Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Page 6
DV. MANUDAGUR 24. OKTOBER1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur SVONA HAFA ÞEIR ÞAÐ í AMERÍKU r síitia- og raf- magnsreíkning- ar neyfenda í Bandaríkj- unum skoðaðir Okkur hafa borist í hendur tvenns- konar reikningar frá Bandaríkjun- um. Þetta eru símareikningur og raf- magnsreikningur eins og þeir berast í hendur neytenda þar í landi og eru þeir í mörgu frábrugönir því sem viö eigum að venjast hér á landi. Símareikningurinn Þaö sem fyrst ber fyrir augu á símareikningnum er nákvæmt yfirlit yfir gjaldliðina. Einnig er gerö grein fyrir því hvort viðskiptavinur- inn hafi greitt síðasta reikning og ef svo er er honum þakkað fyrir það. Þessi hluti reikningsins er reyndar ekkimjög frábrugðinn því sem viö eigumaðvenjast. En nú kemur að þeim hluta sem gerir þennan reikning sérstakan í okkar augum. Með honum fylgir nákvæmt yfirlit yfir öll utanbæjar- símtöl og símtöl til útlanda. Yfirlitið en mjög nákvæmt. Fyrst er greint frá því hvenær og klukkan hvað var hringt, hvert var hringt, hvaða núm- er var valið, hversu lengi var talað að ’.okum hversu mikið símtalið kostaöi. Við þekkjum reyndar til svipaðra yfirlita, en þau er einungis hægt að fá þegar símtölin eru pöntuð sérstak- lega gegnum símstöð. En símnot- endur í Bandaríkjunum þurfa ekki að panta símtölin sérstaklega til að fá þessi yfirlit. Hvers vegna ekki hér á iandi? Okkur lék forvitni á að vita hvem- ig þessum málum væri háttað hér á landi. Þorvarður Jónsson, verkfræðingur hjá Pósti og sima, sagöi að til að fá slíkar útskriftir þyrfti sérstakan út- búnað. Þetta hefði komið til tals, en þessi útbúnaður væri afar dýr og hefði fram að þessu ekki veriö taliö ráölegt að fara út í þetta. Hérlendis væri teljarakerfi tengt sjálfvirka símanum sem skráir niður alla notkun á simanum. I Banda- ríkjunum væri símakerfið nokkuö frábrugðið því sem það er hér. Þar væri t.d. ekki teljarakerfi og væri því engin skrefatalning innan hverrar símstöðvar sem þýddi aö allir símnotendur greiddu sama gjald, óháð notkun, innan símstöðvarinnar. En til aö skrá niður utanbæjarsímtöl og símtöl til útlanda nota þeir kerfi sem ekki er hérlendis. Þetta er ákveðinn útbúnaður sem gerir það kleift að „skoða” svokallaðan A-not- anda eða þahn sem hringir og sem síðan skráir nákvæmlega niður sím- talið. Og hver notandi fær síöan fyrr- nefnt yfirlit. Það aö Bandaríkjamenn hafa ekki teljarakerfi gerir þeim erfitt fyrir að hringja utanbæjar í símklefa. Þá verður að panta símtaliö gegnum símstöð. Hér á landi væru þó til tæki sem hægt væri að tengja viö símanúmer og fá upplýsingar um símnotkunina. Þessi tæki væru aðallega notuð til að kanna notkunina hjá símnotendum sem væru í vafa um hvort símareikn- ingurinn væri réttur. Þessa þjónustu veitir Póstur og sími ókeypis til almennra notenda. Einnig gætu fyrirtæki leigt afnot af þessum tækjum til aö fá yfiriit yfir sima- notkunina. MikiH verðmunur Ef við lítum nánar á yfirlitið frá Bandaríkjunum getum við séð hvað það kostar að hringja til íslands þaðan. Verðið virðist vera nokkuö mis- munandi, en er frá 23 kr. til um 29 kr. á mínútu. Þetta er allmiklu ódýrara en hérlendis, miöað viö að hringt sé frá Islandi til Bandaríkjanna. Ef hringt er með sjálfvirka símanum kostar mínútan 65 kr. og ef símtalið er pantað gegnum símstöð kostar mínútan 75,50 kr. og lágmark að borgað sé f yrir þrj ár mínútur. Þetta er vissulega mikill verð- munur. Þorvaröur taldi liklegt að þessi verðmunur gæti stafað af því að símakostnaðurinn væri niður- greiddur eða notast væri við eitt- hvert útjöfnunarverð. Látið ekki peningana renna burt Vatn er ekki ókeypis. I Reykjavík kostar t.d. eitt tonn af heitu vatni 12 kr. og kalda vatnið 1.90. Venjulegur krani, sem lekur, eða við ættum kannski kalla það dropa- lekur, getur lekið allt að 20.000 lítrum á ári. Ef um heitt vatn er að ræða verður það 240kr.á ári og 38 kr. Þessi upphæð verður mun hærri hjá þeim sem þurfa að hita upp vatnið með olíu eða rafmagni. Og algengt er að fleiri en einn krani sé lekur á einu heimili. Þetta eru kannski smámunir en eins og máltækið segir: Komið fyllir mælinn. Yfirleitt er auðvelt að gera við þennan leka og er þaö á flestra færi. Um 20.000 lítrar geta lekið úr venjulegum krarta á eirtu ári. XTHANK YOU FOR YOUR PAYMENT PREVIOUS BALANCE PAYMENT JUL 27 BUDG BILL CR IX OF 1A5.85 BALANCE AS OF AUG 1 CURRENT BILLING FOR 30 DAYS USE , TO JUL 28 ACTUAL METER READING ACTUAL METER READING FROM JUH 28 90223 88785 RESIDENTIAL SERVICE RATE RS FOR 1A38 KHH SURCHARGE FOR PA TAXES AT 6.81 X ENERGY CHARGE $.006602 PER KNH CHARGES THIS PERIOD REVIEN ADJUSTMENT BUDGET PLAN BILLING TO DATE $797.00 ELECTRIC SERVICE BILLING TO DATE $670.76 BILLING DIFFERENCE TO DATE $126.26 CURRENT BILL DUE DATE AUG 22 83 A REVIEH ADJUSTMENT HAS CHANGED YOUR BUDGET AMOUNT. 83 .88 ^ -83 .88 -1 .66 1 -1 .66 1 70, . 68 1 6, .80« ESTIMATED GROSS RECEIPTS TAX (%) INCLUDED IN YOUR BILL M .5 HE 5.751 -7jZ/ THIS IS YOUR ELECTRIC USE PROFILE - NETER NUMBER 2032804? BILLING PERIOD AVG KWH PER DAY AVG DAILY TEMPERATURE JUL 1983 48 75 F JUL 1982 90 75 F SET AIR CONDITIONER THERMOSTATS AT THE HIGHEST POSSIBLE COMFORT LEVEL BUT NOT BELOW 78 F. NDJFMAMJJ MONTHS 83 Pennsylvania Power & Light Comþany TWO NORTH NINTH STREEL ALLENTOWN. PA. 18101 _ Mjög náKvmmt yfirtit fyigir símareikningnum yfir utanbæjarsímtöl og símtöi tii útlanda hjá símnotendum i Bandaríkjunum. (4^ tíell ot Pennsyivama 717 737- 9560 751. R21 SEP 1, 1983 PAGE 2 , DETAIL OF ITEMIZED CALLS NO. DATE TIME PLACE AREA-NUMB ER X MIN AMOUNT 1. AUG 1 222PM T0 YORK PA 717 848-2000 D 1 .31 2. AUG 1 851PM T 0 MT P0C0N0 P A 717 839-6944 E 57 10.47 3 . AUG 2 713PM TO ICELAND 354154606 Y 17 14.22 6. AUG 4 124PM T 0 Y0RK PA 717 854-5553 D 2 . 48 5. AUG 4 620PM TO QUEENS NYC NY 212 529-0158 E 10 2.45 6 . AUG 4 747PM T 0 ICELAND 354143371 Y 10 8.62 7 . AUG 5 1020PM T 0 ICELAND 354117271 Y 16 13.42 8. AUG 6 620PM T 0 GL0UCESTER MA 617 283-1749 N 5 .90 9. AUG 8 833PM TO LANCASTER P A 717 394-5144 E 10 1.39 10 . AUG 10 358PM TO ICELAND 354151696 T 21 21.78 11 . AUG 12 717PM T 0 NEW YORK NY 212 688-1433 E 25 5.96 12. AUG 12 805PM T 0 MT P0C0N0 P A 717 839-6944 E 4 .82 13. AUG 13 1105AM TO GL0UCESTER MA 617 281-1852 N 1 .23 16. AUG 14 1137AM TO MOSCOW PA 717 842-2000 N 1 . 17 15. AUG 14 459PM T0 QUEENS NYC NY 212 656-2600 NM 2 .46 16 . AUG 14 524PM T 0 GLENBURNIE MD 301 859-7111 E 1 . 34 17 . AUG 14 612PM TO MT P0C0N0 PA 717 839-6944 E 9 1.73 18. AUG 14 I057PM TO ICELAND 354151696 Y 6 5.42 CONTINUED| Hór má sjá hvernig rafmagnsreikningurinn iitur út. Myndrænt yfirlit yfir rafmagnsnotkun hvers mánaðar síðastliðins árs og orkusparnaðar ráðleggingar. j þessu tilfelli fylgja ráðleggingar um það hvernig berí aö meðhöndla loftkælitækin. Rafmagnsreikningurinn Lítum nú nánar á rafmagnsreikn- inginn eins og hann birtist neyt- endum í Bandarík junum. Það fyrsta sem vekur athygli er að það virðist fara fram aflestur á raf- magninu mánaðarlega. Einnig þakkar tölvan neytandan- um fyrir síðustu mánaðargreiðslu ef hún hefur farið fram. Ennfremur er gerð grein fyrir heildarrafmagnsnotkun notandans, miðað við upphaflega áætlun. Línurit yfir notkunina Nú komum viö að þeim hluta reikn- ingsins sem gerir hann nokkuð spennandi. öllum reikningum fylgir súlurit sem sýnir notkunina yfir síðastliðið ár. Súluritið sýnir hvernig eyðslan deilist niður á hvem einstak- an mánuð, frá greiðslumánuðinum aftur að sama greiðslumánuði siöasta árs. Einnig eru upplýsingar um meöaleyöslu á dag sl. mánuð, miðað við sama mánuö seinasta árs og þar að auki er gefinn upp meðalhiti þessara tveggja mánuða. Með þessu getur notandinn gert sér nokkuð glögga grein fyrir rafmagns- eyðslunni. Hverjum reikningi fylgja ráðlegg- ingar um orkusparnað. Notandanum er bent á ýmsar leiðir til að minnka rafmagnseyðsluna. Sérstaða íslands Við höfðum samband við Aðalstein Guðjohnsen rafmagnsstjóra og spurðum hann hvernig þessum málum væri háttað hér á landi og hvort við ættum von á að fá reikn- inginn eins og þeir í Ameríku. Hann ; sagði aö rafmagnsnotkun á Islandi væri allfrábrugðin því sem hún er fyrir vestan haf. Þar sem hitaveita væri v£Hi ekki um miklar sveiflur að ræða yfir árið í rafmagnsnotkuninni, en í Bandarikjunum, þar sem hitun fer fram með rafmagni, væri um töluverðar sveiflur aö ræöa yfir áriö. Hér fer aflestur rafmagns fram einu sinni á ári og kvaö hann það ómögu- legt að láta slíkan aflestur fara fram mánaöarlega. Það væri mjög kostnaðarsamt og myndi fljótt bitna á rafmagnsveröinu. Rafmagnsveit- an sér reyndar einnig um aflestur hitaveitunnar og sem fer fram á sama tíma og aflestur rafmagnsins. Vegna þess að aflesturinn fer fram bara einu sinni á ári er ekki hægt að gefa notandanum vitneskju um mánaðarnotkunina. Nú á næstunni væri ráðgert aö breyta bæði rafmagns- og hitaveitu- reikningunum. Yrðu þeir nú mun auðlesnari og fylgdu nákvæmar upplýsingar um hvem gjaldlið. Einnig yrði gerð grein fyrir áætluðum kostnaði yfir áriö, miöað við notkun síðasta árs. Notendur gætu gert athugasemdir viö þessa áætlun og fengið henni breytt ef þess væri óskað. Þetta ætti t.d. við þá sem skipta um húsnæði og teldu að kostnaðurinn breyttist við það. Einnig geta notendur farið fram á að fá endurgreitt við uppgjör ef þeir hafa greitt of mikið. Þess verður að geta sérstaklega því annars fer um- framgreiðslan sjálfkrafa upp í næstu afborgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.