Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1985, Síða 17
DV. LAUGARDAGUR13. APRIL1985.
17
Hugsanlega geta spenna og ótök einhvers staflar i þriðja heiminum, sórstaklega í Miðausturlöndum, haft
í för mefl sér stigmagnandi átök og jafnvel kjarnorkustyrjöld.
úr spennu í samskiptum risaveld-
anna og minnka hættuna á ger-
eyðingarstyrjöld? Þeir Chomsky,
Steele og Gittings leggja áherslu á
þaö í þessu sambandi að þau ríki
heims sem nákomin séu risaveld-
unum reyni að taka sjálfstæðari
afstöðu gagnvart þeim en gert hafi
verið hingað til. Brýnt sé að brjóta
upp þær öflugu hemaöarblokkir,
Atlantshafsbandalagiö og Varsjár-
bandalagið, sem Bandaríkin og
Sovétríkin noti til að viðhalda
áhrif um sínum og yfirdrottnun. Bret-
arnir Jonathan Steele og John
Gittings beina sjónum sinum einkum
að föðurlandinu og hvetja til þess að
bresk stjórnvöld hverfi frá þeim
undirlægjuhætti sem einkennt hafi
samskipti þeirra við Bandaríkja-
menn. Þeir félagar segja að aðild
Bretlands aö Atlantshafsbandalag-
inu sé engin heilög kýr; sífellt eigi að
vega og meta kosti og galla
hemaðarsamvinnunnar við Banda-
ríkin og taka afstöðu í samræmi við
þaö. Bresk stjómvöld eigi til dæmis
að beita sér gegn þeirri þarflausu út-
þenslu Atlantshafsbandalagsins sem
Bandaríkjamenn beiti sér nú fyrir og
styðja dyggilega hugmyndir um
kjarnorkuvopnalaus svæði Norður-
Evrópu, í stað þess aö láta sífellt
stjómast af ótta við að styggja
Bandaríkjamenn.
Hlutverk
friöarhreyfingar
Jafnframt er lögð áhersla á gildi
fjöldahreyfinga í friðarbaráttunni;
slíkar hreyfingar hafi aldrei verið
mikilvægari en nú þegar hættan á
árekstrum stórveldanna fari sífellt
vaxandi. Mikilvægt sé að almenn-
ingur í hinum ýmsu löndum láti ekki
blekkjast af kaldastríðsáróðri
stjórnvalda heldur reyni að sjá í
gegnum þá blekkingarvefi sem
spunnir séu til að réttlæta vitfirrings-
legan vígbúnað. „Það sem risaveldin
segja hvert um annað er að mestu
leyti hreinn þvættingur og við eigum
ekki aö hika við að kalla það þvætt-
ing,” segir John Gittings. Einungis
upplýst almenningsálit geti haldið
risaveldunum við efnið og látið þau
svara fyrir ógnir vígbúnaðarkapp-
hlaupsins.
Super Powers in Collision er verk
þriggja manna sem hafa greinar-
góða þekkingu á því sem þeir fjalla
um. Vitanlega kunna ýmsar skýr-
ingar þeirra þremenninga og sjónar-
mið að orka tvímælis eins og gengur
og gerist með rit af þessu tagi. Til
dæmis fetta vafalaust margir fingur
út í frásögn þeirra af orsökum
kalda stríðsins, telja að þar sé um
of borið blak af Sovétmönnum. Hvað
sem því líður er bók þessi athyglis-
vert framlag til þeirrar umræðu sem
sífellt er nauðsynleg til að auka
skilning á eöli þess kalda stríðs sem
stórveldin heyja og ógnar nú allri
heimsbyggð.
Valdimar Unnar Valdimarsson
mönnum sár vonbrigði og knúið þá
til að leggja áherslu á aukinn vigbún-
að í því skyni að fá haldið hemaöar-
legu jafnvægi gagnvart Bandaríkj-
unum. Steele bendir á að hinar nýju
viðsjár með risaveldunum hafi bæst
ofan ó ýmislegt annaö andstreymi
sem Sovétmenn hafi mótt þola ó
alþjóöavettvangi ó undanfömum
árum. Nefiiir hann sem dæmi sjálf-
helduna í samskiptum við Kínverja
og misheppnaðar tilraunir Sovét-
manna til að ná itökum i þriöja
heiminum. Segir Steele að allt muni
þetta líklega stuðla að því aö viðhorf
Sovétmanna til umheimsins einkenn-
ist á næstu árum af varkámi; Sovét-
menn muni leggja meiri áherslu en
áöur á aö rækta sinn eigin garð.
Meiri hœtta
Þeir Noam Chomsky, Jonathan
Steele og John Gittings eru sammála
um að þær viðsjór sem nú ríkja milli
austurs og vesturs séu hættulegri en
þau köldu stríð sem óöur hafa
geisað. Þetta markist ekki aðeins af
því að kjamorkuvopn stórveldanna
séu nú viöameiri og fullkomnari en
áður heldur séu sérfræðingar i
báðum herbúðum komnir á þá
skoðun að kjarnorkustríð sé unnt að
heyja með sigur í huga. Þá megi ekki
vanmeta hættuna á því að styrjöld
brjótist út vegna mistaka eða bilana
í tækjabúnaöi, sem sífellt verður
flóknari að allri gerð. Noam
Chomsky telur að meginhættan á
styrjöld felist í vaxandi líkum á því
að spenna og átök einhvers staðar í
þriðja heiminum, sérstaklega í Mið-
austurlöndum, geti haft í för meö sér
stigmagnandi ótök og jafnvel kjarn-
orkustyrjöld. Segir Chomsky að í
raun megi það kallast kraftaverk
hversu mannkynið hafi lengi lifað af
kjarnorkuöld og kalt stríð en erfitt sé
að vera bjartsýnn á að slíkt krafta-
verk geti varað öllu lengur.
Leiðir til friðar
Hvaða leiðir em færar til að draga
I.B.R. _____________________ K.R.R.
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR
ANNAÐ KVÖLD KL. 20.30
(SUNNUDAGSKVðLD)
K.R. - FRAM
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Yfirfærið
filmurnar á myndband
8 mm.
Sup. 8
16 mm.
Slides
Myndband
NTSC.
Secam
PAL
Texti og tónlist, ef óskað er.
N ánari upplýsingar í síma 46349
BÍLDSHÖFOA 16.
SÍMAR 81530 OG 83104
3
CD
A
•4
Seljum í dag
Saab 99 GLI árg.
1981,
4ra dyra, Ijósblár,
beinskiptur, 4ra
gira, mjög fallegur
bill, skipti á ódýrari
Saab.
opifl kL TÖGGURHF.
SAAB UMBOÐIÐ
Saab 99 GL firg.
1982,
4ra dyra, silver,
beinskiptur, 5 gira,
bíll á mjög góöu
verði.
Saab 900 GLE firg.
1982,
4ra dyra, silver,
sjálfsk. + vökva-
stýri, topplúga, litað
gler, ekinn aöeins
40 þús. km, skipti á
ódýrari Saab.
Saab 99 GL firg.
1983,
4ra dyra, Ijósblár,
beinskiptur, 5 gíra,
ekinn aðeins 19
þús. km.