Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1984, Page 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR1984.
Andlát
Halldóra Jóhanna Sveinsdóttir lést 26.
janúar sl. Hún fæddist í Reykjavík 28.
nóvember 1895, dóttir hjónanna
Guðrúnar Ásmundsdóttur og Sveins
Guðmundssonar. Halldóra giftist
Bjama Jónssyni en hann lést árið 1974.
Þau hjónin eignuðust níu börn. Utför
Halldóru verður gerð frá Dóm-
kirkjunniídagkl. 15.
Guðrún Lýðsdóttir er látin. Hún fædd-
ist að Felli í Kollafiröi í Strandasýslu.
Hún eignaöist eina dóttur. Utför
Guðrúnar veröur gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 15.
Sigurður Öli Brynjólfsson er látinn.
Hann var fæddur hinn 8. september
árið 1929 í Steinsholti í Glerárþorpi,
sonur hjónanna Guðrúnar Rósinkrans-
dóttur og Brynjólfs Sigtryggssonar.
Sigurður tók BA próf í eðlisfræði og
stærðfræði frá Háskólanum árið 1954.
Hann starfaði um þriggja áratuga
skeið sem kennari við gagnfræða-
skólann á Akureyri og jafnframt við
iðnskólann þar sem hann var eingöngu
síðustu ár. Hann var lengi einn helsti
forystmnaður Framsóknarflokksins á
Akureyri. Varabæjarf ulltrúi varð hann
árið 1958 og bæjarfulltrúi 1962. Eftirlif-
andi eiginkona Sigurðar Ola er Hólm-
fríður Kristjánsdóttir.
Jón Kjartansson bifreiöaeftirlits-
maður, Engjavegi 12 Selfossi, sem lést
24. janúar, verður jarðsunginn fró Sel-
fosskirkju laugardaginn 4. febrúar kl.
13.30. Bílferðverðurfrá Umferðarmið-
stööinni kl. 11.30.
Hólmfríður Oladóttir Baldvinsson
kaupkona, Freyjugötu 36, verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 3. febrúar kl. 15.
Sveinbjörg Einarsdóttir frá Ferju-
bakka verður jarðsungin frá Borgar-
neskirkju laugardaginn 4. febrúar kl.
14. Bílferð veröur frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 11 sama dag.
Unnur Guðfinna Jónsdóttir, Grenimel
15, verður jarðsungin frá Neskirkju
föstudaginn 3. febrúar kl. 15.
Hjörleifur Jónsson, fyrrverandi bif-
reiðaeftirlitsmaður, lést í Borgar-
spítalanum aðfaranótt 31. janúar.
Ragnheiður Jónasdóttir frá Vestra-
Miðfelli, andaðist á Dvalarheimilinu
Höfða Akranesi þann 31. janúar.
Gísli Einar Jóhannesson, fyrrum
bóndi, Skáleyjum, sem andaðist 27.
janúar sl., verður jarösunginn frá
Stykkishólmskirkju laugardaginn 4.
febrúar kl. 10.30. Bílferö verður frá
BSI kl. 15 á föstudag og til baka á
laugardag.
Sigrún Gísladóttir, fyrrverandi
tónlistarfulltrúi ríkisútvarpsins, Sól-
vallagötu 33 Reykjavík, er látin.
Þjóðbjörg Þórðardóttir, Selvogsgötu 5
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 3.
febrúarkl. 13.30.
Jóhannes Jónsson, Ásakoti, Biskups-
tungum, verður jarðsunginn frá
Bræðratungukirkju laugardaginn 4.
febrúar kl. 14. Ferð verður frá BSI kl.
10.30.
Grímur Grimsson, fyrrum bóndi aö
Svarfhóli, Geiradal, Oðinsgötu 18C,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Helga Jónsdóttir frá Lambhóli verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Fundir
Víkingur
Knattspyrnudeild Víkings heldur aöalfund
sinn fin-untudaginn 9. febrúar kl. 20.00 í
Félagsheimili Víkings v/Hæðargarö.
Kvenstúdentafélag íslands,
Félag íslenskra háskólakvenna.
Aöalfundur veröur haldinn í Kvosinni
laugardaginn4.febrúarkl. 14.
Stjómarkjör og önnur mál.
Stjómin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Fundur veröur í félagsheimilinu aö Baldurs-
götu í kvöld, 2. febrúar, kl. 20.30. Spiluð
veröur félagsvist, rætt verður um væntan-
legan aðalfund Bandalags kvenna í Reykja-
vík. Konur, fjölmennið.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur aöalfund sinn þriöjudaginn 7. febrúar í
Domus Medica kl. 20.30. Venjuleg aöalfundar-
störf. Mætiö vel.
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar
Húkrunarfélags íslands
var haldinn 26. janúar síöastliöinn. A fundin-
um fóru fram venjuleg aöalfundarstörf, m.a.
kosning stjómar og fulltrúa á fulltrúafund
félagsins.
Stjóm deildarinnar er þannig skipuö að
loknum aöalfundi: Jón Karlsson formaöur;
aðrir í stjórn eru: Ragnheiður Siguröardóttir,
Hrafnhildur Baldursdóttir, Sigurbjörg Olafs-
dóttir, Lilja Steingrímsdóttir. Varamenn:
Áslaug Björnsdóttir, Ingibjörg A. Guðmunds-
dóttir og Ingibjörg H jálmarsdóttir.
Þá voru á fundinum gerðar eftirfarandi
samþykktir:
Aöalfundur Reykjavíkurdeildar Hjúkrunar-
félags Islands, haldinn þann 26. janúar 1984,
mótmælir eindregið framkomnum hugmynd-
um stjómvalda þess efnis aö fólk sem þarf á
sjúkrahúsvist aö halda verði látiö taka á sig
að hluta kostnað sem af þeirri dvöl leiöir.
Aöalfundur Reykjavíkurdeildar Hjúkmnar-
félags Islands mótmælir harðlega kjara-
skerðingu rikisstjómarinnar. Fundurinn lýsir
furðu sinni á viöbrögðum ríkisstjórnarinnar
viö hógværri kröfugerö BSRB í yfirstandandi
kjaradeilu. Fundurinn krefst þess aö ríkis-
stjórnin semji nú þegar um fimmtán þúsund
króna lágmarkslaun.
Tilkynningar
Sólarkaffi Arnfirðinga-
félagsins í Reykjavík
verður í Domus Medica föstudaginn 3.
febrúarkl. 20.30.
Óháði söfnuðurinn
Forstööumaður safnaðarins, Baldur
Kristjánsson, er meö viðtalstíma í Safnaöar-
heimilinu á miðvikudögum milli kl. 17 og 19.
Síminn þar er 10999, heimasími 25401.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
Gleraugnalaus hamingja
Maöurinn haföi lög aö mæla í
sjónvarpinu í gærkvöldi þegar hann
sagöi aö ríka fólkið væri alltaf
hamingjusamt. Já, hamingjan er
mikil þar um slóðir, í því lastabæli
Dallas Texas.
Annars er það m.a. tvennt sem
vekur athygli manns þegar þættir
þessir eru skoöaöir. I fyrsta lagi eru
allir Dallasbúar gleraugnalausir. Þá
vaknar sú spuming hvort það sé
genetískt fyrirbæri. Eöa veðurfræöi-
legt. I ööm lagi ríöa tóbaksfyrirtæk-
in ekki feitum hesti frá borginni.
Hvaö veldur veit ég ekki. En búrbón-
framleiðendur græöa á tá og fingri.
Dýralífsmyndin þar á undan var
ekki skapbætandi. Aö minnsta kosti
ekki, þegar hljóöiö var þaö eina sem
barst skilningarvitunum. Aö heyra
fuglakvakið og skordýratístið svona.
um miðjan vetur minnti betur en
nokkuö annaö á þá staöreynd, aö
land vort er ekki byggilegt fyrir
fimmeyring og má furöu sæta aö
Ingólfur og hans nótar skyldu ekki
hafa hypjað sig heim eftir fyrsta
veturinn.
Skemmtiþættirnir þrír í dagskrár-
lok fóru aö miklu leyti framhjá mér
en þaö sem sást var einatt bráö-
fyndið, sérstaklega kaffiflaskan í
ullarsokknum. Veitti okkur ekki af
fleiri slikum upplyftingum.
Utvarp lét ég eiga sig eins og oftast
áöur. Rás eitt er þó langtum betri en
rás tvö.
Guölaugur Bergmundsson.
Bók um Húsmæðraskólann
á Hallormsstað
Haustiö 1982 kom út bók um Húsmæðra-
skólann á Hallormsstað hjá Bókaútgáfunni
Þjóðsögu. Prentað hefur verið blaö með
viðauka og leiðréttingum sem festa má inn í
bókina.
Fæst það ókeypis hjá útgefanda og nokkr-
um bóksölum og eru eigendur bókarinnar
hvattir til aö eignast þaö. Bókin um
Húsmæðraskólann á Hallormsstaö er 50 ára
afmælisrit prýtt mörgum myndum.
Þorrablót Golfklúbbs
Reykjavíkur
verður haldið i Golfskálanum í Grafarholti
laugardaginn 4. febrúar kl. 19. Þorramatur
frá Múlakaf fi. Hljómsveitin Metal leikur fyrir
dansi. Miðaverö kr. 500. Aðgöngumiðar seldir
hjá framkvæmdastjóra. Miðapantanir í
simum 35273,84735 og 33533.
íþróttir
Stúlkna-, meyja-, drengja- og
sveinameistaramót íslands
fer fram 11. og 12. febrúar nk. Laugardaginn
11. febr. verður keppt í Ármannsheimilinu við
Sigtún og hefst keppnin kl. 11.20. Greinar:
Drengir og sveinar hástökk með og án atr.,
þrístökk og langstökk án atr. Stúlkur og meyj-
ar langstökk án atr. Sunnudaginn 12. febr.
veröur keppt í Baldurshaga og hefst keppnin
kl. 14.
Greinar í öllum flokkum verða 50 m hlaup, 50
' m grindahlaup og langstökk. Þátttökutilkynn-
ingar verða að berast á þar til gerðum
skráningarspjöldum til Stefáns Jóhannssonar
Blönduhhð 12 Rvk fyrir þriðjudaginn 7. febr.
Skráningarspjöldin skulu vera skilmerkilega
útfyllt með fæðingarári, dagsetningu og grein
sem viðkomandi ætlar að keppa í, einnig skal
getiö um besta árangur í hlaupum.
Frjálsíþróttadeild Ármanns.
Unglingamót í
fimleikum
Unglingamót verður haldið í Laugardalshöll
18.—19. febrúar kl. 15.00, báða dagana.
Keppt verðurí fjórum aldurshópum,
lOáraogyngri,
11—12ára,
13—14ára,
15—16ára.
Stúlkurnar munu keppa í sænska fimleika-
stiganum og piltarnir í nýja, íslenska stigan-
um.
Þátttökutilkynningar berist viku fyrir mót.
Tækninefnd karla í fimleikum heldur nám-
skeið mjög fljótlega fýrir dómara, þjálfara og
aðra áhugamenn.
Farið verður í gegnum nýja, íslenska fim-
leikastigann.
Sundmót Ægi,
5. febrúar 1984
Sundmót sundfélagsins Ægis verður haldiö í
Sundhöll Reykjavíkur þann 5. febrúar 1984 kl.
15 og hefst upphitun kl. 14. Þátttökutilkynn-
ingar berist fyrir 4. febrúar nk. til Kristins
Kolbeinssonar, Granaskjóli 17, Reykjavík,
sími 10963. Þátttökugjald er kr. 30 fyrir
hverja einstaklingsgrein og kr. 60 fyrir
boðsund.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
1. gr. 400mskriðsundkarla,
2. gr. 200m baksund kvenna,
3. gr.lOOmbringusundkarla,
4. gr. lOOm bringusund kvenna,
5. gr. lOOm flugsund karla,
6. gr. 200m flugsund kvenna,
7. gr. lOOmskriðsundkarla,
8. gr. 200mfjórsundkvenna,
9. gr. 4xl00mskriðsundkarla,
10. gr. 4x l(K)in fjórsundkvenna.
Golfskóli
Annað námskeið í golfskóla Þorvaldar Ás-
geirssonar á þessu ári fer senn að hefjast.
Kennslan fer fram í íþróttahúsinu i Garöabæ
á laugardagsmorgnum. Þar geta bæði
byrjendur og lengra komnir fengiö tilsögn.
Kylfur og boltar á staðnum.
Allar nánari upplýsingar í síma 34390.
Ferðalög
Útivistarferðir,
helgarferð 3.-5. febr.
Vetrarferð á nýju tungli. Haukadalur, Gull-
foss í klaka, Sandfell, skíðagöngur, göngu-
ferðir. Gist við Geysi. Sundlaug. Farmiðar á
skrifst. Lækjarg. 6a, s. 14606. Sjáumst.
Utivist.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 5. febrúar:
1. Kl. 13, Grimmannsfell (482m). Ekið austur
fyrir Mosfellsbringur og gengið þaðan á
fjallið. Verðkr. 200,-
2. Kl. 13, skíðagönguferð á Mosfellsheiði.
Verð kr. 200,- Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt
fyrir börn í fylgd fullorðinna.
ATH.: Munið að skila útfylltum ferða- og
f jallabókum á skrifstofuna, öldugötu 3.
Gosið stendur
höllumfæti
Fundur fulltrúa fjármála-
ráðuneytisins og Félags íslenskra iön-
rekenda í gær um lækkun gosdrykkja-
verðs með niðurfellingu vörugjalda
var árangurslaus en viðræðum verður
haldið áfram í dag. Ofsköttun á gos-
drykkjum hefur leitt til mikillar
sölutregðu og mun hún nema 20% á
síðasta ári. Á gosdrykkjum er tvöfalt
vörugjald, 17% og 24% auk 23,5%
söluskatts og fer rúmlega helmingur af
útsöluverði hverrar gosflösku beint í
skatta til ríkisins.
Aörar drykkjarvörur eru skatt-
litlar, skattlausar eða jafnvel niður-
greiddar og stendur gosflaskan því
höllum fæti. I viðræðum f jármálaráðu-
neytisins og iönrekenda hefur verið
rætt um að færa eitthvað af gos-
drykkjasköttunum yfir á aðrar
drykkjarvörur sem þá myndu hækka.
Er þar um að ræða kakó, te, kaffi,
kókómjólk, og ávaxtasafar.
-EIR.
Sáeftirlýsti
hríngdi heim
Pilturinn úr Kópavogi, sem auglýs
var eftir í blöðum og útvarpi í gær, er
kominn í leitirnar. Hafði hann
samband við fööur sinn í gærkvöldi og
sagði að allt væri í lagi meö sig.
-klp-
Tekinn meðkílóaf
hassi innan klæða
Tollverðir á Keflavikurflugvelli
handtóku í fyrrakvöld 24 ára gamlan
mann er var að koma með flugvélinni
frá Luxemborg. Fannst í fórum hans
tæpt kíló af hassi en það hafði hann fest
á sig innan klæða. Maðurinn, sem
hefur ekki áður verið tekinn fyrir inn-
flutning á f íkniefnum, var úrskurðaöur
i 5 daga gæsluvaröhald á meöan málið
er í rannsókn.
-klp
Loðnanerkomin
Nú er kátt á loðnunni. Frá miönætti í
nótt og fram til kl. 9 í morgun tilkynntu
8 loönubátar afla til Loðnunefndar, alls
um 5 þúsund tonn. Fiskurinn fékkst á
Mýragrunni, vestur af Stokksnesi. Afl-
inn skiptist þannig á milli báta; Kap 2.
120 tonn, Magnús 530, Hrafn 650, Jöfur
460, Huginn 600, Jón Finnsson 600,
Isleifur 700 og Beitir 1250. Þá höfðu
borist fréttir af að Jón Kjartansson
hefðifylltsig. -GB.
90 ára er í dag, fimmtudaginn 2.
febrúar, Kristján Guðmundsson frá
Hítarnesi. Hann dvelur nú á Sólvangi í
Hafnarfirði.
Þetta er meiri auglýsingamaður-
inn sem við höfum fengið — hann
hefur ekki einu sinni getað
sannfært mig um að ég ætti að
fara út með honum á laugardag-
inn.