Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Arafat leyfist
aö koma aftur
til Sýríands
Yasser Arafat, leiötoga PLO, verður
leyft aö snúa aftur til Sýrlands á næst-
unni, eftir því sem forsvarsmenn
Palestínuaraba í Damaskus segja. —
Mun George Habash, einn aðalforingi
róttækari aflanna innan PLO, hafa
tekiö loforö af Al-Assad Sýrlandsfor-
seta um það.
Habash mun hafa borið orö á milli og
reynt að koma á sáttum en frá
sýrlensku stjórninni hefur ekkert
heyrst opinberlega um deilu hennar
viö Arafat síðan Sýrlandsforseti veitti
Arafat á föstudaginn nokkurra klukku-
Flugmaðurínn
fómaðisér
eftir árekst-
ur í lofti
Sjö fórust og átta slösuðust þegar
herþota hrapaði á hús eitt í Biberach
í V-Þýskalandi eftir árekstur í lofti
við litla einkaflugvél.
Meðal þeirra sem fórust voru flug-
maður herþotunnar og báðir menn-
irnir í einkaflugvélinni en fjórir hafa
fundist látnir í húsarústunum. Eldur
kom upp í þrem húsum og er óttast
að fleiri kunni aö leynast í brakinu.
Sjónarvottar segja að flugmaður
Mirage-herþotunnar hafi látið ónot-
uð tækifæri til þess að skjóta sér í
fallhlíf úr þotunni og barist við að
stýra laskaöri þotunni framhjá
byggingunum. Stórverslanir og
mikil efnaverksmiðja eru aðeins
nokkur hundruö metra frá þeim stað
sem þotan kom niður.
Einkaflugvélin hrapaði niður í
nærliggjandiskóg.
stunda frest til þess að verða á brott úr
landi.
Með þessu er staðfest aö
Sýrlendingar muni ekki hindra að leið-
togi PLO fái að snúa aftur til aðalbæki-
stöðva manna sinna í Norður- og
Austur-Líbanon sem Sýriand hefur á
valdi sínu.
Menn geta sér til að Habash hafi ekki
einn náð að friða Al-Assad. Líklegt
þykir, að leiðtogar annarra arabaríkja
hafi á bak við tjöldin beitt áhrifum
sinum við Sýrlandsforseta og hugsan-
lega einnig ráðamenn í Moskvu.
Arafat, sem var vísað úr landi eftir
að hann sakaði hemámslið Sýrlend-
inga í Líbanon um að hafa lagt
uppreisnaröflum innan PLO lið, hefur
dregið úr árásum sínum á Sýrlands-
stjóm síðan. Áberandi þótti hvemig
kvað við annan tón í ræðu sem hann
flutti í Prag í Tékkóslóvakiu á laugar-
daginn en þar hjuggu menn einnig eftir
því aö Arafat kallaði Sovétríkin
„góöanvin”.
Arafat átti í gær viðræður viö Habib
Bourguiba, forseta Túnis. I yfirlýsingu
að viðræðunum loknum sagði Arafat
að Sýrland og Palestínuarabar yrðu að
standa saman og gegn Israel. — Arafat
Arafat umkringdur lifvörðum, en hann hefur á sér meiri vara þessa dagana en
nokkru sinni fyrr.
mun hitta í Túnis Javier Perez de
Cuellar, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, en heimsækja síðan
Marokko og Alsír.
Bushí
„Við munum ekki senda neina
bandaríska hermenn til Mið-Ameríku.
Við viljum aðeins beita okkur fyrir lýð-
ræðis- og efnahagslegri þróun þar,”
sagði Geroge Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, meðal annars á fundi meö
fréttamönnum í Stokkhólmi í gær. Þar
var hann í þaula spurður um stefnu
Bandaríkjanna í Mið-Ameríku.
Bush kom til Stokkhólms í gærmorg-
un á ferð sinni um Evrópu og átti ítar-
legar viðræður við Olof Palme for-
sætisráðherra. Báðir sögðu þeir að
fundinum loknum að viðræðumar
hefðu verið mjög gagnlegar. Þó hafði
þá greint á um hversu heppileg stefna
Bandarikjanna í málefnum Mið-
Ameríku er. Það var einmitt gegn
þeirri stefnu sem þúsundir Svía mót-
mæltu á Sergeltorgi í Stokkhólmi í gær.
Allt fór þó friðsamlega fram.
Miklar öryggisráðstafanir voru
gerðar í sambandi við heimsókn Bush
og auk þrjú hundruð sænskra lögreglu-
manna, sem gæta eiga öryggis hans,
eru 40 bandarískir lífverðir í fylgd
hans, en þetta öfluga gæslulið átti
náðugan dag í gær.
Gunnlaugur A. Jónsson/ Lundi.
S.Þ.-MENN ÁNÆGÐIR MEÐ
KOMMÚ NISTAFJÖLMIÐLANA
— en gagnrýna vestræna f jölmiðlun
Bush varaforseti á ferð um Evrðpu og
senn væntanlegur til tslands.
Lögð hefur verið fram skýrsla þar
sem fjölmiðlar á Vesturlöndum eru
gagnrýndir fyrir rangfærðar fréttir af
sameinuðu þjóðunum en lof borið á
ríkisfjölmiðlana í kommúnistaríkjun-
um.
Skýrsla þessi hefur verið gefin út á
vegum Sameinuðu þjóðanna þrátt
fyrir að framkvæmdastjórinn hafi
sjálfur látið í ljós efasemdir um niður-
stöðurhennar.
Skýrsluhöfundar sökuðu vestræna
fjölmiöla um að veita ekki starfl Sam-
einuðu þjóðanna næga athygli og enn-
fremur fyrir að ganga ekki nægilega úr
skugga um hvort gagnrýni ætti rétt á
sér þegar gagnrýnisskrif væru birt um
Sameinuðu þjóðirnar.
En blaðamönnum kommúnistafjöl-
miðlanna var hrósaö fyrir að flytja
reglulega fréttir af Sameinuðu þjóðun-
um og frásagnir þeirra sagðar styðja
tilraunir S.Þ. til þess að efla alþjóðlegt
samstarf.
Javier Perez de Cuellar fram-
kvæmdastjóri lét þau orð falla, þegar
uppkast af skýrslunni var lagt fram i
fyrra, að þessi niðurstaða væri „ótrú-
leg” og að höfundarnir, sem ekki eru
nafngreindir, sýndu dómgreindar-
skort. — Þegar skýrslan var gefin út á
dögunum lýsti framkvæmdastjórinn
því yfir að höfundarnir væru ekki á
hans vegum og túlkuðu ekki hans
skoðanir en hann væri ekki einræðis-
herra og vildi ekki hindra þá í að gefa
út niðurstöður þeirra.
Stálu fót-
boltanum
Knattspymuleikur í Cordoba í
Argentínu var stöðvaður eftir að
áhorfendur höfðu stolið fjórum
knöttum hverjum á eftir öðrum.
Dómarinn gafst upp þegar f jórði
boltinn, sem lent hafði í áhorfenda-
þvögunni, skilaði sér ekki aftur.
Flautaði hann leikinn af.
Þama áttust við Belgrano og
San Vincente-félagið.
FLÓÐATJÓNIÐ MEIRA ENIND-
LANDSSTJÓRN RÆÐUR EIN VIÐ
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, hefur skorað á Indverja alla
aö sameinast í aðstoð við bágstadda í
vesturfylkinu Gujarat sem er nú undir-
lagt flóðum. — Þúsundir manna hafa
misst heimili sín en vitað er um nær 430
dauðsföll og óttast um aðra 420 til við-
bótar.
Flóðin hafa valdið meiri usla en
fellibylurinn í vetur sem gekk yfir á
sömu slóðum og varð yfir 500 manns aö
bana.
A Junagadh-svæðinu, þar sem land
liggur lægst í þessu fylki, er vatn sums
staðar fimm metra djúpt þar sem
þurrt var áður. Þar er talið að um 130
þúsund íbúar smáþorpa séu einangrað-
ir af flóðunum.
Gandhi forsætisráðherra flaug yfir
flóðasvæðin í gær og tók sér einnig ferð
á hendur landveginn um sum flóöa-
svæðin. Sagði hún eftir ferðina að tjón-
ið væri svo ofboðslegt að ríkisstjórnin
ein gæti ekki lagt til þá aöstoð sem
þyrfti.
Fréttir greina frá því að yfir 60 þús-
und nautgripir hafi drepLst í flóðunum
og að spjöll hafi orðið á um 50 þúsund
húsum, auk svo tjóns á uppskeru og
ýmsum mannvirk jum.
Þyrlur hersins reyna að varpa mat-
vælum og hjálpargögnum til þeirra
þúsunda sem ekki verður komiö til
hjálpar með öðrum hætti enn sem kom-
iðer.
Tæplega þrjú þúsund þoip hafa orð-
ið rafmagnslaus og hundruð kiló-
metra af vegum héraðsins hafa skolast
burt.