Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd V Þaö var áberandi við páfaheim- sóknina hvað fólki óx kjarkur til þess að láta i ljósi fylgi sitt og stuðning við hina óháðu verka- lýðshreyfingu og „Einingu” sem verkföllin í skipasmíðastöðinni i Gdansk ólu af sér um árið. Páfinn kom og páfinn fór og hvað svo? Jaruzelski hershöfðingi og vald- hafarnlr annars vegar en Jóhannes Páll páfi og leiðtogar kirkjunnar hins vegar. Ágreinlngur spratt upp um hversu mikið hinir síðarnefndu mœttu blanda sér í pólitikina eða hvort mannréttindi kæmu kirkjunni nokkuð við. öryggissveitir og iögregla voru víða mætt grá fyrir járnum og með mikinn viðbúnað en höfðu lítil af- ,,Hann færði okkur átta bjarta daga og nokkra til viðbótar til þess að njóta minninganna. En hvað svo?” — Þannig spurði miðaldra pólsk kona sem horfði á Jóhannes Pál páfa ljúka annarri pílagrímsför sinni til fööurlandsins. Heimsóknin var páfanum sjálfum til mikils álitsauka. Opinskáar ræður hans og djarfmæltar vitna um þor hans og dug. En hitt er svo flestra hald aö í bráð muni ekki hljótast af henni neinar meiri háttar breytingar á pólska þjóðfélaginu þegar yfirvöld hafa að undanförnu verið að smá- herða tök sín á stjómmálalífinu og hugmyndafræðilegum skoðanaskipt- um. Þrátt fyrir fjölmennar mótmæla- aögerðir fylgismanna hinnar óháðu verkalýðshreyfingar, „Einingar”, sem er bönnuð, og þrátt fyrir einka- fund leiðtoga „Einingar”, Lech Walesa, með páfanum á síðasta degi heimsóknarinnar sýnist Varsjár- stjómin afar ólíkleg til að slaka á afstöðu sinni og leyfa endurreisn hinna óháðu verkalýðsfélaga. Embættismenn sögðu meðan á heimsókninni stóð að ákvaröanir um hvort aflétta skuli herlögunum eða sleppa lausum öllum þeim sem dæmdir voru eftir ákvæðum þeirra mundu alveg undir því komnar hvemig heimsóknin færi fram eða hvaða dilk hún drægi á eftir sér. Einn nánasti ráðgjafi Jaruzelskis hershöfðingja, æðstráðanda í Pól- landi, lét hafa eftir sér, aö heim- sóknin kynni að flýta fyrir afnámi herlaganna og nefhdi jafnvel þjóð- hátíðardag Póllands (22. júli) næst- komandi sem hugsanlegan i því sam- bandi. Þaö er þó óráðiö í biii. Pólska stjórnin er ekki líkleg til þess að flana aö neinu í því máli. Ovænt rúsína í pylsuendanum var seinni fundur Jaruzelskis hers- höfðingja með páfanum á næstsíð- asta degi heimsóknarinnar. Það hafði alls ekki verið gert ráð fyrir þeim fundi í stundaskrá heimsóknar- innar. Hvor um sig gaf út sína yfir- lýsingu um þær viðræður og stönguð- ust þær á. Þær sögðu þó fátt um hvað þeim hafði farið á milli, Jaruzelski og páfanum, og vöktu því þeim mun meiri vangaveltur um að þar kynnu að hafa verið notuð hin stóru orðin; kannski um hlutverk kirkjunnar í leit aö lausn á vanda Póllands; kannski um það hversu opinskár páfi var í ræðum sínum sem kom jafnvel hans nánustu fylgismönnum á óvart. Milljónir Pólverja þyrptust til úti- guðsþjónustu þar sem páfinn hafði viðkomu í Póllandi og röðuöu sér meðfram leið hans á milli þeirra átta staða sem hann heimsótti. Stærstu dómkirkjur troðfylltust og mann- hafið, sem hlýddi á utandyra, var feikimikið. Mest fjölmenni á einum stað var í Krakow og er talið að þar hafi hartnær tvær milljónir manna verið viðstaddar messugjörðina, auk svo allra hinna sem hlýddu á út- varpsúísendingar. Þetta fólk kom eða hlýddi á til þess aö leita sér upplyftingar i tæpitungulausum boðskap fyrrum erkibiskups síns. Allt ætlaði um koll aö keyra af fagnaðarlátum þegar páfinn í ræðum sínum hvatti til þess að mannréttindi væru virt og borgaraleg réttindi þegar hann lýsti því yfir að verka- lýðurinn hefði heilagan óskoraðan rétt til þess að stofna verkalýðsfélög að eigin geöþótta og án þess að leita leyfis yfirvalda og hvatti fólk til þess aö halda sig á sannleikans vegum. Frelsið og réttlætið mundi þá ríkja. I kveðjuræðu, sem Henryk Ja- blonski ríkisleiðtogi flutti páfanum, sagði hann aö margt hefði komið fram í ræðum páfans sem færi saman við grundvallarstefnu kommúnistastjómarinnar, þar á meðal krafa hans um félagslegan frið og umburðarlyndi. En þaö kvað við annan tón hjá þeim þúsundum Pólverja sem raðað höfðu sér á nærliggjandi hóla og hlýddu á Jablonski. Þeir tóku að hrópa: „Lech Walesa. .. . Lech Walesa!” — Það var táknrænt fyrir það hvemig veifur og slagorð „Einingar” voru sí og æ hafðar á lofti í páfaheimsókninni eða eins og þama nafn leiötoga verkalýðs- hreyfingarinnar. Auðvitað haföi allan tímann legið i loftinu þessi hætta á að heimsókn páfans kynni að snúast þannig gegn yfirvöldum. Og ýmis teikn sáust þess að ráðamönnum varð hreint ekki um sel þegar f/lgismenn, Jíiningar” tóku aö láta á sér kræla í sívaxandi mæli, eða hvernig ræður páfans framkölluðu dirfsku hjá fólki til þess að sýna stuöning sinn viö óháðu verkalýðshreyfinguna. Þar kastaði tólfunum þegar páfinn hafði lokið síðasta embættisverki sínu í heim- sókninni. Eftir að páfinn hafði vígt nýja kirkju í stáliðjuútborginni Nowa Huta gengu þúsundir fylgismanna „Einingar” fylktu liði um strætin með veifur og merki „Einingar” á lofti og hrópuöu: „Páfinn stendur með okkur! ” — Aðrir hópar söngluðu í kór: „Engar barsmíðar í kvöld!” en þar var skírskotað til þess að lögreglan hélt óvenjuvel aftur af sér og haföist lítið að þótt hún væri mætt fjölmenn á staöinn. Raunar átti það við allan tímann sem heimsókn páfa stóð yfir að lögreglunni var sparlega beitt gegn mótmælenda- og kröfu- hópum þótt hún sæist alls staöarmeö mikinnviðbúnað. Það mun reyna fljótt á það hvort þetta umburðarlyndi yfirvaldsins á eftir að endast eitthvað eftir brottför páfans. Raunar verður þaö strax í dag því að þá munu verka- menn í Poznan að venju minnast þeirra sem létu lífið þegar lögreglan hóf skothríð á mótmælendur árið 1956. — Þegar páfinn heimsótti Poznan á þriðjudaginn í síðustu viku kvaðst hann knékrjúpa til þess að heiðra minningu þessara fórnar- lamba mótmælanna 1956. Þann dag girti lögreglan af minnisvaröann um hina föllnu, handtók einn sem gekk um í sumarbol merktum ,^Soli- darinocs” og lagði hald á rauð-hvíta veifu „Einingar” semannar bar. Kaþólikkar segja að páfinn hafi komið fram sem talsmaður sinnar þjóðar. Sem Pólverji, sem æðsti maður Páfagarðs og trúarleiðtogi hins yfirgnæfandi meirihluta kaþólskra í Póllandi hafi hann verið eini maðurinn í aöstöðu til þess aö gera það af slíkum krafti. „Hann kom og flutti okkur sann- leikann. Eftir alla ringlulreiöina var fólk farið að ruglast af öllum áróðrin- um hérna. Hann leiðrétti gildismat fólksins og kenndi því að skilja aftur rétt frá röngu. Áhrif hans voru feiknarleg,” sagði einn af pólsku blaðamönnunum við vestrænan starfsbróðursinn. Lokaboðskapur páfans til þjóðar sinnar var sá að fólkið þyrfti að vinna hörðum höndum landi sínu gagn á þann hátt sem það vildi en yfirvöldin yrðu að skapa því skilyrði til þess. Pólverjum, sem berjast í bökkum í hörðum kjörum efnahagskreppu landsins, við skert frelsi og fótum- troðin mannréttindi, sem fært hefur marga þeirra fram á brún örvæntingarinnar, flutti páfinn aftur trúna á þá sjálfa. Víða á ferðum hans um landiö var tekið á móti honum með hrópum eins og: „Vertu kyrr hjá okkur! ” Það var fólk sem omaði sér í sannfæringarkraftinum, trúar- vissunni og bjartsýninnisem geislaði af páfanum. Þegar páfi steig upp í flugvélina, sem flutti hann aftur til Rómar og Páfagarðs, fól hann land sitt í hendur heilagri Maríu, þjóöardýrlingi Pól- verja, svo að „Drottinn megi sigra hið illa á þessari pólsku jörð.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.