Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn í leit að kaffi- húsi Á ferð forseta um VestfirðU var víða farlð og á fimmtu- dag lá leiðin til Tálknafjarð- ar. Þar átti samkvæmt dag- skrá að vera „oplð hús í Múlakaffi”. En hvernlg sem menn leituðu fannst þar ekk- ert Múlakaffl sem er eðlllegt því á Tálknafirði er ekkl og hefur aldrei verið kaffihús meðþvinafni. Sú skýring var lögð fram á þessum mistökum að i hand- skrifuðu uppkasti að dag- skránni hafi átt að standa „molakaffi”, ekkl „Múla- kaffi”, en þetta hefði siðan skolast til í vélritun. Laust hjá BHM Guðríður Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri BHM, Guðrfður Þorsteinsdóttir hættir hjó BHM. mun nú vera að hætta störf- um þar og munu marglr hafa sótt um stöðu hennar. Líkleg- astur eftlrmaður hennar er talinn muni verða Sigmundur Stefánsson, hagfræðingur. BHM. Heimspeki? Það gerðist í kaffitima á góðum vinnustað hér í borg fyrir nokkru að menn tóku' eftir að óvenjumikið var af flugum í vinnuskúrnum. Einn starfsmaðurinn leit þá hugs- andi á flugnamergðlna á gólfinu og sagði helmspeki- lega: — Já, það er satt, gólfið > er þakið —. Flatey og aldin- garðurinn Gamall maður sagðl eftir lestur fréttar í DV í fyrri viku: „I Eden borðuðu þau forboðinn ávöxt. t Flatey eru það friðuð egg.” í fótspor séra Bjarna t viðtali viö séra Ólaf Skúla- son vígslubiskup sem birtist í Sóra Ólafur Skúiason minn- ir ó feril séra Bjarna. DV i gær sagði hann um biskupskosningarnar fyrfr tvelm árum: „Þá rifjaðist upp fyrir mér að árlð 1938 féll séra Bjarni með eins atkvæð- is mun í blskupskjöri fyrir Sigurgeiri, föður Péturs. Það er fleira líkt með okkur séra Bjarna. Ég er dómprófastur elns og hann var og nú er ég orðlnn vígslublskup elns og hann.” Svo bauð séra Bjarni sig fram til forseta lika. Glöggt er gests augaö t Morgunblaðlnu á sunnu- dag birtist viðtal við stúlku frá Ecuador sem hér hefur dvallst um sinn. Þar kom að sjálfsögðu að blaðamaðurinn spurði þennan útlenda gest hvað hennl fyndist um land og þjóð („How do you llke Iceland”), því tslendlngar leggja mlkið upp úr því að út- lendlngar hafi gott állt á land- inu og þjóðlnnl, þó ekkert geri þeir til þess að tryggja að svo verði. En að þessu sinni voru um- mæli gestsins á þann veg að ráðum hans ætti flestum ts- lendlngum að vera Ijúft að fylgja, því stúlkan lauk máli sínu með þvi að segja: „ts- lendingar ættu alltaf að vera fullir.” Umsjón: Ólafur B. Guðna- son. Einstök veðurblíða á Mumeyrarmóti Veðurfar á hestamótum á Mumeyri hefur yfirleitt verið til fyrirmyndar og ekki síst um síöustu helgi er hesta- mannafélögin Sleipnir og Smári héldu sameiginlegt mót þar. Sól og blíöa eftir stórrigningar í júní. Fjölmargir hest- ar voru skráðir til leiks og keppni enda hefur Mumeyrarmótið verið hvaö fjöl- mennast undanfarin ár. Gæðingakeppni Vegna mikils f jölda gæðinga var tek- ið það ráð aö dæma frá báðum félögun- um í einu. Á meðan A-flokks hestar Smára vom dæmdir voru einnig dæmdir B-flokks hestar Sleipnis og svo öfugt. I A-flokki Sleipnis stóð efst merin Perla 4505 sem Hafsteinn Stein- dórsson á og sat. Fékk Peria einkunn- ina 8,12 og Sleipnisskjöldinn. Hlýja, þeirra feöga Skúla og Steins Skúlason- ar, varð í öðm sæti með 8,03 og sat Steinn 13 ára Hlýju. Steinn skaut föður sínum aftur fyrir sig því Skúli var með Framtíð í þriöja sæti með einkunnina 8,00. Hjá Smára varð Fríða 5111 efst með einkunnina 7,88 og hlaut þar með Smárasvipuna. Valgerður Auðunsdótt- ir er eigandi en Jón Vigfússon sýndi. Hrafnhetta, sem Sigfús Guðmundsson á og sýndi, varð í öðm sæti með eink- unnina 7,73 og Blossi, sem Sigfús á einnig og sýndi, varð í þriðja sæti með 7,72 í einkunn. B-flokks hestar hafa oft verið góðir á Suðurlandi og að þessu sinni sigraði í B-flokki hjá Sleipni Fleygur með dnk- unnina 8,33. Olil Amble sat Fleyg en eigandi er Davíð Guðmundsson. Kjar- val, sem Skúli Steinsson sat og á, fékk einkunnina 8,23, varð í öðru sæti en Steinunn, sem Skúli á einnig, varð í þriðja sæti með einkunnina 8,20. Af B- flokks hestum Smára varð efstur Há- feti, sem Þorvaldur Krístinsson á og sat, og fékk einkunnina 7,99. Krummi, Agústs Sigurðssonar varð í öðm sæti. Knapi, Bjöm Jónsson. Faxi, varð í þriðja sæti með einkunnina 7,58. Knapi og eigandi Þorvaldur Kristinsson. Unglingakeppni I eldri flokki unglinga sigraði hjá Sleipni Valgerður Gunnarsdóttir með einkunnina 8,60. Hún sat Fleym. Hlin Pétursóttir varð í öðm sæti á Kyndli með einkunnina 8,48 og Hrafnkell Guðnason þriðji á Hrímni með 8,45 í einkunn. Hjá Smára sigraði Annie B. Sigfúsdóttir með 8,59 en hún sat Hálegg. Steinþór Kári Kárason varð annar á Gjóstu og hlaut 8,15 í einkunn. Lilja Loftsdóttir varð í þriðja sæti ó Reyr og hlaut 7,90 í einkunn. t -mnri flnlrlri hiá Sleinni siííraði Steinn Skúlason á Hlýju með ágætis- einkunn, 8,70. Ragna Gunnarsdóttir varð í öðru sæti á Hrafntinnu með 8,30 í einkunn og Steindór Guðmundsson í þriðja sæti á Spólu með 8,20 í einkunn. Kristrún Þorkelsdóttir sigraði hjá Smára í yngri flokki og sat hestinn Mósa, hlaut 8,20 í einkunn. Elín Osk Þórisdóttir varð í öðru sæti á ör, fékk einkunnina 7,80 og Jón M. Helgason varð í þriðja sæti á Rosta og fékk 7,70 í einkunn. Kappreiðar Undanrásir í kappreiðum fóru fram á laugardeginum en allir skeiðsþrett- irnir og úrslit á sunnudeginum. Margir Efstu hestar i B-flokki hjá Smára. þekktir hestar mættu til keppni. Helstu úrslit urðu þau að í 250 metra stökki sigraði Léttir Guðbjargar Þorvalds- dóttur á 18,6 sek. Knapi, Sigurlaug Anna Auðunsdóttir. öm Harðar G. Al- bertssonar náði sama tíma en var dæmdur í annað sætið. Knapi, Hörður Þ. Harðarson. I þriðja sæti varð Rudolf Kristjáns Benjamínssonar sem Hinrik Bragason sat á 19,0 sek. I 350 metra stökkinu sigraði Spóla eins og vant er á 24,9 sek. Knapi og eigandi Hörður Þ. v* Pi nminray ,á .a-S- Torfi og Sigurbjörn Bárðarson renna skeiöiO á 15, 7 sek. /150 metre skeiOinu. Harðarson. Tvistur Harðar G. Alberts- sonar varð í öðru sæti á 25,2 sek. Knapi, Hörður Þ. Harðarson. Don varð í þriðja sæti á 25,6 sek. en Hallgrímur Jóhannesson er eigandi hans og knapi Helgi Eiríksson. I 800 metra stökkinu kepptu einungis fjórir hestar og fór einungis eitt hlaup fram. Brjánn Styrmis Snorrasonar sigraði með knapa sinn Hinrik Bragason á 64,9 sek. Þristur Harðar G. Albertssonar varð í öðru sæti á 65,2 en Hörður Þ. Harðar- son sat Þrist. I þriöja sæti varð'Léttfeti sem Ellen Rut Ingimundardóttir á og sat á 68,4 sek. Fjölmargir hestar mættu í skeiðið. I 150 metra skeiðinu sigraði Ása-Þór Fríðu Steinarsdóttur sem Aðalsteinn Aðalsteinsson sat á 15,3 sek. Torfi Harðar G. Albertssonar sem Sigurbjöm Bárðarson sat varð í öðm sæti á 15,7 sek. en Hvinur Gísla Guömundssonar sem sat hann sjálfur varð í þriöja sæti á 18,4 sek. 1250 metra skeiðinu sigraði Villingur Harðar G. Albertssonar sem Aðalsteinn Aðals- teinsson sat á 22,4 sek. Hildingur sem Hörður ó einnig en Sigurbjörn Bárðar- son sat varð í öðm sæti á 24,2 sek. en Hjörtur Margrétar Helgadóttur í þriðja sæti á 24,3 sek. Þórður Jónsson sat Hjört. 1300 metra brokkinu sigraði Moldi sem Orri Snorrason á og sat á 41,5 sek. Kolskeggur Rosmarie Þorleifsdóttur varð í öðru sæti á 43,3 sek. en Guömundur Sigfússon sat Kolskegg. Kjarval sem Skúli Steinsson á og sat varð í þriðja sæti á 43,4 sek. Afhent vora knapaverðlaun og hlaut Birgir Guðmundsson riddarabikar Sleipnis en Þorleifur Sigfússon sveins- merkiSmára. .e.j. EIÐASKÓLIHUNDRAÐ ÁRA — sextán hljómsveitir spiluðu á af mælisdansleiknum Frá Guðna Walderhaug. Það var margt um manninn þegar haldið var upp á hundrað ára afmæli Eiðaskóla 11. júní síöastliöinn. Sannar- lega stór stund í sögu skólans og bámst honum margar góðar g jafir. Myndarleg ljósmyndasýning var í einni kennslustofunni þar sem nem- endur sýndu myndir. Þá var sýning um sögu skólans í annarri stofu. Veislukaffið bragðaðist vel enda var reyndar ekki við öðm að búast. Ungmennafélag Eiðaskóla hélt síðan um kvöldið mikinn dansleik í Vala- skjálf á Egilsstöðum og þar léku hvorki fleiri né færri en sextón hljóm- svéitir fyrir dansi. Og allar áttu þær það sameiginlegt að hafa einhvem tímann verið á Eiðum. Sýslunefndir beggja Múlasýslna sto&iuðu skólann 1883 og var hann í upphafi búnaðarskóli, með þrjá nem- endur, í einni deild. Fyrsti skólastjórinn var Guttormur Vigfússon en sá sem hefur lengst gegnt því embætti við Eiðaskóla er Þórarinn Þórarinsson. Hann var skólastjóri fró 1938 til 1965, eða í alls 27 ár. Núverandi skólastjóri er Kristinn Kristjánsson. Nemendur í skólanum eru víðs vegar af landinu, langflestir þó af Austur- landi. Félagslif er blómlegt og aðstaða öll til náms góð. Þess mó geta að fimm hljómsveitir vom í skólanum i vetur. Á sumrin er starfrækt Edduhótel á Eiðum og var það opnað 16. júní. -JGH. Á hundrað ára afmœlinu. Þórarlnn Þórarinsson til vinstri og Kristinn Kristjónsson, núverandi skólastjóri. Þórarinn var skólastjóri Eiðaskóla frá 1938 til 1965, eða í alls 27 ár. DV-mynd Guðni W.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.