Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1983, Síða 30
30 DV. MANUD'AGUR 24. OKTOBER1983. Sjátfsþjónusta Tökum að okkur að þrífa og bóna bíla. Eða þú getur komið og gert við og þrifið þinn bíl sjólfur. Seljum kveikjuhluti og viftu- reimar i flesta japanska bila. Seljum oliusíur og loftsíur i flesta bila. Opið: Mánudaga til föstudaga kl.9-22. laugaidaga og sunnudaga kl. 9-18. BÍLKÓ- bflaþjónusta, Smiðjuvegl 66 Kópavogi. — Siml 79110. Hreinsar tennur V6 virkar sótthreinsandi á tennur, tannhold og munn V6 er sykurlaust og án litarefna V6 veitir tannholdinu nauðsynlegt nudd og styrkir það V6 fæst aðeins í apótekum Tándhygiejnisk tyggegummi Afrefum, kam'num, lömbum og slitlagi Frá Inglbjörgu Magnúsdóttur, frétta- ritara DV á Húsavík. Dagur Jóhannesson oddviti, Haga í ' Aöaldal, var spurður f rétta úr sveitinni nýlega. Hann sagöi atvinnuástand sæmilegt meðan tíðarfar væri svona gott. Stór hópur fólks ynni í sláturhús- inu á Húsavík, sérstaklega konur núorðið. Atvinnuhorfur fyrir veturinn eru slæmar, atvinnulíf einhæft, ekki hefði verið unnið á saumastofunni ur.dan- farin tvö ár. Byggingarvinna liggur niðriá veturna. Hafralækjarskóli tók til starfa 22. sept. og þar hafði veriö lokað fyrir raf- magnið í tæpa viku vegna ógoldinna rafmagnsreikninga, en fjárhagsvand- ræði skólans stöfuðu af töfum á endur- greiðslu framlaga frá ríkissjóði. Fremur iítið er um byggingafram- kvæmdir hjá bændum. Unnið er að gerð íþróttavallar við félagsheimilið Ýdali og áætlað að verkinu ljúki næsta sumar. Þrjú refabú hafa hafið starfrækslu, líklega bætast tvö við í vetur. Á einum bæ er hafin rækt angóra- kanína. Þyngd lamba er í tæpu meöallagi, heimtur eru nokkuð góðar. Heyfengur er vel í meðallagi, mun betri en útlit var fyrir snemma í sumar enda sprettutíð meö eindæmum góð. Kartöfluuppskera var fremur léleg. Þrátt fyrir aö ekki sé um þéttbýlis- kjama í Aöaldal að ræða er aðeins um helmingur fólksins sem hefur atvinnu af hefðbundnum búgreinum. Bundið slitlag á veginn til Húsavíkur ,hefur styrkt byggöina í sveitinni, aukið möguleika til að nálgast atvinnu enda fara jarðir ekki í eyði þótt búskap sé hætt. -JGH m-----------------------► Dagur Jóhannesson oddviti, Haga i , Aðaldal, hefur frá mörgu að segja úr sveitinni. D V-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir . DV-mynd Haiidór Kristjánsson „G eggjaðir jassarar” gáfu stuð á Hvoli — jassinn undir „breiðhyltskum” áhrifum Frá Halldóri Kristjánssyni, fréttarit- ara DV á Hvolsvelli: Tónlistarskóli Rangárvallasýslu stóð fyrir komu góðra tónlistarmanna til Hvolsvallar nýlega. Hér var á ferðinni tríó Guðmundar Ingólfssonar og léku þeir Guðmundur og félagar í félagsheimilinu Hvoli. Tónleikamir voru ágætlega sóttir og stóðu á annan tíma. Listamennimir léku jass frá ýmsum tímum og stöðum hérlendis sem erlendis, ívöfðum „breiðhyltskum” áhrifum. Af viðbrögðum áheyrenda mátti ráða að „jassgeggjarar” finnast víða. -JGH Nýiega tók til starfa veitingastaðurinn Borgarinn i Nýbýiavegi 22 i Kópavogi. Aðaláhersla er lögð i hamborgara og kjúklinga. Hróefnið i hamborgarana er fengið frá tilraunabúinu i Austurkoti en kjúkling- arnir koma sórstaklega skornir fró Holtabúinu. Veitingastaðurinn er opinn frá kl. 11—23.30daglega. Big- andiBorgarans er Jón Helgi Jóhannesson. DV-myndEinar Ólason ’• -Oddvitinní Aðaldal, Dagur lóhannesson, spurðurfrétta Menntun í upplýsinga- samfélagi Haldinn var sameiginlegur fundur skólasafnafulltrúa og skólasafna- nefndar fræðsluráðs Reykjavíkur þann 12. þ.m. í Hagaskólasafni með skólasafnvörðum í grunnskólum borg- arinnar. Sigrún Klara Hannesdóttir, lektor í bókasafnsfræðum við Háskóla Islands, flutti þar erindi er hún nefndi Menntun í upþlýsingasamfélagi: þáttur skóla- safna. Kom hún m.a. inn á vanda skólanna í tæknivæddu þjóöfélagi og nauðsyn þess að þeir fylgdust með þró- uninni. Skólasöfnin hafa mikla þekkingu að geyma og hlutverk þeirra er aö miðla henni til kennara og nemenda skólanna. Skólasöfnin eiga að vera skipulögö í samræmi við önnur söfn í samfélaginu, þau eru partur af bókasafnskerfi hvers lands. Benti hún einnig á aö þegar skólamir yrðu tölvuvæddir væri tölva skólans best staðsett á safninu, þar eiga allir greiðan aðgang. Skólasafnvörðum ber að annast upplýsingaaflun til kennara og nemenda í samræmi við námsmark- miðin. Einnig var lögð áhersla á hvemig skólasafniö getur nýst við að laga menntunina að þörfum ein- staklinganna, t.d. er skólasafnið kjörið hjálpartæki til aö koma til móts við nemendur sem skara fram úr en sá hópur hefur einkum orðiö útundan i skólakerfinu. Sigrún Klara er formaður IFLA alþjóöa starfshóps sem vinnur að stöölum um menntun safnvarða. Hún greindi einnig frá að starfshópurinn hefði einróma komist að þeirri niður- stööu aö lykilatriöin í starfi skóla- safnvarða væra: kennslu- og leið- beinendahlutverk, hlutverk sér- fræðings og stjórnunarhlutverk og með því undirstrikast hve menntun skóla- safnvarðarins er mikilvægur þáttur i upplýsingasamfélaginu. Erindi þetta vakti mikla athygli og kom af stað gagnlegum umræðum meðal f undarmanna. Bókaf ulltrúi rikisins var á f undinum og svaraði fyrirspurnum er til hans var beint. Umræöurá Alþingi: Hátt raforku- verð kannað A fundi sameinaös þings á fimmtudag voru tvö mál til umræðu: Annars vegar mælti Eiður Guðnason (A) fyrir tillögu, sem hann og aörir þingmenn Alþýðuflokksins leggja fram um könnun á orsökum hins háa raforkuverðs til almennings á Islandi. Uröu nokkrar umræður um það mál. Hins vegar mælti Guðmundur Einarsson (BJ) fyrir þingályktunar- tillögu, sem hann og aðrir þingmenn Bandalags jafnáðarmanna leggja j framumsölu ríkisbanka. -SþS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.