Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 61 Stríðsmaður spámannsins. Ofstækið er svar við umbyltingu tœknivæðingarinnar. Öf gar tækninnar Jólin eiga að vera hátíö ljóssins og barnanna og mannkærleikans. Prest- amir okkar reyna líka aö segja okkur aö þetta sé trúarhátíö, þó illa gangi aö koma því inn í íslendinga, enda trúir nær enginn okkar á tilvist afmælis- barnsins. Viö höfum allt annaö aö gera heldur en velta fyrir okkur svo óraunhæfum hlutum og heimspekileg- um viðfangsefnum. Litli bróöir þarf aö fá haröan pakka í jólagjöf og verslunardaman þarf að fá peninga fyrir pakkann. Verkefni bíða á skrifstofunni. Kannski maður þekki einhvern í Brodvei þessa helgina. Heims um ból, syngur barnakórinn í útvarpinu, helg eru jól. Þetta er auö- vitaö hin mesta þvæla. Jafnvel þeir sem segjast vera kristnir eru í miklum minnihluta í þessum heimi. Búdda- trúarmönnum gæti ekki staðiö meir á sama hvort við á Vesturlöndum höld- umjóleöaekki. Afturhaldssemi Hindúar eru búnir aö halda sína Djivali hátíö, svo þeirra jól eru búin. Afmæli Spámannsins er ekki 24. desember. En á meöan viö höldum okkar jól af álíka heilagleika og þegar við spilum vist er ekki úr vegi aö fylgjast með öðru auganu með uggvænlegri þróun úti í hinum stóra heimi. Ekki þaö aö hún geti nokkum tíma náö til stranda þessarar eyju. Viö erum sennilega svo rótgrónir jarðarhyggjumenn aö slíkt næraldrei hingaö. Þaö er nefnilega sami hluturinn sem er aö gerast í trúmálum á flestum stööum í heiminum. öfgar eru í mikilli sókn. Alls kyns afturhaldssemi lætur æ meir á sér kræla, hvort heldur er í kristinni trú, múhameöskri, gyðing- dómi eöa hindúisma. Nornabrennur 1 Bandarík junum eru menn famir aö veröa varir við uppátæki sem líkjast helst nomabrennum miöalda, nema nornimar eru bækur sem brennuvarg- ar telja óguölegar eða klámfengnar. Skiptir þá ekki meginmáli hvort um ódauðlegar bókmenntir er aö ræöa eöa ekki. Þykir mesta furöa aö þetta kristna og sómakæra fólk skuli ekki vera löngu búiö aö brenna heilaga ritn- ingu, enda sú bók ekki alls staðar siöa- vönd í frásögnum. I sama landi má finna menn sem trúa svo á bókstafinn og eigin reikn- ingslist aö þeir telja aö veröldin hafi oröiö til fyrir 10.000 árum, á samtals sex dögum plús einum hvíldardegi. Sumum þessara manna reiknast svo til aö endalok heimsins muni koma um þaö bil á morgun og hafa hreiðrað um sig í virkjum uppi í f jöllum meö M—16 vélbyssur til að gæta þess aö öskrandi lýðurinn geti ekki rænt þá ársbirgðum þeirra af grænum baunum og sveskj- um. Þeir vita sem er að Biblían lofar löngum og ströngum ragnarökum og þeir eru reiöubúnir aö leggja eitthvaö á sig nú til aö lifa betur af þær hörmungar. Og þetta er ekki eitthvað sem þeir halda. Þeir vita þetta. Þaö stendur í bókinni. Stríðsmenn Spámannsins A nokkurn veginn sama þróunarstigi eru stríðsmenn Spámannsins í vestan- verðri Asíu. Þeir gæta þess af brenn- andi áhuga aö böm Múhameðs geri að- eins þaö sem honum er þóknanlegt. Þó að þaö þýöi stundum aö bömin veröi að grýta til dauða þá er þaö þess virði, sálunum er þó kannski bjargað. Þessir stríösmenn leika sér ekki bara aö lífi annarra, það geta allir. Þeir eru reiöubúnir til að sprengja sjálfa sig í loft upp til að flýta fyrir himnaförinni. öfgamyndir Jafnvel tiltölulega friðsöm trúar- brögö, sem lítinn áhuga hafa á að út- breiða sig, eru farin aö taka á sig hinar ýmsu öfgamyndir. Sikkar í Indlandi láta drepa sig hundmöum saman fyrr en þeir leyfa að hof þeirra sé vanhelg- aö. I Israel má finna fyrir öldu trúarof- stækis. Imynd þess er Kahane rabbíni sem vill gera villutrúarmenn útlæga úr Jerúsalem. Þar í hópi hljóta aö vera taldir kristnir menn. Af öllum mönnum eru hindúar ólíklegastir til að láta svona nokkuö hafa áhrif á sig. Þó drepa þeir árlega nokkur hundruð mú- hameöstrúarmanna á Indlandi. öfga- trúarsamtök þeirra hafa aldrei verið sterkari. Guðlaus tækniöld Þaö sem mörgum finnst svo skrítiö er aö þetta skuli vera að gerast á þess- ari guölausu tækniöld sem viö eigum aö Ufa á. En sennUega Uggur svarið einmitt þar. Tækni er framþróun og framþróun er breytingar. Mörgum er í mestu nöp við breytingar og sumir eiga allt sitt undir stöönuninni og gamla tímanum. Marx og Hegel sáu heimssöguna sem sögu breytinga og umbyltinga. Bænda- samfélagiö varö aö iðnaðarsamfélagi og Frakkar geröu byltingar. Keisarinn reyndi aö gera Iran að Vesturlandaríki og Khómeini gerði byltingu. Ofstækiö er í raun viðbrögö viö eöa viönám gegn tæknivæðingunni þegar hún fer aö hafa óþægileg áhrif á líf manna. Hugsanlega bara viönám gegn breytingum sem sUkum. Breytingar setja visst rót á Uf manna. Daglegt Uf fer úr skorðum. Einfaldir menn þurfa aö f ara aö hugsa. Soldánar Kirkja — sama hvers kirkja þaö svo sem er — hefur alltaf byggst á íhalds- semi, að viðhalda því sem er. Þannig sagði Marx að trúin væri ópíum fólks- ins. Hann var ekkert sérstaklega aö tala um kristna trú. Hindúatrúin bygg- ist á því að raöa mönnum mjög vand- lega í stéttir. Kristin trú aöhylUst aö vísu bræðralag, en þegar Jesúítum þótti einn reglubróöir þeirra í Níkara- gúa ganga helst til langt í bræöralags- átt, þá spörkuðu þeir honum úr trúar- hópnum. Soldánar og ættbálkahöfö- ingjar stjórna í nafni Spámannsins. Sterkasti leiðtogi sikka er sá sem stjómar sjóöum musteranna. Breytingar ögra hagsmunum trúar- leiðtoganna. Þess vegna rísa þeir upp á afturlappimar gegn þeim, hvæsa og sýna vígtennumar. Síöan fer þaö bara eftir því hversu fólk er reiðubúið breytingunum hvort þaö fylgir þessum leiötogum eöa blæs á þá. I mörgum til- vikum fara hagsmunir íhaldsseminnar þægilega saman og aUir una glaöir viö sitt, einangraöir og hamingjusamir. Neikvæðni Einkenni þeirra öfga sem spretta úr þessum jarövegi er hve neikvæðar þær eru og hatursfuUar. Menn eru að berj- ast gegn einhverju, ekki fyrir ein- hverju. Khómeini er aö berjast gegn syndum Vesturveldanna, ekki fyrir einhverju öðru. Kahane er gegn mú- hameðstrúarmönnum, ekki stuönings- maður einhvers annars. Sikkar eru gegn hindúum og hindúar gegn sikk- um. Þannig hef ur þessi vísinda- og tækni- öld, öld uppljómunarinnar, einnig haft í för með sér meiri þröngsýni en áður ríkti. Upplýsingastreyminu fylg- ir einstrengingur. Víðsýninni fylgir bUndni. -ÞóG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.