Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Blaðsíða 34
78
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984
Kardimommu-
bærinn
blekking eða veruleiki?
Hver hefur ekki séð Kardimommu-
bæinn? Jæja, þá gefst tækifæri til þess
núna. Frumsýningin verður í Þjóðleik-
húsinu á annan dag jóla klukkan fimm.
Vegna fjölmargra áskorana.
Það er hreinasti óþarfi að kynna
Kardimommubæinn í löngu máli.
Þetta leikrit Thorbjöms Egners hefur
verið sýnt oftar en einu sinni hér á
landi og það er alveg efalaust að
börnin munu, nú sem fyrr, fara í röð til
að sjá það. Leikritið er sívinsælt. Þess
má geta að frumsýningardaginn verða
rétt 28 ár liðin síðan Kardimommu-
bærinn var frumsýndur samtímis í
þremur norskum leikhúsum; fjórum
árum síðar var hann kominn hingað til
lands. Og hefur farið víðar. Kardi-
mommubærinn hefur veriö færöur upp
aftur og aftur í flestum löndum heims,
allt frá Islandi til Kína og Japan, frá
Rússlandi til Afríku og Ástralíu.
Thorbjöm Egner samdi sjálfur tón-
list og texta við leikrit sitt og teiknaöi
aukinheldur leikmynd og búninga.
Þýðinguna gerðu Hulda Valtýsdóttir
og Kristján frá Djúpalæk, leikstjóri er
Klemens Jónsson og höfundur dansa er
Erik Bisted. Hljómsveitarstjóri er
Agnes Löve og lýsingu annast Kristinn
Daníelsson.
Flestallar persónur leikritsins hafa
fest rætur í hugum áhorfenda og lifa
þar góöu lífi. Rennum nú yfir hlut-
verkaskipan í þessari nýju uppfærslu:
ræningjana þrjá, sem setja hvað
mestan svip á verkið, Kasper, Jesper
og Jónatan, leika þeir Pálmi Gestsson,
Randver Þorláksson og örn Arnason.
Skörungskerlinguna Soffíu frænku
leikur Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og
Róbert Arnfinnsson bregður sér í
búning Bastíans bæjarfógeta. Skjóta
má því að að Róbert var í sama
búningi þegar Kardimommubærinn
var f yrst sýndur á Islandi 1960.
Uppi í turni sínum verður Tóbías
gamli í gervi Baldvins Halldórssonar
og gáir til veöurs, Sörensen rakari
spilar enn á klarinett meöan hann sker
hár fólks (Jón S. Gunnarsson), Pétur
Einarsson er pylsugerðarmaðurinn,
Siguröur Skúlason læst vera Berg
kaupmaður og svo framvegis. Með
önnur stór hlutverk fara Bryndís
Pétursdóttir, Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson og Kristján
Viggósson. Þá eru enn ótalin hlutverk
þeirra fjölmörgu bama sem taka þátt í
sýningunni. Þrjú þeirra em stærst:
Brynja Gísladóttir leikur Kamillu litlu,
Finnur Sigurðsson leikur Tomma og
Gísli Guömundsson leikur Remó. Sam-
kvæmt áreiðanlegum upplýsingum
sem Helgarblaðið hefur aflað sér taka
nálægt fimmtiu manns þátt í
sýningunni. Þá er hljómsveitin ekki
talinmeð.aðósekju.
Ræningjarnir taka til óspilltra málanna í turni Tóbiasar. Hann fórnar sjálf-
ur höndum fyrir neðan stigann og Bastian bæjarfógeti er við öllu búinn.
Ræningjarnir þrír í fyrstu uppfærslu Kardimommubæjarins á islandi:
Ævar R. Kvaran, Baldvin Halldórsson, Bessi Bjarnason.
eins og endranær.
Soffia frænka við hreingerningar —
Kamilla litla og Tommi og asninn.