Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 57 spítalanum geta þeir haft samband viö mig ef þeir þurfa á aö halda,” sagöi Anna Edda. — Hvers konar sérfæöi er það sem sjúklingarnir þurfa aðallega aö vera á? „Meðan dvaliö er á sjúkrahúsinu er mest um mauk-, kólesterólsnautt, sykursýkis- og megrunarfæöi aö ræöa. Flestar leiöbeiningar eru gefnar á sykursýkis- og megrunarfæöi. Eg reyni aö kynna mér matarvenjur fólks og ráðlegg svo breytingar eftir því sem þurfa þykir. Eg reyni aö beina fæöuvenjum í heppilegan farveg. Þaö þýðir ekkert aö breyta út af matar- venjum í stuttan tíma, t.d. meðan dval- iö er á sjúkrahúsinu. Þaö veröur aö breyta þeim ævilangt ef árangur á að nást og haldast,” sagöi Anna Edda. Hún sagöi aö um 50% af sjúklingum Borgarspítalans væru á sérfæöi. Alag á sérfæðisdeildina hefur aukist til mik- illa muna eftir aö B-álma Borgar- spítalans, þar sem eru öldrunardeild- irnar, kom til sögunnar. Aldraöir eru mikiö á sérfæði, t.d. maukfæöi. „Viö semjum sérfæðimatseðilinn eftir hinum almenna matseðli. Þaö hefur jafnan veriö mjög góö samvinna meö starfsfólki eldhússins,” sagöi Anna Edda. Góð áhöld mikilvæg „Þaö byggist á góöum áhöldum og góðu starfsfólki aö hægt sé aö anna þeim störfum sem þarf í eldhúsi eins og hér og svo auðvitað góöri skipulagn- ingu og undirbúningsvinnu,” sagöi Geir Þóröarson yfirmatsveinn. Öll eldunaráhöld, pottar og pönnur í eldhúsinu eru auövitaö gríöarstór, allt úr skínandi gljáfægöu stáli. Þarna er m.a. aö finna afarstóran pott sem tek- ur hvorki meira né minna en 350 lítra. Geir sýndi okkur gríöarstóran þeyt- ara, sem nýlega er kominn í gagniö. Aö honum er mikiö hagræöi. „Aöur þurftum viö aö stappa kart- öflurnar í hrærivél en nú þarf ekki ann- aö en aö hella vatninu af kartöflunum, láta smjör, mjólk og sykur út í og ráö- ast svo á allt saman meö stóra þeytar- anum, hann sér um afganginn,” sagði Geir. Eins og nærri má geta er mikið upjp- vask í svona stóru eldhúsi. Það er vita- skuld uppþvottavél sem sér um þaö. „Hún er síðan 1975,” sagði Agústa. „Vélin er í góöu lagi enn í dag. Þeir sem hafa umboöiö fyrir þessa vél eru alltaf jafnhissa þegar þeir koma og sjá í hve góöu formi hún er. Prentaður hátiðamatseðill Undanfarin ár hefur jafnan veriö gefinn út sérstakur prentaöur matseð- ill yfir hátíöisdagana. Þar er einnig getiö um heimsóknartíma, afgreiöslu- tíma verslunar í anddyri Borgarspítal- ans og Grensásdeildar. Þar er einnig Þarna er verið aö skammta í matarbakkana sem allir sjúklingar fá mat sinn í. A myndinni eru talið frá vinstri: Anna, Edda, Geir, Ragnhildur, Soffía, Margrét og Bryndís. aö finna upplýsingar um guðsþjónustu- hald á spítalanum og á útideildum um jólin og fleiri hagnýtar upplýsingar. Allir sjúklingar fá slíkan matseöil af- hentan. Starfsemin á sjúkrahúsinu veröur að halda áfram þótt jól séu. Þá er reynt að gera allt eins hátíölegt og unnt er fyrir þá sem eru þar viö vinnu eöa eru sjúklingar. Eftir aö hafa þegið kaffi og smakkaö á jólasmákökunum þökkuöu blm. og ljósmyndari DV fyrir sig og óskuöu gleöilegra jóla. A.Bj. Sigurdis, Hulda, Unnur, Auöur, Sigvaldi, Agústa, 011 áhöld í eldhúsinu eru mjög stórgerð, svona eins og gerð fyrir „tröllahendur”. Oft er boðiö upp á búðinga í eftirrétt á Borgarspítalanum. Súrmjólkur- og jógúrtbúðingar eru sérlega ljúffcngir. Sigurdís við búðingavagn. DV-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson. I bakaríi Borgarspitalans. Þarna er Ingibjörg að setja í formin, Halldóra og Hulda. Ingibjörg hefur unnið lengi i bakariinu og aldrei brunnið hjá henni kaka. Það er dálítið skemmtilegt að hún á þrjá syni sem allir eru bakarar. Hún sagðist aldrei þurfa að baka heima. Synir hennar sjá um þá hlið mála. Geir Þórðarson, Agústa Sigurðardóttir og Sigvaldi Ægisson eru þarna hjá cinum stærsta potti landsins sem tekur 350 lítra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.