Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1985, Page 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS1985.
Andlát
Davið Ö. Grimsson húsgagnasmiöa-
meistari lést 16. mars sl. Hann var
fæddur á Langeyramesi í Dalasýslu
12. apríl 1904. Foreldrar hans voru
hjónin Jóhanna Kristjana Jóhannes-
dóttir og Grímur Þorláksson. Hann
kvæntist Sigríði Geirlaugu Kristins-
dóttur og eignuðust þau hjónin sex
böm. Utför Davíðs verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Karl B. Björnsson lést 17. mars sl.
Hann fæddist 12. september 1889 að
Stuðlum viö Norðfjörð, sonur hjónanna
Bjöms Þorleifssonar og Bjargar Mar-
teinsdóttur. Karl kvæntist Lilju
Einarsdóttur, hún lést árið 1980. Þeim
hjónunum varð átta barna auðið. Tvö
þeirra létust í frumbemsku. UtfórKarl-
var gerð frá Fossvogskirkju í morgun
kl. 10.30.
Sigríður Ámadóttir Steffensen lést í
gærmorgun í Borgarspítalanum.
Rannveig V. Guðmundsdóttir, Laufás-
vegi, andaðist föstudaginn 22. mars sl.
Utförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 29. mars kl. 10.30 f .h.
Viggó E. Gíslason vélstjóri, Mávahlíð
24, lést 21. mars á heimili sínu, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 29. mars kl. 13.30.
Anna Konráösdóttir kennarí, Víðimel
23, veröur jarösungin miövikudaginn
27. mars kl. 15 frá Fossvogskirkju.
Inga K. Þorsteinsdóttlr, Nýbýlavegi 58
Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópa-
vogskirkju 27. marskl. 15.
Guðlaug Andrésdótttr frá KerBngardal
verður jarösungin frá Fossvogskapeilu
miövikudaginn 27. mars kl. 10.30.
Júlfus Jónsson lést 18. mars. Utfórin
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 28. mars kl. 13.30.
Fjóla Eyfjörð Gunnarsdóttir, lést í
Bamaspítala Hringsins 19. mars. Jarð-
arförin fer fram frá Langholtskirkju
28. mars kl. 13.30.
Hans Olaf Hansen, Skovgárd,
Fredensborg, Danmörku, lést þann 19.
mars. Jarðarförinhefurfariöfram.
Hinrik Jón Guðmundsson trésmiða-
meistari, Bugðulæk 14 Reykjavik, lést
i Stokkhólmi laugardaginn 23. mars sl.
Jaröarförin ákveðin síðar.
Július Amason frá Kolbeinsvík á
Ströndum, Brekkustíg 14 Sandgerði,
andaðist aðfaranótt 24. mars á Grens-
ásdeild Borgarspítalans.
Jón Þorsteinsson iþróttakennari and-
aðist 24. þ.m.
Jóhanna Margrét Jónsdóttlr, Hring-
braut 107, andaðist föstudaginn 22.
mars siöastliðin. Jarðarförin verður
auglýst síöar.
Laufey Hermannsdóttir, Krummahól-
um 6, andaðist aö heimili sinu þann 23.
mars.
íslenskur lœknir dósent
viö Læknadeild Háskólans
í Lundi i Svíþjóð
Dr. med. Einari Olafi Ambjömssyni lækni
hefur verið veitt dósentstaða f sérgrein sinni,
almennum skurðlækningum og bamaskurð-
lækningum, við Háskólann í Lundi i Sviþjóö.
Staða þessi veitist fyrir hæfni í starfi,
rannsóknarstörf, kennslu og stjómun. Hann
er fyrsti Islendingurinn sem veitist slfk staða
í þessari sérgrein erlendis.
Einar starfar sem deildarlæknir við bama-
skurðdeild háskólasjúkrahússins i Lundi og
stundar jafnframt þvi kennslu- og vísinda-
störf.
Eiginkona Einars er phil. cand. Runa
Kerstin Ambjömsson deildarforstjóri, og
böm þeirra em þeir Sven Arabjöm og Einar
Mikael Einarssynir.
Jasstónleikar All Stars
í Nausti
Sá einstæði viðburður fyrir jassunnendur, að
samankomnir verða allir bestu jassleikarar
landsins og taka sveifluna ásamt bresku jass-
söngkonunni Beryl Bryden sem kölluð hefur
verið „drottning bluesins” verður í Naustinu i
kvöld, þriðjudagskvöld 26. mars og mið-
vikudagskvöldið 27. mars. Sveiflan byrjar
kl. 21.00 og stendur til kl. 03.00 bæði kvöidin.
Beryl Bryden hefur meðal annars sungið með
þekktum stjömum eins og Louis Armstrong
og Lionel Hampton og fleiri.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á hluta í Garðastræti 6, þingi. eign Snorra hf., fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn
28. mars 1985 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á hluta i Rauðarárstfg 5, þingl. eign Stefáns Jökuls-
sonar og Sigurbjargar Sverrisdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunn-
ar i Reykjavík, Helga V. Jónssonar hrl., Ólafs Gústafssonar hdl. og
Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. mars 1985
kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101 og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta í Frakkastig 12A, þingl. eign Arnars Sveinssonar, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudagínn
28. mars 1985 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
BRÆÐUR
Fyrsti varamaöur af lista Sjálf-
stæöisÐokksins i Noröurlandskjör-
dæmi vestra, Páll Dagbjartsson, tók
sæti á Aiþingi í fyrsta sinn í gær. Páll
er skólastjóri grunnskólans í Varma-
hlíð í Skagafirði. Áöur en hann flutt-
ist noröur í Skagafjörö var hann
kennari í Vighólaskóla í Kópavogi.
Aöspuröur sagöist Páll ætla aö
flytja mál á Alþingi er varðar skóla-
skyldu grunnskónanema. Telur hann
aö skólaskyldu eigi aö ljúka eftir
nám í 7. bekk. Mun hann leggja til aö
aö skólaskyldunni lokinni krani til
miöskóli og sérstakar námsbrautir.
Nánari útfærslu á hugmyndum
nýja þingmannsins, Páls Dagbjarts-
sonar, leggur hann fram á þingi á
næstunni. Páll er bróöir Björns Dag-
bjartssonar annars þingmanns,
Sjálfstæðisflokksins í Noröuriands-
k jördæmi eystra. -ÞG
Bræðumir og þingmennirnir Björn
Dagbjartsson og Páll Dagbjartsson:
annar í efri deild og hlnn í neðri, ann-
ar úr vestra og hinn úr eystra kjör-
dæmi Norðurlands.
DV-mynd S.
A
ÞING
Uppákoma í
Austurstræti
1 tilefni af 66 ára afmæli Póstmannafélags
Islands hyggst „Bréfberaleikhúsið Dúfan”
vera með smáuppákomu í Austurstræti
þriðjudaginn 26. mars kl. 15.
St. Jósefsspítali,
Landakoti,
fær lungnaspeglunartæki
Rebekkustúkan nr. 1 „Bergþóra” I.O.O.F. af-
henti 28. febrúar St. Jósefsspítala, Landakoti,
lungnaspeglunartæki í tilefni 55 ára stofnaf-
mælis stúkunnar.
Systrasjóður fjármagnar þessa góöu gjöf. 1
honum starfa 14 stúkusystur og vinna þær
ýmiskonar handavinnu sem þær síðan selja
innan reglunnar.
Lungnaspeglunartækið er mjög þýðingar-
mikið við greiningu ýmissa lungnasjúkdóma
og mun auk þess koma að góðum notum við
meðferð sumra þeirra.
Þakkar stjóm spítalans af alhug
höfðinglega gjöf.
Myndin er tekin er Jónina Ingólfsdóttír
yfirmeistari afhenti Loga Guðbrandssyni
framkvæmdarstjóra lungnaspeglunartækið.
Áætlun Akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30*
Kl. 11.30
Kl. 14.30
Kl. 17.30
Kvöldferðir 20.30 og 22.00.
A sunnudögum í apríl, maí, september og
október.
A föstudögum og sunnudögum í júní, júlí og
ágúst.
* Þessar ferðir falla niður á sunnudögum
mánuðina nóvember, desember, janúar og
febrúar.
Fyrirlestur i vínfræðum,
vínsmökkun
Jean Rabourdin vínfræðingur, prófessor við
vinakademíuna í París, flytur fyrirlestur á
ensku um Bordeaux-víntegundir og vin-
smökkunartækni í veislusalnum Þingholti,
Hótel Holti, Bergstaðastræti 37,
miðvikudaginn 27. og fimmtudaginn 28. mars
kl. 16. Betra er að taka frá miða í Franska
bókasafninu í síma 23870 milli kl. 17 og 19.
Frá Reykjavík
Kl. 10.00*
Kl. 13.00
Kl. 26.00
Kl. 19.00
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Bjark-
arási við Stjömugróf laugardaginn 30. mars
nk. kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar.
Stjómin.
Eiðfaxi,
3. tbL 1985, er kominn út. Þar er að finna
margar góðar greinar um hesta og hesta-
mennsku. Farið er í yfirreið um Amesþing og
staldrað við á nokkrum bæjum, Bjöm Stein-
bjömsson dýralæknanemi skrifar um jám-
ingar, knúið er dyra hjá Jóni í Varmadal,
síðari hluti umfjöUunar um Skagfirðinga er
þar að finna svo og umfjöUun um fjórðungs-
mót sem f yrirhugað er að halda á VíðivöUum i
sumar. Islenskir hestar í Ameríku eru kynntir
og fylgst er með tammningamannaprófi í
Þorlákshöfn. Einnig em þar nokkrar smærri
greinar.
Draugasónatan
LeikUstarfélag Menntaskólans við Sund sýnir
Draugasónötuna eftir August Strindberg
þriðjudaginn 26.3 kl. 20.30,
miðvikudaginn27.3. kl. 20.30,
fimmtudaginn 28.3 kl. 20.30.
Leikstjóri er HUn Agnarsdóttir. Leikritið
hefur hlotið góðar undirtektir sem frækilegur
sigur ungs áhugafólks.
Minningarspjöld
Minningarkort Félags
velunnara Borgarspítalans
fást í upplýsmgadeild í anddyri spítalans.
Einnig eru kortin afgreidd i síma 81200.
„Frelsa heiminn og ráða KRON”
— Flokki mannsins mistekst að ná völdum
í Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis
„Ef menn viija frelsa heiminn veröa
þeir í þaö minnsta að ráða KRON,”
sagöi Þröstur Olafsson, formaður
stjórnar KRON, í morgun.
I gæricvöldi geröi Flokkur mannsins
tilraun til að ná meirihluta i
Breiöholtsdeild Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis en án árangurs.
„Flokkur mannsins fór heldur
umhliöa í þessum kosningum. Þó voru
þeir búnir að smala mjög á fundinn og
ganga i hús í Breiðholtinu í heila viku.
Leikar fóru svo þannig aö þeir töpuðu,
87—13. Þeir hafa reynt þetta áöur
annars staðar en alltaf fer þaö eins.
Viö eigum von á þeim á KRON-fund í
Kópavogiíkvöld.”
-EIR.
Tapað -fundið
Snúður er týndur
úr Kópavogi
Hefur einhver séð þennan hvíta og gæfa fress-
kött? Hann á að vera með hvíta ól með
perlum. Vinsamlegast látið vita í sima 44736.
Páfagaukur týndist
í Breiðholti
Grænn páfagaukur týndist frá Melseli sunnu-
daginn 24. mars. Finnandi vinsamlegast
hringiísima 78502.
Lyklar fundust
Lyklar fundust á hring, þrír saman, á bíla-
stæði við Landspítalann 22. mars, um kL
15.00. Upplýsingar gefur Friðgeira Benedikts-
dóttir í síma 71502.
Grá papparúlla tapaðist
Sl. sumar tapaðist grá papparúlla með vinnu-
teikningum, líklegast á Gunnarsbraut. Finn-
andi vinsamlega hafi samband við Dagbók
DV. Fundarlaun.
Kannski fæ ég eitthvað annað og
meira spennandi að gera á næst-
unni því forstjórinn hrósaði mér
fyrir hugmyndaflugið hvað varðar
stafsetninguna mína.