Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Síða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983.
7
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Rauður:
þríhymingur
Menningarmiðstöðin við Gerðuberg var opnuð núna snemma í vor. Vinnan við hana hafði þá staðið frá því í júní á síðasta
ári. Hér sjást ungir gestir athuga hvort er í lagi með það sem boðið er upp á.
Félagsmiðstöðvarn-
ar mjög vinsælar
Aðsókn að félagsmiðstöðvum
Reykjavíkurborgar jókst verulega á
síðasta ári. Rúmlega 288 þúsundir*
sóttu þær heim, rúmlega 40 þúsundum
fleira fólk en í hittifyrra. Mestu
munaði um hvað aðsóknin jókst í Tóna-
bæ og Arseli. Þar nærri tvöfaldaðist
hún. Þróttheimar voru eina félagsmið-
stöðin þar sem aösókn minnkaði.
Munaði þar tæplega þrem þúsundum.
Þetta kemur fram í skýrslu
Æskulýðsráðs Reykjavíkur fyrir árið í
fyrra. Einnig kemur fram að þá var
varið tæplega 11 milljónum króna til
æskulýðsstarfsins. Eru það 1,32% af
heildarútgjöldum borgarsjóðs.
Stærsta verkið sem framkvæmt var
var að byggja menningarmiðstööina
við Gerðuberg. Forstöðumaöur hennar
erElísabet B. Þórisdóttir.
Tiltölulega mest af fénu, sem varið
var, fór til Fellahellis. Enda sækja
þann stað flestir. Gestir á árinu urðu
rúmlega 85 þúsund. DS
Verð á mat á
Edduhótelunum
Raddir
neytenda
L. J. hringdi og kvartaði yfir því að
matur væri dýr á Edduhótelunum.
Odýrasta máltíö, sem hægt væri að
fá, væri yfirleitt silungur á um 180
krónur. Annar matur kostaði hins
vegar um 300 krónur. Fannst honum
þetta f ullmikið.
Ingólfur Pétursson, sem reiknar út
verð á mat á Edduhótelunum, var
alveg hissa á því að heyra þessa
kvörtun. Hann sagðist vera miklu
vanari því að aörir sem seldu mat
kvörtuðu yfir því að maturinn á
Edduhótelunum væri of ódýr. Hann
væri yfirleitt mun ódýrari en á veit-
ingastöðum í grenndinni. Erfitt væri
því fyrir aðra að keppa við Eddu-
hótelin.
Ingólfur sagði að maturinn væri
seldur á lægsta hugsanlegu verði.
Meðalverð fyrir máltíð væri um 250
krónur. Ýmsir pöntuðu sér hins
vegar dýra drykki með og þegar
heildarreikningurinn kæmi yrðu þeir
hissa á verðinu. Fiskur væri mjög
ódýr. Það væri því auðvelt að borða
f yrir lítið fé á E dduhótelunum. DS.
— VIBEIGUM
SAMLEIÐ
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferðinni?
Ætlarðu í sumarfrí?
Ef svo er þá er 3ja vikna
ferðin til Benidorm 13. júlí.
ódýrasti kosturinn. - Hreint
ótrúlega lágt verð.
Mjög góð gisting - Sértilboð
á Don Miguel II
50T/oBARNA
AFSIÁTTUR
Meðalverð fyrir hjón með 2
börn Kr. 13.875.-
fyrir manninn
TAKMARKADFRAMBOD
KYNNIÐ YKKUR
GREIÐSLUKJÖRIN
MFERÐA
19 MIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
U||U| EQ|A| EEDEI
AMSTER
DAM
OGINTERRAIL
LESTARKORT
11.875 I<R
PARIS
OGINTER RAIL
EESTARKORT
BROTTFARIR: þriðjudaga og fimmtudaga
10.975 KR
BROTTFÖR: 17. júli
AMSTER
DAM
ÁEIGIN
VEGUM
BROTTFARIR: þriðjudaga og fimmtudaga
FERÐA
SKRIFSTOFA
STClDENTA
Hringbraut. sími 16850