Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Qupperneq 18
62 DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 Síðustu helgina í október gerðist það í Kjósinni aö íjúpnaskytta skaut lamb. I.ét skyttan lambið liggja, bóndann ekki vita og styrkti það trú manna á því að hér hefði verið skotið af ásetningi. Rj úpnaskyttan liefði sem sagt ekki veriö nærsýn. Ekki var gerð nein leit að rjúpnaskyttu þessari enda var hennar ekki saknað af neinum nema bóndanum sem átti lambið. Gafst hann þó fljótlega upp á því að ganga um tun sín því þar fann hann ekkert nema tómar patrónur. Líður vikan fram að næstu helgi. Gerist það þá í Alftanes- hreppi í Mýrasýslu að bóndi einn gengur fram á kú sína dauða. Haföi hún verið skotin i augaö af stuttu færi. I frétt DV segir svo: „Skepnan mun ekki liafa drepist strax því hún hafði sýnilega ráfaö um og verið lengi í dauða- teygjunum áður en hún féjl.” Þá er þess getið aö kýrin hafi veriö komin að því aö bera. Grunur féll strax á rjúpna- skyttuna í Kjósinni sem skotið haföi lamb á stuttu færi helgina áður. Voru menn nú á einu máli um að skyttan hiyti að vera nær- sýn. Eini gallinn var sá að varla gat veiðimaðurinn hafa verið á rjúpnaskyttiríi því. . . „Bóndinn fann dauða gæs, sem einnig var nýskotin, rétt hjá dauðu kúnni. Er talið að veiðiinaðurinn hafi skotið hana en síðan flúið af hóhni þegar hann uppgötvaði að hann liaföi einnig skotið kú í haganum,” eins og segir í frétt DV. Blaðið var farið að sýna málinu áliuga og lieimtaði að augnlæknar yröu sendir á áttavitanámskeiö veiði- inanna. Biðu bændur nú spenntir fram aö næstu helgi enda inátti eins búast viö að sá nærsýni skyti vinnukonur i staö snjótittlinga. Eða heimasætuna á hlaupum. Jafnvel traktorar voru hafðir íhúsum. En ekkert gerðist. Það var eins og rjúpnaskyttan væri orðin blind eöa uppiskroppa með hugmyndir oghögl. Þá fréttist af hreindýraskyttu frá Eskifirði sem hafði skotið 550 seli í Breiðafirði. Sú skytta var hvorki nærsýn né blind enda kölluð besta skyttan á Islandi. Sannkölluð leiguskytta; ekki þurfti annaö en taka upp símann og panta tíma, þá var skyttan mætt með vopnabúr sitt og skaut hvað sem var. Eða eins og sagði í DV-viðtali: ,,Þó skýt ég ekki fólk, hef reyndar aldrei verið beðinn um það,” segir leiguskyttan sem lagt hefur 400 hreindýr að velli, LOKI Skýtur hann iíka ref fyrir rass? LOKI Útvagið aug nlœkni á átta- vrtanámskei 9inl ótalda svartbaka í æðarvarpinu í Breiðafirði svo ekki sé minnst á smáfuglana sem hann skýtur fyrir Náttúrufræðistofnunina. „Eg skýt þá með örlitlum höglum til að eyðileggja þá ekki alveg. Höglin fara í gegnum þá en sjást varla því þau eru á stærð viö nálarstungur.” Skyttan á Eskifirði er ekki nær- sýn og hefur því ekki verið að verki í Kjósinni og Álftaneshreppi þar sem litla lambið og kálffulla beljan féllu ómaklega fyrir sjón- döprum veiðimanni. Málið er í rannsókn. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.