Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1983, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1983, Page 33
DV. LAUGARDAGUR12. NOVEMBER 1983. Lawrenson kom í fyrsta skipti á ævinni til íriands — þegar hann lék með írum gegn Pólverjum 1977 Lawrenson er ekki íri eins og hinir tveir sem hér er um rætt. Hann er fæddur í Preston á Norður-Englandi áriö 1958. Hann hefur nýtt sér þær reglur sem kveða á um að ef leik- maður á ætt sína að rekja til ein- hvers lands á Bretlandseyjum, megi hann leika fyrir viökomandi land. Það eru margir leikmenn sem hafa nýtt sér þennan möguleika og stund- um hefur skapast sú staða að við- komandi leikmaður hefur aldrel komið til landsins fyrr en hann allt í einu leikur fyrir það. Oftast eru þetta leikmenn sem hafa litla sem enga möguleika á að leika með enska landsliðinu og því tekið boði um aö leika með Wales, N- Irlandi eða Irska lýðveldinu. Þetta á varla viö um Mark Lawrenson, því að ekki er að efa að hann yrði fastur maður í enska landsliðinu, ef hann hefði ekki tekið boði um aö leika með Irum gegn Pólverjum árið 1977. Sjálfur segist Lawrenson ekki sjá eftir þessari ákvörðun sinni. Hann segir að leikir sínir með írska iiöinu hafi verið stærsti þátturinn í því að vekja áhuga Liverpool og Arsenal á sér. Preston og Brighton Lawrenson lék með Preston North End þegar hann spilaði sinn fyrsta landsleik. Preston var þá í miklum fjárkröggum og í neöri helmingi annarrar deildar. Þegar svo Brighton kom með tilboð upp á 100.000 pund í hinn 19 ára Mark Lawrenson var því feginsamlega tekiö. Meö Brighton var Lawrenson í fjögur ár og vann hann meðal annars fyrstu deildar sæti með liðinu árið 1979. Metupphæð hjá Liverpool 1 upphafi leiktímabilsins 1981-82 varð Brighton að losa sig við Lawrenson vegna peningaleysis hjá félaginu. Eins og fyrr segir börðust tvö af stærstu félögum Englands um hann. Það voru Liverpool og Arsenal og valdi Lawrenson þaö fyrrnefnda. Liverpool greiddi 900.000 pund fyrir hann sem enn í dag er hæsta verð sem liðið hefur keypt leikmann fyrir. Dularfullt Það þótti hálfgerð ráðgáta hvers MET Á WEMBLEY Hann er sá eini sem hefur skorað fyrir tvö félög þar f bikarúrslitaleik hann hafi ekki lýst yfir óánægju með hannsjálfur. Vantar herslumuninn Irska landsliðið hefur alltaf vantað einhvern herslumun til þess að geta tryggt sér sæti meðal bestu knatt- spyrnuþjóða Evrópu. Liðið er aðeins talið í þriðja styrkleika og fær þar af leiöandi mjög sterka mótherja og það er orðið langt síðan það hefur tryggt sér sæti í úrslitum Evrópu- eða heimsmeistarakeppninnar. Þessi herslumunur liggur í því að liðiö vantar fleiri leikmenn með getu þessara þriggja sem hér er um rætt. Leikmenn eins og Chris Houghton, Mike Robinson og Kevin Moran eru að vísu mjög færir, en svo eru það leikmenn eins og Gary Waddock, John Devine, Kevin O’Callaghan o. fl. sem aldrei myndu sleppa í landslið sem á að geta unnið eitthvað. þar með náði „verðmanían” hámarki sínu því að Bryan Robson er ennþá dýrasti leikmaður ensku knattspyrnunnar. Arsenal hefur enn ekki komið framvarðamálum sínum í samt lag síðan Stapleton fór þaðan haustið 1981 en málin virðast þó vera á réttri leið núna með Tony Woodcock og Charlie Nicholas. Gekk illa upp við markið Stapleton var seinn af stað upp við markið fyrir United þótt hann skánaði sem leikmaður. Um jólin ’81 hafði hann aðeins gert fimm mörk og þótt hann gerði átta eftir áramót, þá segir það sig sjálft aö þrettán mörk eru ekki góöur árangur hjá fremsta manni eins af bestu félagsliðum Eng- lands. Þessi markafæð stafaði aðal- lega af því að Stapleton og Gary Birtles, sem lék frammi með honum, náöu aldrei að stilla strengi sina nægilega vel saman. Birtles var því seldur til Nottingham Forest en við honum tók Norman Whiteside, 17 ára N-Iri sem leikið haföi í HM á Spáni ’82 við frábæran orðstír. IMýr samherji Stapleton bætti um betur á síðasta ári og skoraði 19 mörk og þrátt fyrir gott samstarf hans og Whiteside, er Ron Atkinson, stjóri United, ennþá að leita aö nýjum manni til aö leika frammi með Stapleton. I úrslitum Bikarsins gegn Brighton í maí fyrr á þessu ári skráði Frank Stapleton sig á spjöld sögu FA bikarsins með því að verða fyrsti maðurinn til að gera mark sitt með hvoru liöinu á Wembley. Núna hefur Stapleton gengið frekar illa að koma boltanum í netiö og svo gæti farið aö hann fengi nýjan mann meö sér í staö Whiteside þótt Mark Lawrenson — hinn fjölhæfl leikmaður Liverpool. vegna Bob Paisley festi kaup á þessum leikmanni. Hvar ætlaði hann aö leika honum fram á vellinum? Lawrenson hafði leikið sem miðvörður til að byrja með hjá Brighton. Hjá Liverpool voru Phil Thompson (enskur landsliðsmaöur) og Alan Hansen (skoskur landsliðsmaður) í þeirri stöðu, og þóttu þeir sterkasta miðvarðaparið í Englandi á þessum tíma. Lawrenson hafði skipt yfir í tengilið síðasta árið sitt með Brighton en Graeme Souness, Terry McDermott, Sammy Lee og Ray Kennedy voru á miðjunni hjá Liverpool og þóttu geysilega sterkir. Auk þess höfðu þeir fest kaup á Craig Johnstone frá Middlesbrough vorið áður og Ronnie Wheelan lét alltaf vita af sér. Eftir þessa upptalningu þótti liklegast að Lawrenson yrði látinn taka stöðu Alan Kennedy í vinstri bakverðinum. Það varð líka úr að hann byrjaði sitt fyrsta leiktímabil í þeirri stöðu. Enn einu sinni þurfti Alan Kennedy að byrja að berjast fyrir sæti sínu í liöinu. Hann náði því líka aftur en Lawrenson var sem 12. maður liðsins um tíma og lék þar sem vantaði mann á hverjum tíma. Vegna mikilla meiðsla í herbúðum „Rauða hersins” þetta keppnistíma- bil lék Lawrenson flesta leikina, bæði sem miðvörður og framherji. Geysifjölhæfur A síðasta keppnistimabili tryggði hann sér svo fast sæti sem miðvörður ásamt Alan Hansen. Með Liverpool hefur Lawrenson unniö deildina tvisvar og Mjólkur- 'bikarinn líka tvisvar. Eoin Hand, einvaldur Ira, ætlar að setja Lawrenson í miðju vamarinnar, ásamt Kevin Moran, þó Lawrenson hafi sýnt það að hann geti leikið hvar sem er á vellinum. Svo f jölhæfur er þessi sterki leikmaöur sem nú hefur leikið 22 landsleiki fyrir Ira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.