Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Qupperneq 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JONI1983.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
ím-
Á æf ingu
hjá
Skotfélagi
Reykjavíkur:
Skotiö að mexb
kanskrí fyrírmynd
2>/,-zrpm *
Færiö er fjörutíu metrar. Eg hleð
riffilinn rólega, eitt skotiö af ööru
rennur í magasíniö uns öll fimm eru
komin á sinn rétta staö. Tímavöröur-
inn gefur merki um aö hleöslutíma sé
lokiö, það má skjóta. Eg grip riffilinn,
vinstri höndin heldur undir hann, sú
hægri er á gikknum. 1 kikinum sé ég
appelsinugult skotmarkiö, formað eins
og kjúkling, og svartur miöunarkross-
inn ber akkúrat i markiö. Eg miöa
aðeins til hægri við það, því þaö er
strekkingur og vindurinn getur hæg-
lega boriö kúluna af leið. Eg dreg djúpt
andann, anda svo helmingnum aftur
frá mér en held restinni niöri í mér.
Fjórar sekúndur líöa, tíminn viröist
standa kyrr. Ofurhægt dreg ég gikkinn
aö mér og finn örlítinn titring er kúlan
þýtur í átt aö skotmarkinu meö hljóö-
hraöa. Snöggur hvellurinn rýfur kyrrð-
ina og síöan annar minni. „Kjúklingur-
inn” er úr jámi en ekki af holdi. Ég
horfi í nokkrar sekúndur á „kjúkling-
inn” liggja í valnum og ánægjutilfinn-
ing grípurmig. Eg hitti.
Hún er merkileg þessi kennd sem
blundar í öllum, veiðimennskan. Þótt
sumir vilji ekki viðurkenna tilvist
hennar gerir hún alltaf einhvern veg-
inn vart viö sig. Að kasta steini í flösku
er á margan hátt sami hluturinn og aö
skjóta hreindýr. I bæöi skiptin er hittn-
in aöalatriðið þó óneitanlega ekki það
eina sem máli skiptir. Flestallar
íþróttir eru á einhvem hátt tengdar
veiöimennsku, að mati breska mann-
fræðingsins Morris Desmond. Spjót-
kastari sem kastar spjóti sínu 90 metra
er í raun réttri aö fá útrás fyrir veiöi-
mennskueöh sitt. Spjótiö er hans vopn,
aö kasta sem lengst er verkefni hans,
veiðin er gullmedalían. Sama má segja
um knattspymu, boltinn er vopnið,
markið bráöin.
En hvergi veröa tengsl íþróttar og
veiðimennsku jafnnáin og í skotfim-
inni. Þá er skotiö á mark af misjafn-
lega löngu færi, allt frá 40 metra upp í
500. Stundum er skotmarkið veifa eöa
dós, stundum litlir hringir á blaöi meö
punkti í miðjum innsta hringnum,
stundum lítil dýr, steypt í járn.
Hrúturí 100 metra
fjaríægð
Fyrir ári kom Skotfélag Reykja-
víkur sér upp nokkrum skotbökkum
meö þessum járndýrum á æfingasvæöi
félagsins í Grafarholti. Dýrin eru af
fjórum stæröum og er þaö minnsta,
kjúklingur, í 40 metra fjarlægð, svínið
er í 60 metra fjarlægð, kalkúninn í 77
metra fjarlægð og lengst í burtu er
hrúturinn, 100 metra frá skotmannin-
um. Vegalengdir þessar miöast við 22
kalíbera riffil en eru lengri ef um
stærri riffla er aö ræöa.
Æfingar þessar eru kailaöar silhou-
ette-æfingar og njóta mikilla vinsælda
meöal félaga í skotfélaginu. Tvisvar í
viku, á fimmtudagskvöldum og eftir
hádegi á laugardögum, eru skipu-
lagðar æfingar og þá er skotið á dýrin
svo rýkur úr byssuhlaupunum. Mót eru
svo haldin annaö slagiö.
Æfingar þessar náöu fyrst vinsæld-
um í Bandaríkjunum fyrir rúmiega 20
árum og hafa síðan áunniö sér fastan
sess hjá skotfélögum víða um heim.
Sagan á bak við þær er dálítið
skemmtileg. I upphafi þessarar aldar
geisaöi borgarastyrjöld í Mexíkó.
Helsti foringi byltingarmanna var
náungi aö nafni Pancho Villa, sem
margir munu þekkja úr þeim aragrúa
kvikmynda er geröar hafa verið um
þetta timabil. Pancho Villa og stuön-
ingsmenn hans geröu sér oft dagamun
og slógu upp dýrlegum veislum og
meðal skemmtiatriöanna var að skjóta
kjúklinga, svín, kalkúna og hrúta. Eini
munurinn á skotfélagsæfingunum og
þeirra skemmtan er sá aö mexíkan-
arnir skutu á lifandi dýr en ekki járn-
dýr. Með tímanum frétti fólk í suðvest-
urfylkjum Bandarikjanna af þessu
tómstundagamni Mexíkananna og tók
aö apa þessa iöju eftir þeim. En siöan
komu dýraverndunarfélög og samtök
reiðra bænda til sögunnar og skytteríið
lagöist af. Þó ekki lengi. Einhverjum
datt þaö snjallræöi í hug aö búa til af-
steypur af dýrunum og aftur fóru
byssumenn aö skjóta á sína kjúklinga
og svin.
ErriffiUinn
róttur?
Og nú eru Islendingar farnir aö haga
sér líkt og Pancho Villa. Það er þó ekki
sama stjórnleysið yfir æfingum þeirra
og leik Mexikananna. Islendingarnir
Skotfimi
Sveinn Agnarsson