Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Page 36
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 80 Selaskyttumar frá Bakkagerði veiddu óvænt þýska njósnara [GRJOT iFJALL** NJARÐVIK UIMAOSj Mœil % 1 V \ Bvrda. DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 Skipalest, stödd á Hvalfirði, á leið til Múrmansk. Talið er að njósn- ararnir hafi átt að fylgjast með skipalestum fara frá Seyðisfirði. 81 Dwight P. Miller yfirforingi, staddur í Njarðvik. Ljósmynd: Ásta Pétursdóttir. Þessa mynd stalst tvitug heima- sæta á bænum Njarðvík til að taka af föngunum. Myndina tók hún út um eldhúsgluggann. Hún sýnir Miller yfirforingja standa yfir föngunum við kirkjugarðs- vegginn. Miller hélt á tveimur skammbyssum. Ljósmynd: Ásta Pétursdóttir. Kort af svæðinu milli Héraðsflóa og Borgarfjarðar eystri. Selvogsnesið, þar sem kafbáturinn setti njósnarana í land, er efst fyrir miðju. um gáfu þeir því gætur hvort þeir sæju nokkurt skýli eöa farangur hjá vogsbúum en gátu ekki komiö auga á neitt, utan einn tóman kassa er flaut viöklappirnarsunnan vogsins. Frásögn bræðranna ekki trúað Þeim bræörum var fyrst á orði, er þeir tóku tal saman, aö þarna mundu vera niöurkomnir mennirnir, sem sagt var aö vantaö heföi af norska skipinu, sem kom snemma í aprílmánuði viö Langanes og Raufarhöfn. Va'r fullyrt aö fleiri mundu hafa veriö meö þeim en voru á því á norðurhöfnunum. Haföi sýslumaöur falið hreppstjóra að brýna það fyrir hreppsbúum að segja til þess ef þeir yröu varir viö grunsamlega menn og bæru ábyrgö á því ef þeir leyndu því. Þóttust þeir bræöur vera svo sannfærðir um þetta að er þeir náðu tali af félögum sínum á hinum bátnum sögðu þeir þeim aö þarna inni í vognum væru mennimir, sem grennslast var eftir á dögunum. En enginn þeirra haföi séö neitt til mannanna á Selvognum og trúöu þessu ekki. Klukkan liölega sex var komið til Bakkageröis og barst þetta þá enn í tal meðal sjómannanna meöan veriö var aö setja upp bátana. En þaö fór á sömu leið. Menn áttu erfitt meö aö trúa þessu, þótt trúveröugir menn væru til frásagnar, og þeir sem á bátnum voru heföu séö slóðirnar á Selvogsnesinu. Saga þessi flaug sem eldur í sinu um þorpiö og barst til eyrna Eyjólfs Hannessonar hrepp- stjóra, sem fór óöar í bili aö grennslast eftir þessu viö Björn. Varð hann fljótt sannfærður um aö hér væri um grunsamlega menn aö ræöa. Náöi hann tali af sýslumanni, meö hraðsamtali, nokkru eftir símatíma klukkan sjö um kvöldið og tilkynnti honum þetta. Síöar um kvöldiö skýröi hreppstjóri frá því aö setuliðið á Seyðisfirði væri búiö aö fá vitneskju um fund mannanna á Selvognum og skip væri komið á leiðina frá því til Borgarfjaröar meö hermönnum, sem vildu fá tvo menn þar til leiðsagnar noröur á Selvog. Herflokkur með alvæpni kemur í Borgarfjörð Um klukkan ellefu kom fallbyssubátur inn á Borgarfjörö og lagðist á höfnina. Réri hrepp- stjóri út og þeir Þóröur og Bjöm meö honum en mættu á leiðinni bát, sem kom frá herskipinu og var þá snúiö viö í land. Á skipsbátnum voru tveir foringjar úr ameríska hernum og fjórir liðsmenn alvopnaö- ir. Foringjarnir báöu um nánari upplýsingar viövíkjandi mönnum þeim sem fundist höföu og vildu fá leigöan vélbát meö sig upp eftir. En meö því aö y firforinginn var ekki vel góöur aö skilja íslensku, en Þóröur haföi lært nokkuð í ensku, varö hann aöallega fyrir svöram. Spuröi foringinn hann margs um menn þessa en þó sér- staklega hvaö mikil vopn þeir hafi séö hjá þeim og hvort þeir héldu aö menn þessir væru Eng- lendingar eöa Þjóöverjar. Þóröur kvaöst álíta aö þeir væru ekki Englendingar. En tveir af mönnum þessum gætu verið Norðurlandabúar, Danir eða Norðmenn, eöa jafnvel Islendingar, sem dvalið heföu erlendis. Vopn heföu þeir engin séö, aðeins einn tóman trékassa á floti. Var þá aö heyra sem foringinn vildi slá þessu á dreif og halda því fram aö hér gæti ekki verið um neina njósnarmenn aö ræöa, heldur væru þetta íslenskir ferðamenn. En Þóröur hélt fast við sinn keip aö þetta hlytu að vera grunsam- legir menn. Þegar foringinn virtist vera oröinn sannfærö- ur af framburði Þóröar lagði hann fast aö hon- um aö koma meö sér og lét Þóröur tilleiöast, þó aö honum væri þaö óljúft, þar sem hann hafði verið á ferðalagi allan daginn. Þaö réöist af, aö Björgvin Vilhjálmsson í Bakkagerði flytti hermennina upp yfir á sínum bát og færi Þórður meö þeim, sem leiðsögumað- ur, en herskipið biði á Borgarfirði á meöan. Leitin hefst laust eftir miðnætti Því næst var lagt af staö, laust eftir miðnætti og var þá orðið mjög skuggsýnt til landsins þar sem klappir voru auðar fram meö sjónum. Foringinn var af og til aö spy rja Þórö um menn- ina á Selvognum og útbúnaö þeirra, annars voru litlar samræður á bátnum. Þegar komið var aö Brimnesi noröan Njarö- víkur sagöi Þóröur foringjanum aö er þeir kæmu fyrir næsta nes, sem Kögur heitir, sæju Selvogsbúar þá, ef þeir héldu kyrru fyrir og væru varir um sig. Væri því ráðlegra aö stefna dýpra og koma noröan að þeim, því væru þessir menn vopnaðir væri hægöarleikur fyrir þá aö skjóta bátinn niður. En foringinn virtist ekki fara í neinu eftir ráöleggingum hans. Þegar komiö var aö Kögri sá Þóröur grilla í eitthvað á floti, rétt viö boröstokkinn og haföi orð á því. Var það tómi kassinn, kominn þangað, sem áöur var um getið. Foringinn skipaði að snúa við og taka hann upp í bátinn. Var hann rannsakaður viö vasaljós en engir stafir eöa merki sáust á honum. En síðar, er einn af hermönnunum var að athuga kassann, spuröi Þórður hvort naglarnir í honum mundu vera amerískir. Neitaði hann því en þeir gætu fremur veriöþýskir. Var svo, þrátt fyrir aövörun Þóröar, haldið beint inn á Selvoginn og rennt yst aö klöppinni. Þegar báturinn nam staöar spuröi foringinn Þórö hvort hann kæmi meö. En hann kvaöst veröa eftir meö félaga sínum og gæta bátsins. Enda taldi hann þá leiðsögn sinni lokiö. Hermennirnir fóru þegar á land og gengu hvat- lega um klappirnar og lýstu fyrir sér meö vasa- ljósum. Fundu þeir brátt mannaslóðir í snjónum er lágu fram og aftur og sumar margtroönar, tók þá heldur aö lifna yfir foringjanum. Beint upp af vognum fundu þeir hellisskúta, á aðgiska þrjá faðma á breidd og góöa tvo faöma á lengd, inn í bergið og var vel manngengt fremst í hon- um. Auðséð að menn höfðu hafst við í hellinum 1 hellismunnanum var hár steinn, er sprungiö haföi úr berginu fyrir ofan, sem nálega byrgöi fyrir hellisopið, svo að naumast sást inn í þaö aö utan. Var sjáanlegt að menn hefðu hafst þar við nýlega. Á gólfinu var þykkt lag af lyngi og bæli í því eftir menn. Sást að þeir höföu notað vaxkerti sér til lýsingar, því aö vax haföi dropið niður á lyngiö á stöku staö. Hermennirnir höföu þar aðeins stutta viöstöðu en hröðuöu sér upp á bakka eftir slóö, sem þeir fundu þar. Borgfirðingamir ræddu þá sín á milli hvaö óvarlegt væri aö skilja þá eina eftir við bátinn. Því mennirnir gætu leynst eftir í vognum, þrátt fyrir þessa leit, og komið og átt allskostar við þá. Þórður fór því á eftir hermönnunum og náöi tali af yfirforingjanum og sýndi honum fram á að fleiri væru fylgsni í vognum en þeir heföu rannsakaö, sem mennirnir gætu leynst í. Kæmu þeir að Islendingunum vopnlausum gætu þeir gert þaö sem þeim sýndist og jafnvel náö bátn- um á sitt vald. Bauð þá foringinn einum her- mannanna að f ara niður eftir til þeirra. Foringjarnir héldu svo áfram upp eftir slóð- inni, er lá upp í djúpt klettagil og þaöan upp eftir brattri fjallshlíöinni og voru hermennirnir í humátt á eftir þeim. Þórður fylgdi þeim eftir upp í gilið og beið þar eins hermannsins, er dregist haföi aftur úr. Var Þóröur á báöum átt- um, hvaö hann ætti að gera. Hann var illa lagað- ur til gangs á þungum og háum sjóstígvélum en hátt og bratt upp fannirnar. Er hermaöurinn nálgaöist hann tók Þóröur eftir slóö, eins og eftir skíöi, en viö nánari athug- un sáu þeir að hún var eftir sleða. Hermaöurinn hélt svo áfram eftir sleðaslóöinni en Þóröur snéri viö niður í hellisskútann. Höföust þeir þar viö og rannsökuöu hann til hlítar en fundu ekk- ert þar utan bréfmiða meö gotneskum stöfum, sem þeim tókst ekki aö fá neitt orö út úr. Skotið af rifflum Eftir klukkustundar biö kom hermaðurinn aftur sem Þóröur átti tal síðast viö og kvaöst ekki hafa náö í hina. Biöu þeir svo þarna f jórir í hellinum þaö sem eftir var nætur. Höföu hermennirnir og Borgfiröingarnir sér þaö til skemmtunar aö skjóta til marks meö rifflunum. Og mátti vart á milli s já hvorir voru hæfnari. Klukkan um fimm um morguninn komu báöir hinir hermennirnir slæptir og uppgefnir til baka. Kváöu þeir foringjana hafa sagst ætla alla leiö til Egilsstaða að leita mannanna en hinir ættu allir aö fara til baka á bátnum og Borg- firðingarnir að flytja þá um borð í herskipið. Tóku þeir sér síðan snæðing áöur en þeir lögöu af staö. Þaö er af foringjunum aö segja aö þeir héldu áfram eftir sleðaslóöinni upp Sveif og yfir fjalliö, niöur í Göngudal, utan Gönguskarös og þaðan niður í Njarövík, innan til viö Göngudal- inn. Þegar þeir komu í svonefndar Grjótbrekk- ur, neöarlega í Grjótfjalli, uröu fyrir þeim þrír menn, sem sátu þar viö farangur, er lá á gil- barmi. „Heil, Hitler" og upp með hendur Foringjamir heilsuöu þeim með Hitlers- Kafbátur setti þýska njósnaleiðangurinn á land. kveðju. En hinir tóku ekki undir hana. Hleypti þá yfirforinginn skoti af skammbyssu sinni upp í loftiö og skipaöi þeim að koma með sér. Réttu hinir þá upp hendumar og fóru með þeim Umyröalaust. Um klukkan sjö um morguninn var bariö aö dyrum í Njarðvík áöur en fólk reis úr rekkjum. Þau hjónin Pétur Pétursson póstur og Guðrún Jónsdóttir flýttu sér á fætur og var búiö aö ber ja í annað sinn áöur en upp var lokið. Var þar kom- inn ameríski yfirforinginn meö skammbyssu í hendi og vildi ná til Borgarfjarðar í síma. Var hann blautur mjög úr snjónum og móður af göngu.” Ásta Pétursdóttir heitir dóttir hjónanna í Njarðvík. Þegar þetta gerðist var hún heima- sæta á bænum, tvítug að aldri. Hún býr nú á Egilsstöðum. DV spjallaði viö Ástu um atburðina fyrir 40 árum. ,3g var vakin að morgni dags, um klukkan hálfsjö. Fyrir utan stóö amerískur liösforingi, Miller aö nafni,” sagði Ásta. „Meö honum var einn hermaður. Þeir höfðu þrjá fanga. Hermaöurinn stóð yfir föngunum og miðaði á þá vopni. Miller baö um aö fá að hringja. Símatími byrjaöi ekki fyrr en klukkan níu og ætlaöi hann aldrei að geta náö sambandi viðSeyðisfjörö.” Staðið yfir þeim með skammbyssu „Eg man aö ég vorkenndi þessum mönnum, sem voru fangar. Eg hafði samúö með þeim. Það var staðiö yfir þeim meö skammbyssu og miðað á þá við kirkjugarðsvegginn. Þeir voru reknir áfram eins og hundar. Okkur fannst þeir ekki vera hættulegir. En viö máttum ekki einu sinni veita þessum mönnum hressingu. Þeir voru blautir og slæptir eftir erfiða og langa göngu yfir fjall. Okkur fannst þeir ekki vera neinir glæpamenn. Mamma mín var náttúrlega búin að bjóða Miller upp á hressingu. En þegar mömmu var bannaö að gefa föngunum sagði hún aö ef þeir fengju ekki hressingu fengju hinir ekkert heldur. Hún vildi ekki gera upp á milli þeirra. Þeir væru líka menn. Foringinn fór þá aö hugsa sig um en ákvaö síðan að fangarnir mættu líka fá. Hjalti bróðir fór út meö kaffi á bakka og mjólk og brauð en fékk ekki aö færa þeim sjálfur,”sagðiÁsta. Hún átti myndavél en Miller bannaöi henni aö taka mynd af föngunum. Engu aö síður laumaö- ist hún til aö taka mynd af þeim út um eldhús- gluggann. Myndin sýnir hvar Miller stendur y fir föngunum viö kirkjugarðsvegginn meöan beöiö ereftirkaffinu. „Myndin hvarf síðar úr minni vörslu. Þaö þótti mér undarlegt. En sem betur fer hafði hún áður birst í Gerpi,” sagöi Ásta. Herskip kemur inn á Njarðvík Miller foringi náöi um síðir sambandi viö Seyðisfjörð. Var komiö boðum til herskipsins um aö foringjarnir væru í Njarðvík með fanga. Kom herskipið inn til Njarðvíkur fyrir hádegi og tók fangana og hermennina. „Nú er þessum leik lokiö,” varö einum fang- anna aö oröi þegar veriö var aö flytja þá um borö í herskipið. Þaö var annar yngri mannanna sem sagöi þetta. Hann talaöi íslensku. Viö vitnum í grein séra Vigfúsar: „Um leið og fyrirliði fanganna átti aö fara um borð í herskipið steig hann upp á þóftu í bátnum og var sem hann léti sig falla aftur á bak í sjó- inn. En áöur og meðan hann var að falla veitti Helgi Jónsson því eftirtekt aö hann var aö hag- ræða einhverju í buxnavasa sínum er datt í sjó- inn. Náöi Helgi í veskiö er flaut upp meö bátnum og tók yfirforinginn viö því. Föngunum var nú komiö upp á herskipið og þeir látnir standa þar í röö aftur á. Sáu Borgfiröingarnir yfirforingjann ganga aö þeim og veifa veskinu ögrandi framan í fyrirliöa fanganna og stinga því svo niður. Vélbyssa finnst Aö þessu loknu bað foringinn Borgfiröingana aö draga fyrir sig bát í land. Væru á honum sex til átta menn frá herskipinu. Fóru sex þeirra rakleitt inn í Grjótbrekkur, eftir slóö foringj- anna, og komu von bráöar berandi alls konar farangur, ýmist í kössum, pokum eöa pökkum, og voru fluttir um borð meö það. Undruðust foringjarnir hve mikinn flutning fangarnir gátu flutt meö sér á jafn skömmum tíma, í annarri eins ófærö og jafn langa og erfiöa leið. Var sagt að í farangri þeirra hafi veriö alls konar tæki og þar á meðal sundurskrúfuö vélbyssa. En mat- væli hafi veriö lítil sem engin. Að skilnaði þökkuöu foringjarnir Borg- firöingunum mjög alúölega fyrir góöa fylgd og alla aöstoö þeirra; greiddu þeim svo hæfileg tímalaun, eins og upp var sett. Héldu svo hvorir sína leiö. Um fangana er þaö vitað aö aöeins fyrirliöi þeirra var Þjóðverji. Hinir tveir voru Islend- ingar. Jafnskjótt og komið var meö þá til Seyðis- fjarðar var sent skip með þá til Reykjavíkur til yfirheyrslu. Þaðan munu þeir hafa verið sendir til Englands í fangabúðir. En ameríski yfir- foringinn var óöar hækkaöur í tign fyrir afrek sitt. ” „Hjalti bróöir minn fór af staö daginn eftir inn í víkina. Þá fann hann sleðaræfil meö sendi- stöð,” sagöi Ásta Pétursdóttir í samtali viö DV. Um þessa för segir séra Vigf ús: „Daginn eftir töku fanganna fann maöur úr Njarðvík sleðagrindina undan farangri þeirra, enn lengra innar í slóöinni en foringjarnir höföu komist. Var grindin slegin saman úr kassa- fjölum meö drögum undir úr blikkdósum. Á henni var innpakkaður kassi á borö viö stóra ferðatösku meö járngrind, sem stíga mátti sem hjólhest. Var þaö rafall, sem framleiddi ótrúlega orku. Geröi setuliðið út bát frá Seyðis- firöi til aö ssricja hann til Njarövikur. Síðar um vorið kom enn skip frá setuliðinu og geröi leit á Selvognum, aö líkindum eftir tilvísun fanganna. Fannst þá sendistöö í klettaskúta skammt frá hellinum, svo og tilluktir blikkdúnk- ar meö fatnaði, munaöarvöru og allskonar áhöldum. Var þaö allt grafiö niöur i mölina og steinar lagðir ofan á. Er grunur margra að enn haf i ekki f undist allt þaö sem þar var fólgið. Kafbátur setti njósnarana í land Sagt er aö fangarnir hafi skýrt setuliðinu svo frá aö þeir hafi verið settir upp á Selvoginn af kafbáti og er þaö mjög sennilegt. Því Selvogur- inn mun vera eini staöurinn á langri strandlínu, sem fært er aö setja menn leynilega á land frá skipi vegna aðdýpis. Þá munu og hellisskjólið og útsýnið til skipaferða óvíöa vera betra. Sýnir þetta allt hvað víötækar og nákvæmar njósnir Þjóöverja hafa verið hér á landi.” I lok greinar sinnar segir séra Vigf ús Ingvar: „Fáum dögum eftir töku fanganna sást þýsk flugvél á sveimi yfir Njarðvíkurf jöllunum, eins og hún væri aöleita aðeinhverju. Því sumstaöar flaug hún svo lágt aö undrun sætti, svo sem inn- an til í Njarðvíkinni. En aö því búnu hélt hún inn og suöur yfir f jallgarðinn milli Borgarf jarð- ar og Héraðs, uns hún hvarf alfarið sjónum manna.” „Það var álitið að mennirnir hefðu verið þarna á Selvogsnesinu í hálfan mánuö til þrjár' vikur. Það var álitiö aö kafbátur heföi skotiö þeim þarna upp,” sagöi Ásta Pétursdóttir. „Þaö var farið meö þá alla út til Bretlands, Islendingana líka. Þar voru þeir haföir í haldi en ekki lengi. Þeir báru því allir viö, Þjóðverjinn líka, aö þeir heföu aldrei ætlað að njósna heldur bara gert þetta til að sleppa frá Þýskalandi, komast í burtu. Þeir höfðu senditæki og vistir til langs tíma. Þeir áttu aö njósna um skipaferöir frá Seyðis- firði og sjálfsagt flugvélar á ferli,” sagöi Ásta. Til að njósna um skipalestir Hjálmar Vilhjálmsson segir í bók sinni: „Þó ekki hafi fariö orö af öörum slíkum leiö- angrum Þjóðverja viö Austurland en hér hefur veriö getið um, má alveg gera ráö fyrir því að þeir hafi gert út fleiri leiöangra. Njósnir af þessu tagi gátu verið þeim afar mikilvægar. Þar kom fieira til en aö afla upplýsinga um veður- far. Þess er áöur getib aö herflutningaskipum hafi oft veriö safnaö saman á Seyöisfiröi áður en slíkar skipalestir lögðu á haf út á leiö sinni til Rússlands. Njósnastöðvar eins og sú, sem hér var greint frá, gátu fylgst meö skipalestunum þegar þær lögðu af staö frá Seyðisfirði og til- kynnt þýskum kafbátum um ferðir þeirra. Ýmsir staðir i óbyggðum víkum, sem eru milli Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar, gátu vissulega verið eins hagstæöir fyrir leiöangra Þjóðverja eins og uröin fyrir ofan Selvoginn. Bæöi þar og annarsstaöar kunna Þjóðverjar aö hafa haft menn, áður en fangarnir voru teknir, um lengri eða skemmri tíma, þó ekki f ari sögur af því. ” Af njósnurunum þremur er það að segja að þeir voru ekki haföir lengi í haldi í Bretlandi. Þeir settust allir aö á Islandi, Þjóöverjinn líka. Að sögn Ástu Pétursdóttur gerðist Þjóðverjinn vinnumaöur í Mosfellssveit. Islendingamir ungu hétu Sigurður og Hjalti. Þeir eru nú báöir látnir, annar þeirra nýlega. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.