Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983. 13 Kjallarinn LÖCMÁL VINNUMARKAÐARINS Lágmarkstekjur fyrir fulla dag- vinnu hækkuöu um 10% hinn 1. júní sl. meöan laun hækkuöu almennt um 8%. Enginn launþegi á núna að hafa minna en 10539 krónur á mánuði í dagvinnulaun. Samkvæmt þeim upplýsingum sem gleggstar eru um vinnumarkaöinn hefur tiltölulega fátt fólk þetta lág laun. Fyrirtæki sem reyna að ráöa fólk til vinnu á slíku kaupi reka sig ein- faldlega á, aö framboöiö á þessum hluta vinnumarkaðarins er ekki mikið. Reyndar er fjárhagslega hag- kvæmara fyrir fólk að ganga at- vinnulaust heldur en aö vinna fyrir lágmarkstekjunum. Atvinnuleysis- bætur fyrir einstakling eru sem samsvarar 10419 krónum á mánuöi og hækka um 417 krónur fyrir hvert barn á framfæri. Verðmætasköpunin ræður laununum Ýmsar tilraunir hafa á undan- fömum ámm verið gerðar til þess aö hækka lægstu launin tiltölulega meira en þau hærri. Leiðir eins og skertar verðbætur á hærri laun og lágláunabætur frá ríkinu hafa verið reyndar. Mikil vonbrigöi hafa oröiö meö þessar tilraunir. Þær hafa aldrei skilaö tilætluöum árangri, heldur frekar orðið til þess að efla ill- deilur og öfund á meðal fólks. Engum þarf í raun að koma á óvart aö svigrúmið til launajöfnunar skuli vera svo takmarkað sem raun ber vitni. Laun fólks og launahlutföll hljóta alltaf aö verða að vera í samræmi við verðmætasköpunina í hinum ólíku störfum. Allir samn- ingar milli aðila vinnumarkaðarins um. kaup og kjör verða marklaus plögg sé þess ekki gætt að verðmæta- sköpun í störfunum sé í samræmi við afrakstur starfsfólksins. Það er lög- mál vinnumarkaöarins að verð- mætasköpunin ráöi laununum. Veruleg hækkun lágmarkstekna t.d. í 12000 kr. 1. júní hefði verið í ósamræmi við þetta lögmál vinnu- markaðarins. Launahlutföllin hefðu innan nokkurra mánaða orðið þau sömu og þau voru fyrir 1. júní. Allir heföu þá fengið 25% hækkun í stað 8% og verðbólgan hefði leitt af sér atvinnubrest ekki síst hjá þeim sem áttu að njóta hækkunarinnar. Lögmál vinnumarkaðarins virkar á einfaldan hátt. Ef lágmarkstekj- umar hefðu hækkað í 12000 kr. 1. júní hefði mikið af því fólki sem vinnur eftir afkastahvetjandi launakerfum verið í þeirri aðstöðu að aukin afköst skiluöu ekki nema sáralitlu í hærri launum. Afköstin hefðu því dregist saman hjá þessu fólki og þar með verðmætasköpunin í störfunum. Til þess að auka afköstin hefðu fyrir- tækin orðið að hækka laun þessa fólks þannig að afkastahvetjandi kerfin skiluðu sömu hlutfallslegu launahækkun og áður. Þessi fyrir- tæki hefðu líka orðið að fá hærra verð fyrir framleiðsluna til þess að geta staðið undir hærri launagreiðslum. Fólk sem vinnur almenn af- greiðslu- eða skrifstofustörf hefði við þessa hækkun lágmarkstekna tekið eftir því að sendlarnir hefðu verið komnir með sama kaup. Og ef fólk fær sama kaup fyrir að vélrita og að sendast um bæinn þá vilja miklu fleiri sendast heldur en vélrita. Þvi hefði fljótlega orðiö að hækka kaupið við vélritarana. Fyrirtæki sem ráða vélritaro heíðu líkatekiðeftir því að launahlutfallið á milli reyndra vél- ritara og byrjenda hefði minnkað. En hlutfallið milli afkastanna hefði ekki breyst. Við slíkar aðstæður um þinglýsingar vegna skuldabréfa hafa áhrif. Það er nefnilega ótrúlega mikið um að fólk þurfi að hlaupa úr vinnu til þess að gegna alls konar erindum. Aukið frjálsræði í opnunar- tíma verslana myndi líklega hafa umtalsverða þýðingu í að auka verð- mætasköpun fólks. Samhjálpargildrur Oft er reynt að sneiða f ram hjá lög- máli vinnumarkaðarins og bæta kjör fólks án þess að auka verðmæta- sköpunina í störfum þess. Þá er eyðslugetan aukin og slíkar aðgerðir sem oft eru gerðar undir nefni „tekjujöfnunar” ættu miklu frekar að kallast „eyðslujöfnun”. Hið opin- bera stendur oftast undir kostnað- inum af þessum aðgerðum. Hér á landi eru það e.t.v. verka- mannabústaðimir, hækkun atvinnu- leysisbóta og byggðastefnan sem standa upp úr í þessu sambandi. Víða erlendis hefur eyðslujöfnunin leitt af sér svokallaðar „samhjálpar- gildrur” þar sem fólk er sett í þá aöstöðu aö geta ekki bætt kjör sín nema fyrir tilverknaö hins opinbera, og þurfa stundum að koma sjálfu sér íneyðtilþessama. Af fyrstu vísunum af samhjálpar- gildrum á Islandi þá felst „húsnæöis- gildran” í því að það borgar sig fyrir hóp af fólki að minnka vinnu og tekjuöflun til þess að komast undir tekjuhámarkið sem þarf til þess að £á íbúð í verkamannabústöðum. Atvinnuleysisgildran er að myndast í nokmm mæli þar sem hluti af lægst launaða verkafólkinu ber meira frá boröi atvinnulaust en í ' vinnu. Byggðagildran er einna mótuðust af samhjálpargildrunum. Hún felst í því að tekjumöguleikum lands- byggðarinnar og verðmætasköpun fólksins þar er haldið niðri með rangri gengisskráningu. I staðinn er eyðslugetan aukin að nokkru leyti með alls konar tilfærslum eins og jöfnun húshitunarkostnaðar, fram- lagi vegna jöfnunar námskostnaðar (farseðill í burtu fyrir unga fólkiö), ölmusum úr byggðasjóði svo eitthvaðsénefnt. Með samhjálpargildrum er veriö að grafa sér gröf. Þær hafa í för með sér minni verðmætasköpun og þar með rýrari skattstofna en um leið verða útgjöld hins opinbera meiri. Velferðarþjóðfélagið byggist á aukinni verðmætasköpun Það er lítið eftirsóknarvert að lifa af lágmarkstekjum eða launum í lægri enda launastigans. Þár sem eru á slíku kaupi reyna undantekninga- lítiö að finna betri vinnu þar sem verðmætasköpunin er meiri eða aö auka verðmætasköpunina í störfum sínum með einhverjum ráðum t.d. afkastahvetjandi launakerfum. Þessi stöðuga sókn til betri kjara er mjög mikilvæg fyrir þjóðarbúið vegna þess að einungis með aukinni verðmætasköpun verður hér haldið uppi nútíma velferðarþjóðfélagi. Allar aðgerðir til þess að bæta kjör fólks ættu því að miðast við aukna verðmætasköpun. Samhjálpargildrur ber að upp- ræta. Þjóðfélag sem byggir lífskjör sín og velferð á því að fullfrístk fólk hafi efni á því að vera fátækt og vinna ekki og afla ekki tekna mun dragastaftur úr. Dr. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur. hefðu því myndast góð tækifæri fyrir vana vélritara sem vildu skipta um vinnu að finna fyrirtæki sem hefðu getað boðið hærra kaup einmitt í samræmi við afkastahlutföllin milli byrjenda og vanra vélritara. Þannig má ganga á vinnumarkaðinn. Ef lágmarkstekjurnar hefðu hækkað verulega umfram laun almennt í trássi við lögmál vinnumarkaðarins hefðu launahlutföllin verið orðin þau sömu og fyrr ótrúlega fljótt. Lögmál vinnumarkaðarins leyfú- ekki neina óskhyggju um launakjör eða launahlutföli. Eina raunhæfa leiðin til þess að hækka laun fólks er að auka verðmætasköpunina í störfum þess. Þetta gildir jafnt fyrir þá hærra launuðu sem hina lægra launuöu. Verðmætasköpun fólks getur aukist með margvíslegum hætti. Meiri framleiðni með bættum vinnubrögöum og vélakosti, hærra verð fyrir framleiðsluna og meiri s jávarafli eru atriði sem má nefna. Jafnvel breytingar eins og verða þegar bankar og sparisjóðir taka að sér að afla veðbókarvottorða œ siá Og ef fólk fær sama kaup fyrír að vélrita og að sendast um bæinn þá vUja mUdu fleiri sendast heldur en vélrita....” • „Reyndar er fjárhagslega hagkvæmara fyrir fólk að ganga atvinnulaust heldur en að vinna fyrir lágmarkstekjunum. Atvinuu- leysisbætur fyrir einstakling eru sem samsvarar 10.419 krónum á mánuði.” Dr. Vilhjálmur Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.