miður í síma
svo það er óstaðfest, og þá samþykkti
hún þetta. Kaupverð á afsali var dkr.
400 þús., sem með afföllum gerir um
369.000 dkr.
Flutningur á húsgögnunum var hins
vegar aldrei á minni könnu, enda hafði
ég ekki lykil að íbúðinni og ekki hug-
mynd um það er kaupin voru gerð að
hún væri með húsgögnum enn. Það var
annar vinur önnu sem var beöinn að
sjá um flutning á húsgögnunum og
hann taldi þaö myndi kosta um 22 þús-
und krónur að búa þau til flutnings og
vildi fá tryggingu fyrir því fé. Anna
hafði þá, er þar var komið, látið 11 þús-
und króna lán gjaldfalla á mig og ég
hafði ekki áhuga á að taka á mig fleiri
skuldir hennar vegna. Hins vegar varð
ég að sjá um að íbúðin yrði tæmd til
þess að standa við skuldbindingar um
sölu hennar, svo ég tók besta tilboði í
innbúið sem var 5 þús. krónur. Hver
sem er getur gengið úr skugga um verð
á notuöum húsgögnum hér, bara með
því að líta í auglýsingar í Politiken.
Kaupandi húsgagnanna neitaði hins
vegar að taka skáp sem í íbúðinni var,
með teikningum og þvíumlíku, sem
hann taldi of persónulegt til að hrófla
við því. Þegar kaupandinn flutti inn
hafði hann samband við mig og
skammaði mig fyrir að hafa ekki f jar-
lægt þetta dót líka. Þá vildi svo vel til
að Anna var hér í borginni og ég kom
boðum til hennar að sækja þetta dót á
tíma sem nýi íbúöareigandinn haföi
tiltekið. Anna kom hins vegar fyrir
tilsettan tíma og fór inn í íbúðina,
líkast til um bakdyr, og tók eitthvað af
dótinu úr skápnum. Hvers vegna hún
tók ekki allt veit ég ekki og skipti mér
ekki af.
Kynni min af önnu hófust með þeim
hætti að hún og kona mín voru vinkon-
ur. Það var af þeirri vináttu að við
tókum að okkur að hjálpa henni með
fjárreiður hennar hér. Henni er full-
kunnugt um að við höfum engu að
leyna í þessu sambandi, og kannski
gerir hún sér ekki grein fyrir hvílíkan
skaða hún gerir mér meö þessu. Eg á
ekki annarra kosta völ en aö stefna
henni til að hreinsa mannorö mitt og
hef beðið lögfræðing minn á Islandi að
geraþað.”
-S.H.
Svomælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
HINN FRIÐLAUSI
Þær fréttlr berast nú frá Líbanon
og Sýrlandi, að Yasser Arafat sé
kominn í mikii vandræðl, er fjöl-
mennlr hópar skæruliða Palestinu-
manna hafa snúist gegn honum, en
Sýrlendlngar gert hann landflótta.
Hinn fyrrum glaðbeitti maður og
vinsæll má hvergi höfði haila i ætt-
iöndum sinum, en leitar nú stuðnings
í kommúnlstaríkjunum. Virðlst ljóst,
að komið er að kaflaskilum í deilum
tsraeismanna og Araba.
Herför tsraelsmanna i Libanon
var mjög umdeild á sinni tíð. tsraeis-
menn og þelr, sem hafa samúð með
málstað þeirra, bentu á, að herförln
væri gerð til þess að koma á friði í
þessum helmshluta. PLO var búið að
koma sér vel fyrir i Libanon og hafði
dvöl þeirra i landinu orðið tU þess að
borgarastyrjöld rikti í landlnu, en
það hersetið af Sýrlendingum og
PLO-mönnum. Allar horfur voru á
því, að Libanon myndi liðast í
sundur, og Sýrlendingar sóttust
mjög eftir því að tryggja sér meö
valdi leið tU sjávar og efla þannig
riki sltt.
Herför tsraelsmanna tókst í aUa
staðl. Þeir ráku PLO-menn úr
Libanon og þeim var tekið vel af
meirUiluta Libanonbúa, sem vitan-
lega óska þess fyrst og fremst að lifa
í friði. t framhaldi af þvi hafa átt sér
stað friðarumleitanir, og tsraelmem
hafa lýst þeim vilja að fara úi
Líbanon, ef aðrir erlendir herflokkai
gerl slíkt hið sama. Það hafa hinc
vegar Sýrlendlngar ekki vUjað gera,
og þegar í ljós kom, að Yasser Arafat
vUdl einhverja friðsamiega lausn i
málefnum PLO, þá varð hans
persóna non grata í Sýrlandi og er
rekinn þaðan, en ofstækisfuUlr
hernaðarsinnar hef ja uppreisn gegn
honum. Er nú svo komlð, að PLO-
menn berjast innbyrðis.
Ekki er vitað tU þess, að menn hafi
skotlð á fundum hér á landi, eftir að
hermdarverk PLO-manna fóru að
bitna á þeim sjálfum, en hins vegar
tala fréttamenn útvarps og sjón-
varps ennþá tun, að upphaf átaka í
Libanon sé að rekja tU herfara
tsraelsmanna. Er þar enn á ferð sú
einkennUega sjálfseyðingarhvöt,
sem margir vestrænir fréttamenn
eru baldnir af, einkanlegar banda-
rísklr, en sjónarmið þelrra eru mjög
ráðandi í fréttum útvarps og sjón-
varps. Þessa sér líka glögglega stað
í fréttaplstlum Helga i Washington,
— hans sjónarmlð eru glögglega
gegn stefnu Reaganstjórnarlnnar,
hvert sem málefnlð er. AUs staðar
eru það Bandarik jamenn, sem koma
Ulu af stað, en þagað um hina.
Forseti Líbanon hefur vUjað koma
á friði i landi sinu. Hann hefur óskað
eftir því við erlend herveldl, tsraels-
menn, PLO-menn og Sýrlendlnga, að
koma sér burtu úr landlnu. tsraels-
menn hafa lýst sig tUbúna að fara
með þeim skUyrðum, að tryggt sé að
Líbanon verðl ekkl bæklstöð manna,
er vUji gera árásir á Israel. Forseti
Líbanon er sammála þessum skU-
yrðum, enda vUl hann ekki, að land
hans og þjóð verði fyrir árásum
tsraelsmanna. Það er því ljóst, að
friðarviðræður stranda ekki á vUja-
leysi manna í Beirút eða Jerúsalem.
Forseti Bandaríkjanna hefur lýst sig
fylgjandi sáttmála tsraels og
Líbanon.
Hins vegar hafa kommúnistaríki
og Sýrlendingar farið hamförum
gegn öUum friðarviðræðum. Það
vlrðlst eins og hugtakið friður táknl í
þeirra augum uppgjöf andstæðlng-
anna. Ekki er vitað, hvað gerlst í
ferð Yassers Arafat tU kommúnista-
rikjanna. En búast má við, að hann
kaupl völd sin þvi verði að snúast
aftur tU hernaðarstefnu fyrir samtök
sin, en reyni ekki framar að ná fram
stefnu sinni á friðsaman hátt.
Svarthöfði.