Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI1983.
37
Sviðsljósið_________________ Sviðsljósið__________ Sviðsljósið
Lítil sápusala
i Frakklandi
Mjög sérkennileg könnun var fram-
kvæmd í Frakklandi fyrir skömmu.
Markmiö könnunarinnar var, aö sögn
sálfræöingsins Christian Boeldieu, aö
leiöa í ljós hvernig baövenjum landa
hans er háttaö og kom þá meöal
annars í ljós af hverju Frakkar nota
eins mikið ilmvatn og raun ber vitni.
Fram kom að einn Frakki af
hverjum fjórum þvær sér um hendurn-
ar aðeins einu sinni á dag og um þaö bil
helmingur þjóöarinnar burstar ekki í
sér tennumar fyrir háttinn, ein afleið-
ing þess er aö 95 prósent franskra ung-
menna eru með skemmdar tennur.
Einnig kom þaö í ljós að ekki hefur enn
fundist Frakki sem fer i sturtu dag-
lega. I staðinn fyrir að kaupa sér sápu-
stykki kjósa Frakkar frekar aö kaupa
sér dýr og fín ilmvötn og sletta á sig til
þess aö yfirgnæfa annan fnyk sem
kynniað vera á sveimi. Þykja Frakkar
þar nokkuð lfkjast honum Lúövik 14.,
sólkonunginum sinum fræga.
Lúðvík sá var meðal annars frægur
fyrir þaö aö hafa ekki farið nema einu
sinni í baö um ævina. Hann hafði verið
baðfælinn alla tíö en kastaöi sér í baö
einn góðan veðurdag og urðu afleiö-
ingar baösins tvíþættar. I fyrsta lagi
varð hann auðvitað hreinn en í ööru
lagi kvefaðist hann og lífhræddur eins
og hann var kaus hann, það sem eftir
var ævi, að gusa yfir sig ilmvatni til
þess aö þurfa ekki aö tefla i tvisýnu á
ný.
.... fítli, lúpulegi Ijósmyndarinn tekinn i karphúsið. . . .
Létt áflogasyrpa frá Róm
Allflestir hafa gaman af því að láta
taka af sér myndir, svo maöur tali nú
ekki um ef þær birtast í blööum. En svo
er nú ekki meö alla. Bandaríski leikar-
inn Robert De Niro er einn af þeim og
ef honum mislíkar eitthvað þá sýnir
hann þaö i verki. Meöfylgjandi myndir
eru teknar í Róm þar sem De Niro
vinnur að gerð nýrrar kvikmyndar.
Var hann á ferö í myndagervinu og
haföi tekið sér smárúnt um götur og
torg. Fyrir einskæra tilviljun, eins og
oft vill verða, var blaöaljósmyndari
einmitt staddur á staðnum er bill De
Niros stoppaði. Ljósmyndarinn þekkti
kauöa, þrátt fýrir gerviö, og var
ekkert aö dóla heldur byrjaði að
smella af í gríð og erg. De Niro tók
þessu miður vel, beit á jaxlinn og vipp-
aöi sér út úr bílnum með miklum til-
þrifum. Greip leikarinn myndasmiö-
inn fantatökum og sem betur fer var
annar ljósmyndari á staðnum til aö
festa bolabrögð þessi á filmu, frekar
'en að koma hinum til aðstoðar. Því
eins og myndirnar bera með sér þá var
þetta heldur ójafn leikur, De Niro stór
og jakalegur en ljósmyndarinn lítill og
pervisinn væskill. En þrátt fyrir
þennan mun þá hafði litli naggurinn
betur, stakk sér inn í bílinn eftir stjöm-
unni og náöi að rifa tóliö úr höndum
hans. Fór því betur en á horfðist, það
er fyrir ljósmyndarann, hann fékk
myndirnar en De Niro skömm fyrir.
í karimannsgervi
Brooke Shields falleg og dreymandi.
Sú sama einbeitt og hörkuleg.
Þeir í Hollywood hafa verið
þekktir í gegnum tíöina fyrir aö apa
hver eftir öörum, ef ein hugmynd
gefur arð þá er hún óðum notuð
aftur. Dustin Hoffman lék konu í
Tootsie og er nú óðar byrjaðaðtaka
mynd þar sem hin bráðhuggulega
BrookeShields leikur karlmann.
Myndin er tekin í Israel og heitir
i Sahara. Hún f jaUar um rall-
keppni sem haldin var i samnefndri
•eyðimörk 1927. Brooke leikur kven-
mann sem neyðist til að bregða sér í
karlmannsgervi til að geta tekið þátt
í kepninni. Til að breyta stúlkunni
þurfti ekki mikið, eitt stykki hárkollu
og nokkur hár í skóreimayfirskeggið
sem hún skartar í myndinni. Þótti
förðunarmeisturum hafa tekist
nokkuö vel upp því þegar stúlkan
birtist fyrst í gervinu hvískruðu
menn sín á miUi hvaða lúði væri eig-
inlega kominn þarna.
CHICO
OG
HEIMS-
METIÐ
I Ameríku er mikið atvinnuleysi
eins og kunnugt er og þar ráfa menn
um og dunda sér við að drepa
tímann. Hann Chico Johnson, 23 ára,
ákvað að nrista af sér slenið og setja
heimsmet í einhverju. Og viti menn
enginn hafði sett heimsmet í að
halda húlagjörðum á lofti. Chico var
ekkert aö drolla heldur æfði sig af
kappi og árangurinn varð heimsmet,
enginn annar getur haldið 78
gjörðum á lofti eins lengi.