Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1984, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR1. NOVEMBER1984.
11
Fjórðungsmótið '85
haldið í Reykjavík
Fjóröungsmót hestamanna á Suöur-
landi verður haldiö í Reykjavík, á Víði-
völium, dagana 27.—30. júni 1985. Aö
mótinu standa 15 hestamannafélög á
Suður- og Suðvesturlandi ásamt
hrossaræktar- og búnaðarsamböndum
á svæöinu. I þessum félögum er um
helmingur allra félagsbundinna hesta-
manna.
Vonast er til og búist við að mikill
fjöldi manna muni sækja þetta
fjórðungsmót því aðstaða er eins og
best verður á kosið. Athafnasvæði
Fáks býður upp á fjölda hesthúsa
ásamt stórum hlöðum. Unnt verður að
koma öllum kynbótahrossum fyrir inni
í húsi. Einnig geta eigendur annarra
keppnishrossa fengið pláss fyrir sín
hross í húsi.
Keppnissvæðið er stórt. Hringvöllur-
inn er 1200 metrar auk tveggja 300
metra hringvalla sem verða notaðir til
sýninga og keppni. Annar völlurinn er
nýr með áhorf endaaðstöðu. Verið er að
útbúa sýningarsvæði fyrir kvöldvökur
og sýningar. Fákur er að reisa 450 fer-
metra félagsheimili sem verður tilbúið
til notkunar á fjóröungsmótinu. Þar
verður aðstaða fyrir veitingar og aðra
þjónustu.
Verið er að útbúa tjaldstæði á Elliða-
ársvæðinu. Aðstaða fyrir ferðahesta
verður við Korpúlfsstaði að mestu leyti
en girðingar fyrir keppnishesta nær
keppnissvæðinu.
Ahugi er á því að kynna hestamönn-
um þær reiðleiðir sem bestar eru úr
Vika samviskufanganna:
10 konur
f f angelsi
Amnesty Intemational hefur sér-
staklega tilgreint þá viku sem nú er að
líða sem „viku samviskufanganna”.
Slíkt er gert á hverju ári og vikan til-
einkuð einhverjum ákveðnum hópi
fanga. I ár beinist athyglin að konum í
fangelsi. Markmiðiö er að vekja at-
hygli almennings á því hversu margir
verða að þola fangelsun eða „hverfa”
með vitund stjórnvalda vegna sann-
færingar sinnar. Konumar 10, sem til-
greindar eru þetta árið, em frá jafn-
mörgum löndum í öllum heimshlutum.
Þær eiga það allar sameiginlegt aö
hafa barist fyrir trú sinni eða skoöun-
um en hvorki hvatt til né beitt ofbeldi.
Aðferð Amnesty Intemational er í
því fólgin að einstaklingar skrifa bréf
til stjómvalda í viðkomandi löndum og
kref jast þess að konurnar verði látnar
lausar eða upplýsingar veittar um af-
drif þeirra.
Upplýsingar um hverja konu og
heimilisfang stjómvalda liggja
frammi á skrifstofu Amnesty Inter-
national aö Hafnarstræti 15 í Reykja-
vík en þar er opið á milli klukkan 16 og
18.
BILALEIGUBILAR
! HfRLENDIS OG ERLENDIS
Reykjavík: 91-31615/686915
Akureyri: 96-21715/23515
Borgarnes: 93-7618
VíðigerðiV-Hún. 95-1591
Blönduós: 95-4136
Sauöárkrókur: 95-5175/5337
Siglufjörður: 96-71489
Húsavík: 96-41940/41229
Vopnafjörður: 97-3145/3121
Egilsstaðir: 97-1550
Seyðisfjörður: 97-2312/2204
Höfn Hornafirði: 97-8303
interRent
FM‘85
FJÓRÐUNGSMÓT
HESTAMANNA DCVV IAX/II/
Á SUÐURLANDI rlll I IVJMV llX
27.-30. JÚNÍ
Reykjavík, til dæmis í Heiðmörk á
Hólmsheiði og í Eldg já.
Keppnisgreinar á FM ’85 verða hefð-
bundnar: dómar kynbótahrossa, kyn-
bótasýningar, gæðingakeppni, ungl-
ingakeppni auk kappreiða.
Auk þessara atriða verða skemmt-
anir, s.s. kvöldvökur, hópreiðar og
hlöðuball.
I framkvæmdastjóm em þeir Gunn-
ar B. Dungal, Fáki, sem er formaður,
' en aðrir em Bjami Sigurösson, Gusti,
Hreinn Olafsson, Herði, Halldór Guð-
mundsson, Ljúfi, Helgi Eggertsson,
Búnaðarsambandi Suöurlands, Krist-
ján Jónsson, Geysi, og Þórir Steindórs-
son, Sleipni. Framkvæmdastjóri móts-
ins er Gisli B. Björnsson. EJ
d 3T|
Óumdeílanlega
hæstu innlánsvextír
*-18 mánaða sparireikningar Búnaðarbankans bera 27,5% nafnvexti, eða
29,4% ársávöxtun
^Vextir eru lausir til útborgunar 2svar á ári, 6 mánuði í senn.
Búnaðarbankinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti sem í boði eru hverju sinni.
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Traustur banki