Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1984, Síða 7
DV. MANUDAGUR12. NOVEMBER1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Skýrar reglur vantar um
grænmetisinnflutninginn
Islenska grænmetið er nú senn að um hvenær innlenda framleiðslan ann- það ætlum viö að gera,” segir Guð- fulltrúi frá viðskiptaráðuneytinu verði I viðskiptaráðuneytinu fengust þær
ganga til þurrðar á markaðnum. Enn areftirspum. mundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í skipaður í nefnd sem landbúnaðarráö- upplýsingar að verið væri að vinna að
munu þó vera til tómatar, hvítkál, „Eg tel tvímælalaust að það þurfi aö landbúnaðarráöuneytinu. herra skipaði fyrr á þessu óri til að tÚnefningufulltrúaínefndina.Ogbúist
rófur, gulrætur, steinselja, kinakál og setja reglur um þennan innflutning og Guðmundur segir að beðið sé eftir að fjallaumþessimál. erviðaðþaðgeristónæstunni. APH
salat. Líklegt er aö íslenskir tómatar
og hvítkál verði búið nú í mónaðarlok
en gulrætur duga ef til vill til áramóta.
Þó aö enn sé til kínakál og salat er
langt frá þvi aö þaö sé nóg til aö anna
eftirspurn.
Fram að þessu hefur Sölufélag garð-
yrkjumanna flutt inn grænmeti þegar
það íslenska hefur ekki verið til. Sölu-
félagið hefur verið eitt um þennan
innflutning en í fyrra bættust aðrir að-
ilar við sem einnig fengu leyfi til að
flytja inn grænmeti og kartöflur. Les-
endum er líklega flestum í fersku
minni sú umræða sem ótti sér stað um
innflutningsmál grænmetis og þó sér-
staklega kartaflna. Oþarfi er að rifja
upp þá atburði nú en vert er að minn-
ast hver niöurstaöan varð. Niðurstað-
an varð sú að aörir aöilar en Sölu-
félagiö og Grænmetisverslun landbún-
aöarins fengu leyfi til að flytja inn
grænmeti á þeim tíma sem innlend
gæðaframleiðsla annaöi ekki eftir-
spurn.
Engar reglur
Nú þegar farið er að grynnka á is-
lenska grænmetinu er innflutta græn-
metið aö koma á markaðinn. Bananar
hf. og Eggert Kristjánsson eru þegar
byrjaðir aö flytja inn grænmeti sem lít-
ið er af hér eða ekki fáanlegt. Þessir
aöilar hafa ráðist í þaö að flytja hingað
til landsins grænmeti upp á von og
óvon þvi ekki hefur þeim tekist að fá
skýr svör hjá ráðamönnum um hvað sé
leyfilegt að flytja inn á hverjum tíma.
Hins vegar hafa þessir aöilar jafnan
fengið skrifaö upp á tilskilda pappíra
þegar farmurinn er kominn i höfn.
Þaö er þess vegna aö margir sem
standa aö þessum innflutningi vilja að
settar verði nákvæmar reglur um
þennan innflutning þannig aö hann geti
gengið snurðulaust fyrir sig.
„Það vantar einhverjar reglur um
þennan innflutning. Það er bara til
góös að sem flestir flytji inn grænmeti
en það má ekki verða til þess að skaöa
innlendu framleiðsluna. Það eru vissir
tímar sem eru erfiðir i þessum inn-
flutningi eöa þegar íslenska grænmetið
er að koma á markaðinn og á haustin
þegar það er að ganga tU þurrðar,”
sagði Níels Marteinsson hjá Sölufélagl
garöyrkjumanna.
„Það er bráðnauðsynlegt að settar
verði skýrar reglur um þennan inn-
flutning til að koma í veg fyrir
árekstra og þras því það er dýrt að
standa í þessu þrasi,” segir Gisli V.
Einarsson hjá Eggerti KristjánssynL
„Við fáum ekki leyfi fyrr en grænmetið
er komið til landsins og þaö er erfitt að
fó skýr svör í ráðuneytinu. Við óskum
þess eindregið aö fullur friður riki um
þessi mál,” segir Gisli.
Hann segir að enn sé ekki með öllu
ljóst hvemig túlka beri þær tilslakanir
sem gerðar voru í fyrra á innflutningi
á grænmeti. Aöilar eru ekki sammála
Hugmynda-
samkeppni
fönaðarbankaas
Xi tl nu‘i1J
nvtt tákn
Mikil gróska er nú 1 starfsemi Iönaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið,. að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrir tákn kr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
Iðnaðarbairidnn
-nútimabiuiki
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafntjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.